Morgunblaðið - 22.06.2008, Side 12
12 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í nám fyrir komandi vetur og hefur verið lokað fyrir skráningu hjá flestum skólum. Þó
að þau Ásgerður, Halla, Tyrfingur, Katrín og Kári hafi lokið svipuðu námi, stefna þau hvert í sína áttina varðandi framhalds-
nám. Guðný Hrafnkelsdóttir talaði við þau.
Stefnan eftir stúdentspróf
Halla Þórlaug Óskarsdóttir útskrifaðist frá
Menntaskólanum í Reykjavík nú í vor, af
eðlisfræðibraut. Hún hefur nú ákveðið að
venda kvæði sínu í kross og fara í fornám
við Myndlistaskólann í Reykjavík.
„Myndlist hefur verið mitt aðaláhugamál
frá því að ég man eftir mér, ég var alltaf að
teikna og lita.“ Halla kemur af miklu
menntafólki og hafa systkini hennar öll út-
skrifast af eðlisfræðibraut og farið beint yf-
ir í verkfræði. Halla vildi sýna í verki að
hún gæti útskrifast af eðlisfræðibraut, þó
að það hefði lítið með áhugamálið að gera.
Hún útilokar þó ekki að það verði síðar fyr-
ir valinu að fara í frekara raungreinanám.
„Ég vil sjá hvort að listatengt nám henti
mér og hvort ég vilji starfa við myndlist í
framtíðinni. Annars get ég farið í öðruvísi
nám að þessu ári loknu.“
Auk þess sem Halla hefur dundað sér
sjálf við að teikna, hefur hún tekið stutt
námskeið í myndlist og leirlist, svo að dæmi
séu tekin. Þar að auki tók hún eina önn í
Iðnskólanum í Reykjavík í kvöldskóla, sam-
hliða eðlisfræðinni. „Ég var á braut sem
kallast sjónlist og þar var kennt allt milli
himins og jarðar sem tengist myndlist. Sú
önn hjálpaði mér mikið fyrir inntökuprófið.“
Aðspurð um hvort hún myndi velja í dag,
raungreinar eða myndlist, segir Halla að
draumurinn sé að starfa við myndlist. En
þrátt fyrir það er öruggara að velja nám í
raungreinum og hafa myndlist sem áhuga-
mál. „Það er auðveldara að mála í frítíma
sínum, en að aðaláhugamálið sé eðlisfræði,“
segir Halla. Hún segist líka vera til í að
hafa myndlist sem aukastarf, sérstaklega ef
hún gæti fengist við að myndskreyta barna-
bækur.
Hún hefur þó háleita drauma um fram-
haldsnám, ef að henni líkar vel við und-
irbúningsnámið. Hugurinn stefnir þá helst
til Parísar, þar sem virtu listaháskólarnir
Beaux-Arts og Parsons eru staðsettir.
„Franska var uppáhaldsfagið mitt í mennta-
skóla og í hana lagði ég mesta vinnu. Þess
vegna vil ég prófa að búa í París og kynn-
ast tungumálinu og menningunni enn bet-
ur.“
Morgunblaðið/Frikki
Nýstúdent Margir eiga erfitt með að velja
námsleið að loknu stúdentsprófi.
Valið milli
myndlistar og
eðlisfræði
Nýverið útskrifaðist Katrín Erna Þorbjörns-
dóttir af málabraut frá Menntaskólanum á Ak-
ureyri. Í haust stefnir hún á frekara tungu-
málanám, en hún hefur skráð sig í finnsku við
Háskóla Íslands. „Ég hef ekki heyrt af neinum
öðrum á leið í finnsku, en það eru vonandi
fleiri.“ Katrín er mikil tungumálamanneskja
og hún hlakkar til að takast á við námið.
Hún hefur ágætisgrunn til að byggja á, en
þegar hún var sautján ára var hún þar í Finn-
landi sem skiptinemi. Þar bjó Katrín í litlum
bæ, Tuusula, rétt utan við Helsinki. „Ég get
bjargað mér að einhverju leyti á finnsku,“ seg-
ir Katrín, en bætir því við að margir jafnaldrar
hennar í Finnlandi tali ágætisensku, svo hún
hafi líka notað hana. „Finnar eru að mörgu
leyti líkir Íslendingum og ég var fljót að aðlag-
ast landi og þjóð.“ Hún bendir líka á að Íslend-
ingar eigi auðvelt með að læra finnsku, þeir
eigi auðvelt með framburðinn og að orðin séu
borin fram eins og þau eru skrifuð.
Aðspurð um hvað Katrín hafi hugsað sér að
gera að finnskunáminu loknu, segist hún ekki
vera viss. „Nám í finnsku við HÍ er ekki alveg
fullt nám til BA-gráðu, svo ég stefni á að taka
íslensku með.“
Hún segist vel geta hugsað sér að flytja til
Finnlands og fara í frekara nám þar, en þó sé
ekkert ákveðið í þeim efnum. Þá hefur hún
helst hugsað sér að flytja til Helsinki eða til
Norður-Finnlands, þar sem sé strjálbýlt, mörg
minni þorp og mikil náttúrufegurð.
„Ég vil aðallega fara í nám í finnsku til að
geta bjargað mér betur á tungumálinu. Von-
andi næ ég það mikilli færni að ég geti talað
reiprennandi.“ Til að viðhalda tungumálinu
segist Katrín aðallega hafa gluggað í orðabæk-
ur, en hún hafi einnig talað við finnska mág-
konu sína.
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Enginn túristi Katrín segir að Íslendingum sé
oft ruglað saman við innfædda í Finnlandi.
Gluggar í finnskar orðabækur
Kári Emil Helgason er nýútskrifaður frá
Menntaskólanum í Reykjavík af forn-
málabraut. Í haust ætlar hann að láta gaml-
an draum rætast og fara í hönnunarskóla,
Fashion Institute of Technology, á Man-
hattan í New York. Þar stefnir hann á að
ljúka BFA-gráðu í grafískri hönnun.
Kári hefur lengi haft áhuga á hönnun og
því kemur það á óvart að fornmálabraut í
MR hafi orðið fyrir valinu. „Mig langaði í
hönnun þegar ég var yngri. Þegar kom að
því að velja framhaldsskóla var ég á báðum
áttum, en endaði á fornmálabraut. Þá var
ég að hugsa um að leggja stund á málvís-
indi eða eitthvað slíkt,“ segir Kári, sem sér
þó ekki eftir valinu.
Auk umsóknar fyrir FIT þurfti hann að
skila til skólans möppu, eins og svo oft er
með listaskóla. Með möppunni fékk Kári
tækifæri til að sýna fram á færni sína á
ýmsum sviðum, til að mynda í formi teikn-
inga og tímarita. Auk þess setti hann í
möppuna sína sýnidæmi frá því að hann var
í leikfélagi MR, Herranótt, en þá hannaði
hann öll leikgervi í tölvu. Námið sem Kári
er að fara í tekur fjögur ár, en fyrstu tvö
árin minna um margt á framhaldsskóla hér,
enda skólakerfi Íslands og Bandaríkjanna
ólík. „Fyrstu tvö árin þarf ég að fara í
stærðfræði, ensku og leikfimi. En þó er
þetta frekar eins og sérhæft framhalds-
skólanám, sem miðar að námi í hönnun.“
Kári getur hugsað sér að læra ýmislegt
að BFA-gráðu fenginni, enda margt í boði.
„Í augnablikinu hef ég mestan áhuga á að
starfa annaðhvort við að hanna tímarit eða
upphafskynningar í bíómyndum. Ég væri
reyndar líka til í að læra herrafatahönnun,
enda held ég að það séu fáir slíkir á Ís-
landi.“
Það verður allavega um nóg að velja fyrir
Kára í FIT, því skólinn býður upp á svo
margar brautir að hann hefur ekki skoðað
nema lítið brot af þeim.
Kári bíður spenntur eftir að flytja út, sem
verður þó ekki fyrr en í lok sumars. Hann
mun búa með kærasta sínum, sem lærir þar
kvikmyndagerð og segist hlakka til að
standa á eigin fótum. Spurður um vænt-
ingar til námsins segir Kári að námið sé
öðruvísi en það sem hann hafi áður prófað
og vonandi skemmtileg breyting frá ströngu
námi í MR.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tíska Kári er spenntur fyrir skólanum og
hlakkar til að takast á við líf í nýju landi.
Hönnunarnám á Manhattan
Tyrfingur Tyrfingsson lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Hamrahlíð vorið 2007, af
félagsmálabraut. Hann hefur lengi haft áhuga
á leikhússtarfi, þó hann hafi engan áhuga á að
verða leikari. Leikstjórn og skrif eru það sem
hann stefnir frekar á. Nýlega var hann valinn
í tíu manna hóp sem hefur nám við fræði og
framkvæmd við Listaháskóla Íslands kom-
andi haust. Árið 2006 kom upp hneykslismál,
varðandi gjörning nokkurra nemenda af
brautinni. „Þeir klipptu af einni stelpunni
hárið og pissuðu á hana. Þá varð ég heillaður
af þessu námi og hef stefnt að því síðan,“ seg-
ir Tyrfingur, sem að vonum er ánægður með
að hafa komist inn í skólann. Námsbrautin er
ung, en hún hefur verið starfrækt frá árinu
2005 og í vor útskrifuðust fyrstu nemarnir
þaðan.
Tyrfingur tók þátt í örleikritasamkeppni
fræðsludeildar Þjóðleikhússins og leiklist-
ardeildar LHÍ árið 2007. Verkið hans; Eins
og einn þig lenti þar í öðru sæti. Hann hefur
einnig tekið að sér leikstjórn, en hann leiddi
Austurbæjarskóla til sigurs í Skrekk árinu
áður.
Í sumar heldur Tyrfingur til Hollands
ásamt leikskáldinu Þórdísi Elfu Bachmann til
að taka þátt í vinnusmiðju fyrir ung leikskáld,
Interplay Europe, með verðlaunaverkið sitt í
farteskinu.
Tyrfingur er spenntur fyrir náminu í LHÍ,
en á brautinni er kennd femínísk og öðruvísi
nálgun á leiklistina. „Einu væntingarnar sem
ég geri til námsins er að ég finni í mér píkuna
og fái á hana verð,“ segir Tyrfingur að-
spurður um námið. Námið tekur þrjú ár, þar
af ein önn við erlendan skóla. „Mig langar
helst að fara til Kína, annaðhvort þessa einu
önn eða í framhaldsnám,“ segir Tyrfingur.
Hann bætir því við að sá sem útskrifist með
BA í fræði og framkvæmd fái ekki þar með
einhvern titil, heldur fari flestir í framhalds-
nám. Námið er því helst grunnur fyrir frek-
ara nám á erlendri grundu.
Morgunblaðið/Frikki
Ungskáld Áður en nám hefst í LHÍ fer Tyrf-
ingur til Hollands í listasmiðju ungskálda.
Upprennandi
leikskáld
Ásgerður Snævarr útskrifaðist af forn-
málabraut frá Menntaskólanum í Reykjavík í
maí sl. Hún hyggur á frekara tungumálanám
og heldur til Nanjing í Kína í lok sumars. Þar
mun hún leggja stund á kínversku fyrir út-
lendinga. Hana hafði lengi langað til að læra
tungumál sem færri legðu stund á, svo að frek-
ara nám í ensku og dönsku kom ekki til greina.
„Kína er stækkandi land á alþjóðamarkaði og
það kemur að því að það verði verðmætt að
kunna kínversku,“ segir Ásgerður. „Það er
spennandi að fara út og prófa eitthvað alveg
nýtt og öðruvísi.“
Hún frétti af náminu í gegnum vin sinn, sem
hefur verið þar undanfarið. Til að byrja með
ætlar hún að vera úti í eitt ár og sjá svo til
hvernig gengur, bæði með námið og að standa
á eigin fótum. „Ég fékk að stúdentsgjöf bók
sem heitir Learn Mandarin Chinese in 30 Da-
ys og hún mun væntanlega koma að góðum
notum fyrst um sinn. En ef ég ætla að vera
þarna til lengri tíma þarf ég að vera dugleg við
námið og leggja mig alla fram.“
Þegar Ásgerður leitaði að skólum í Kína, var
höfuðborgin Peking efst á lista. En er hún
hafði talað við fólk í námi þar í bæ, kom í ljós
að þar yrði of auðvelt að bjarga sér á ensku.
Borgin Nanjing er töluvert minni, íbúafjöldinn
er nokkrar milljónir manna, en þar eru mun
færri sem tala ensku. Það er kostur ef farið er
út í tungumálanám að ekki sé hægt að bjarga
sér á ensku, fyrir vikið nær fólk mun fyrr tök-
um á tungumálinu.
Það kemur á óvart hversu ódýrt námið er,
miðað við háskólanám í öðrum löndum, en
skólagjöld fyrir tvær annir eru um tvö hundr-
uð þúsund krónur. „Ég stefni á að vera í Kína í
að minnsta kosti eitt ár og ég kem ekki heim
um jólin. Ef vel gengur gæti farið svo að dvölin
lengist. Ég hef heyrt frá þeim sem eru í Kína
núna að útlendingar falli fyrir landi og þjóð og
flestum þyki erfitt að halda heim á leið. Þess
vegna ætla ég ekki að taka neinar ákvarðanir
um framhaldið núna, heldur láta það ráðast.“
Morgunblaðið/Valdís Thor
Kína Það ku vera fallegt í Kína og Ásgerður á
spennandi ár í vændum.
Verðmætt að kunna kínversku