Morgunblaðið - 15.06.2008, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 2008 39
ATVINNUREKENDUR - FYRIRTÆKI
FÉLAGASAMTÖK
GRENSÁSVEGUR 16 A - HEIL HÚSEIGN
TIL LEIGU
Þetta fallega hús á horni Grensásvegar og Fellsmúla er til leigu og afhendingar strax. Um
er að ræða vandað skrifstofu- og þjónustuhúsnæði á þremur hæðum auk kjallara samtals
u.þ.b. 1400 fm. Lyfta er í húsinu. Eignin er laus til afhendingar nú þegar. Möguleiki er að
innrétta eignina eftir óskum leigutaka. Næg bílastæði við húsið, sérbílastæði á efri palli og
í bílastæðahúsi. Húsið hefur frábært auglýsingargildi og gott að merkja sér starfsemi á
áberandi hátt.
Gott tækifæri til þess að tryggja sér aðstöðu og starfstöð á frábærum stað í borginni, rétt
við umferðaræðar og í nálægð við helstu þjónustukjarna. Stutt í verslanir, banka, strætis-
vagna og fl.
Sölumenn Stórborgar sýna eignina eftir nánara samkomulagi.
LAUGARÁSVEGUR 1. OPIÐ HÚS Í DAG KL: 17-18.
MIÐJUINNGANGUR OG BJALLA
MERKT GUÐMUNDUR ÍBÚÐ 303
Falleg og björt 3ja herbergja útsýnis
íbúð á efstu hæð við Laugarásveg sem
er 92 fm og er með miklu útsýni. Skipt-
ist þannig: Stofa, tvö svefnherbergi,
baðherbergi og eldhús. Sérgeymsla í
kjallara. Parket á gólfum, Vönduð tæki
fylgja m.a tvöfaldur ísskápur. Snyrtileg
sameign.
Verð tilboð - Laus 1 júlí
HÆÐARSEL 1 - 109 REYKJAVÍK.
TIL SÖLU OG SÝNIS Í DAG - SJÓN ER SÖGU RÍKARI
Erum að sýna þetta vandaða einbýlishús
sem er u.þ.b. 240 fm hús á tveimur hæð-
um. Eignin er í mjög góðu ástandi. Öll
neðri hæð hússins var endurnýjuð f. fá-
einum árum m.a. eldhús, gólfefni, inn-
réttingar og fl. Glæsilegt eldhús með
eyju og gengið beint út á nýlega suður-
verönd með skjólveggjum. Tvö baðher-
bergi. Fimm herbergi. Arin í stofu. Stór
lóð. Eignaskipti koma til greina. Húsið
getur verið laust mjög fljótlega.
Húsið verður sýnt í dag Sunnudag á milli kl. 13:30-14:00
ALLT virðist breyt-
ast, verða fagurt og
bjart með hækkandi
sól. Hverskyns vanda-
mál verða ósýnileg og
falin um allt sam-
félagið í bráðaafneitun
sólskins og birtu.
Neysla bjórs, áfengis
og annarra vímuefna
er gerð fallegri með
drykkju úti á kaffihúsum og á Aust-
urvelli Jóns Sigurðssonar. Allt er
svo gott og fagurt, eða hvað? Ekki
vil ég mála skrattann á vegginn,
ekki ýkja eða ófegra, en hver er
staðreyndin? Unglingar prófa bjór
og annað í sólinni en svo kvöldar og
vandinn birtist í ölvun og úrræða-
leysi. Hvert á að leita með skyndi-
vanda? Hvert á að leita eftir aðstoð,
þegar allt virðist vonlaust?
Málefni ungra fíkla og fjöl-
skyldna þeirra þola aldrei bið. Mér
hefur þótt umræða um málefni
ungs fólks oftast vera yfirborðs-
kennd og tengd ósk-
hyggjuástandi frekar
en raunveruleika. Þó
hafa nokkur dagblöð
verið með athygl-
isverða greinaröð um
málefni ungra fíkla.
Þar hefur bitur og
napur raunveruleikinn
birst okkur og erfitt
að horfast í augu við
slíka stöðu ungs fólks.
Staðreyndin er, að
ekkert er ofsagt og
ekkert í raun að ger-
ast í dag sem breyta mun þessum
napra raunveruleika. Að halda, að
engin eða yfirborðskennd umræða
sé staðfesting á að allt sé í lagi er
hættuleg einföldun á raunveruleik-
anum. Úrræðum er að fækka og
markvissa forvarnarstarfsemi vant-
ar.
Neysla ungs fólks er ekki að
minnka og úrræðaleysið ekkert sjá-
anlega að breytast. Við þurfum al-
gjöra hugarfarsbyltingu og raun-
hæfari, trúverðugari lausnir. Á
Íslandi er vinnutími fólks óeðlilega
langur, tímaskortur allsráðandi, allt
rekið áfram af blindri græðgi. Þrátt
fyrir góðan vilja stjórnvalda eru
verkin fá, ómarkviss og óraunsæ
varðandi vímuefnaneyslu ungs
fólks.
Eftir að hafa verið vinnandi í um
fimm ár í kringum fíkla og aðstand-
endur þeirra sé ég engar breyt-
ingar á hvernig tekið er á vanda
þeirra. Ef eitthvað er þá er frekar
verið að afneita raunveruleikanum
og draga úr úrræðum til lausnar.
Forvarnarvinna í skólum, heim-
ilum og frístundastöðum er það
brýnasta. Að fólk eigi greiðan og
augljósan aðgang að upplýsingum
og hvar aðstoð er að finna er því
miður ekki raunin. Það er eins og
það megi ekki gagnrýna þá sem
bera sameiginlega ábyrgðina þ. á
m. of marga foreldra, stjórnvöld og
stofnanir sem eru á þeirra vegum.
Enn eimir eftir af „þetta tölum við
ekki hátt um“ tali. Skömm, sekt-
arkennd og vanmáttur er of oft það
sem stöðvar foreldra í að leita að-
stoðar. Við þurfum að þora að vera
áþreifanlega nálægt og opin fyrir
alla aðstoð við fíkla og aðstand-
endur þeirra. Vera hlutlaus og
dæma ekki, heldur hlusta, skilja og
bjóða úrræði sem eru einhvers
virði. Úrræði sem virka þá og núna
þegar vandinn er svo áþreifanlega
sársaukafullur.
Góðir fyrstu viðkomustaðir fyrir
fólk eru oftast samtök eins og For-
eldrahús – Vímulaus æska, Stíga-
mót, Blátt áfram, Geðhjálp og
margir aðrir aðilar sem vinna í
grasrótinni, nafnlaust og öll í fullum
trúnaði. Þessir aðilar geta svo vísað
áfram til annarra fagaðila þar sem
það á við hverju sinni. Fyrsti við-
komustaðurinn verður að vera hlut-
laus, faglegur og vekja traust og
trúnað.
En sífellt er verið að draga úr
möguleika á starfi ofannefndra
samtaka og ekki verið að efla það
eins og væri eðlilegt. „Venjulegt
fólk“ þarf „venjulegt fólk“ til að
tala við, sérstaklega í upphafi.
Vegna þessa finnst mér eðlilegt
að efla þessi störf og auka frjálst
aðgengi fólks að ráðgjöf og upplýs-
ingum. Og það í dag en ekki á
morgun, þessi mál þola aldrei bið!
Í stað þess að fækka úrræðum
fyrir ungt fólk í neyslu og fjöl-
skyldur þeirra á að efla og auka úr-
ræðin. Flest er of seinvirkt sem er í
gangi í dag. Flest þessara mála
þola enga bið, þau eru sársaukafull
og viðkvæm. Viðtöl og upplýsingar
eru fyrstu skrefin fyrir utan algjöra
neyðarvistun unglings. En neyð-
arvistun er síðasta úrræðið og
plássin í landinu of fá til að tala um
að hér sé raunveruleg aðstoð í
gangi.
Þorum að axla raunverulega
ábyrgð á fjölskyldum okkar. Börn-
in, unglingarnir þurfa á okkar tíma
að halda! Veittu þeim tíma þinn og
árangurinn verður sýnilegur. Það
er staðreynd að öll getum við lært
meira í lífsleikni og hvað það er
sem í raun skiptir máli í lífinu.
Göngum saman út í sumarið með
opin augu fyrir hamingjuna í lífinu.
Að lokum, fyrir áhugasama, til-
vitnun sem enn er í fullu gildi.
Orðskviðirnir 23: Horf þú ekki á
vínið, hve rautt það er, hversu það
glóir í bikarnum og rennur ljúft
niður. Að síðustu bítur það sem
höggormur og spýtir eitri sem
naðra. Augu þín mun sjá kynlega
hluti og hjarta þitt mun mæla flá-
ræði. Og þú munt vera eins og sá
sem liggur úti á miðju hafi, já eins
og sá, sem liggur efst uppi á
siglutré. „Þeir hafa slegið mig, ég
kenndi ekkert til. Þeir hafa barið
mig, ég varð þess eigi var. Hvenær
mun ég vakna? Ég vil meira vín.“
Sumarið – „erfiður tími“ eða
„tími okkar“ í sólskininu?
Percy B. Stefánsson
skrifar um vímu-
efnavandann
»Málefni ungra fíkla
og fjölskyldna
þeirra þola aldrei bið.
Percy B. Stefánsson
Höfundur er ráðgjafi hjá Vímulausri
æsku – foreldrahúsi.
{ {