Morgunblaðið - 22.06.2008, Side 34
34 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Til leigu í Mjódd
Til leigu 228 fm á efri hæð við göngugötu ásamt 145,5 fm í
kjallara. Ýmsir möguleikar á skiptingu húsnæðisins. Afhending í
júlí.
Til leigu á
Suðurlandsbraut
Til leigu 195 fm verslunar- eða
skrifstofupláss á jarðhæð á
Suðurlandsbraut 12. Mjög bjart
og huggulegt rými, laust strax.
Langtímaleiga.
Til leigu
Nánari upplýsingar í síma 891-6625.
FAXAR eignarhaldsfélag
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Borgartúni 22 • 105 Reykjavík • Fax 5 900 808
fasteign@fasteign.is • www.fasteign.is
5 900 800
SÖLUSÝNING Í DAG KL: 15–16:00
Sölumenn á staðnum
M
b
l993780
Sýnum glæsilegt og vandað 90,4 fm vel skipulagt heilsárshús við
Lækjarmýri 10 í landi Mýrarkots rétt við Hraunborgir, hús stend-
ur á 10.300 fm eignarlóð. Húsið er byggt á staðnum og er úr fyrs-
ta flokks harðvið, reist á steyptum sökklum og eru allar hitalagnir í
gólfplötu. Húsið er fullbúið að utan sem innan með innréttingum,
lóð grófjöfnuð. Leiðarlýsing: Ekið er í átt að Kiðjabergi & beygt
til vinstri af vegi, skilti við gatnamót.
Verð kr: 27.9 millj. Tilboðsverð út júní 2008 kr: 20.9 millj.
Upplýsingar: Sveinn Eyland gsm: 6-900-820 frá fasteign.is
TIL SÖLU
LAUGARÁSVEGUR
3JA HERBERGJA
Til sölu 3ja herb. 100 fm. íbúð á efstu hæð við
Laugarásveg. Fallegt útsýni. Stórar svalir.
Upplýsingar í síma 892 0160.
ÞAÐ er ótrúlegt að
umfjöllun um Afríku
þurfi alltaf eða oft vera
með þeim neikvæða og
sorglega hætti eins og
við fáum að lesa eða
horfa á. Maður les aft-
ur og aftur um fólk frá
einhverjum löndum
sem heimsækir álfuna
en það fær umfjöllun í
blöðum bara út af því
að það gaf einhverju
þorpi í Afríku eitthvað.
Tónlistarmenn eins og
Bono og Bob Geldof
eru frægir fyrir að halda tónleika til
að safna fé fyrir fátækt fólk í Afr-
íku. Gott og vel. En sannleikurinn
er einfaldlega sá að þetta hjálpar
því miður ekki mikið. Það er alvitað
að staðan í Afríku breytist ekki ef
þeir sem hafa efnahagsvöldin í
heiminum halda áfram að mismuna
Afríkubúum. Háir tollar og skattar
sem settir eru á vörur og innflutn-
ing frá til dæmis Afríku til Evrópu
og Norður-Ameríku gerir það að
verkum að menn græða ekki neitt
efnahagslega. Það þýðir að fjár-
magn sem vantar til að þróa, bæta,
byggja upp og breyta hlutunum
næst aldrei. Vissulega er það líka
staðreynd að leiðtogar og stjórn-
málamenn hafa mjólkað og stolið
pening frá mörgum löndunum, sem
alveg er til skammar. Það má held-
ur ekki gleyma því að tíðari borg-
arastríð hafa oft á tíðum gert efna-
hagsástandið slæmt. En það breytir
sannleikanum og staðreyndunum
ekki neitt. Ég las greinina um
stelpuna sem fór til Ghana en sú
grein gladdi mig lítt.
Ég hefði viljað senda
stelpunni tölvupóst ef
hægt væri. En hún
fær vonandi að lesa
um þetta seinna í
Mogganum.
Það er frekar pirr-
andi þegar fólk ferðast
til Afríku og dvelur
þar í nokkra daga og
skrifar svo grein um
dvölina eins og þeim
einum er lagið. Fólk
sem greinilega veit
ekki neitt um stað-
reyndirnar áður en
það skrifar. Þessi
stelpa vildi meina að
hún fór alla leið til
Afríku til að kenna
skólabörnum á tölvu
og senda tölvupóst þó svo að hún sé
enginn tölvusnillingur. Stoppum að-
eins við, gott fólk! Með öðrum orð-
um þá vildi hún meina að það gæti
hver sem er farið til Ghana eða ein-
hvers lands í Afríku og kennt börn-
um án sérstakrar menntunar eða
þekkingar. Hljómar þetta ekki frek-
ar niðurlægjandi? Og þarf ég endi-
lega að taka það fram að það sé til
fullt af hámenntuðum tölvusnill-
ingum í Ghana?
Ef menn vilja ferðast til annarra
landa til að kenna eitthvað þá þarf
það ekki að vera fréttaefni með
þessum hætti. Ég skil ekki af
hverju fólk vill fara þangað en
koma svo til baka með þessar nei-
kvæðu athugasemdir í farteskinu.
Vissulega er Ghana ekki eins og
Ísland þegar efnahagsástand og
fleiri þættir eru annars vegar en
Ghana er ekki heldur vanþróað og
þessi stúlka vill gefa það til kynna.
Það fer svo sannarlega í taugarnar
á mér að hlusta á fólk sem býr ekki
á staðnum, en heimsækir landið í
stuttan tíma og hagar sér svo eins
og sérfræðingur um hvernig lífs-
kjör fólks sem þar búa eru. Menn
virðast oft uppteknir af því að tala
bara um neikvæðu hlutina sem eru
í Afríku heldur en allt það ævintýri
sem maður upplifir þar. Við skulum
líka hafa það á hreinu að Afríka er
ekki bara eitt stórt land með sama
fólkinu, lífsvenjum eða lífskjörum
hvar sem litið er. Þetta er bara fá-
fræði að hálfu fólks sem ferðast
þangað og veit ekki neitt um heims-
álfuna. Það er ekkert sérstak við
það að fólk frá Evrópu ferðist til
Afríku og hitta fólk fyrir sem vill
yfirgefa álfuna. Það er ekkert nýtt
við það og þarf ekki að koma nein-
um sérstaklega á óvart. En þetta
eru einmitt þeir sem eru líka jafn-
illa upplýstir um Evrópu og halda
að allt leysist með því að búa í Evr-
ópu. Þau eru jafnilla upplýst og þau
sem heimsækja löndin í Afríku og
haga sér eins og sérfræðingar um
álfuna.
Þess má geta að þessi stelpa var
bara í Ghana en ekki í öllum lönd-
um álfunnar. Og það sem gerist í
Ghana gerist ekki endilega á öðrum
slóðum álfunnar. Er ekki kominn
tími til að fólk heimsæki Afríku og
bara njóti dvalarinnar?
Það væri svo sannarlega ánægju-
legt að heyra frá fólki sem þangað
fer, ef það talaði um gestrisnina
sem þeim er oft ef ekki alltaf sýnd.
Og svo er það líka staðreynd að
Evrópubúar og reyndar ferðamenn
sama hvaðan þeir koma upplifa
varla kynþáttafordóma af einhverju
tagi í Afríku. Jafnmikið og Afr-
íkubúar upplifa það í Evrópu. Ég er
bara einfaldlega búinn að fá nóg af
þessari vitleysu og langar þar af
leiðandi að koma athugasemdum
mínum á framfæri.
Hvað vita menn
um Afríku sem þar ferðast
Akeem Cujo
Oppong gerir
athugasemd við það
hvernig fjölmiðlar
fjalla um Afríku
Akeem Cujo
» ...að fólk
heimsæki
Afríku og njóti
dvalarinnar?
Höfundur er fæddur í Ghana.
EFTIR umfangs-
mikla umfjöllun í fjöl-
miðlum undanfarna
daga, um landgöngu ís-
bjarna á Skaga 3. og 16.
júní og stóryrtar yf-
irlýsingar ýmissa
áhugamanna um fram-
göngu yfirvalda örygg-
ismála í stóra ísbjarn-
armálinu, langar mig að
koma á framfæri sjón-
armiði Íslendings í
Grænlandi inn í um-
ræðuna.
Í þessari umfjöllun
finnst mér vanta ýmis
grundvallaratriði sem
ég hef upplifað og kynnt
mér við störf á vest-
urströnd Grænlands síðastliðinn vet-
ur þar sem varð vart ferða ísbjarna
þegar hafísinn lagðist upp að strönd-
inni.
Ísbjörninn er villt rándýr, eitt af
þeim stærstu og sterkustu á jörðinni.
Hann nærist aðallega af hráu, rauðu
kjöti sem hann veiðir sér til matar
með því að neyta mikils aflsmunar,
rota bráðina eða rífa hana á hol.
Hann vill helst veiða seli við haf-
ísrönd eða vök í ísnum. Ísbjörn getur
legið hreyfingarlaus við vök eða ís-
röndina tímum saman til að bíða eftir
að selur komi úr kafi. Ef hafís leggst
að landi, gengur ísbjörninn gjarnan á
land til veiða. Ísbjörninn er yfirleitt
mannafæla við sínar eðlilegu að-
stæður á hafísnum þegar hann getur
náð sér í uppáhaldsbráðina sel. Við
breyttar aðstæður þegar hann geng-
ur á land í leit að veiðibráð fer hann
ekki í manngreinarálit og komi til
þess að maður standi
frammi fyrir ísbirni
sem er svangur, er það
spurning um hvor
drepur hvorn. Ef mað-
urinn hefur engin vopn
eða öruggt skjól þá er
leikurinn vonlaus fyrir
hann því ísbjörn er
mjög sterkur og
grimmur. Það hleypur
engin manneskja und-
an ísbirni í eltingarleik.
Það að ísbjörn er
grimmur er honum eðl-
islægt og ekkert við því
að gera.
Ég þekki þessar að-
stæður af eigin raun og
þurfti að gera ráðstaf-
anir á vinnustað í
Grænlandi í febrúar
síðastliðnum til að
tryggja öryggi starfs-
manna þegar fréttist af
landgöngu ísbjarna í næsta nágrenni
við vinnustaðinn sem er annars langt
frá annarri mannabyggð. Ráðstaf-
anir sem við gerðum var í fyrsta lagi
að gera viðbragðsáætlun og upplýsa
alla starfsmenn um hver hugsanleg
hætta væri á ferðum, upplýsa um og
gera ráðstafanir ef hugsanleg áhætta
yrði að veruleika. Sem betur fór kom
enginn ísbjörn inn á vinnustaðinn.
Ég hvet löggæsluyfirvöld og um-
hverfisyfirvöld að setjast nú niður og
semja viðbragðsáætlun við ísbjarn-
arvá þar sem hún er raunveruleg.
Þetta er ekki nýtt vandamál og er vel
þekkt þar sem fara saman manna-
byggðir og norðurslóðir.
Á Grænlandi þar sem ísbirnir og
menn eiga heima við eðlilegar að-
stæður gilda ákveðnar samskipta-
reglur þó að ísbirnir séu friðaðir. Ef
ísbjörn gengur á land nálægt byggð á
Grænlandi, er mönnum uppálagt að
reyna að fæla hann á brott með ein-
hverjum hætti, t.d. með því að skjóta
aðvörunarskoti eða með öðrum há-
vaðavöldum. Hafi aðvörunarskot
ekki áhrif skal aflífa ísbjörninn svo
öryggi manna verði ekki ógnað. Að
skjóta ísbirni með deyfilyfjum og
koma þeim til sinna eðlilegu heim-
kynna er að mínu viti ekki til i orða-
bókinni um ísbirni á Grænlandi sem
er þó þeirra eðlilegu heimkynni.
Heimastjórn Grænlendinga úthlutar
veiðileyfum til atvinnuveiðimanna
fyrir ákveðinn fjölda ísbjarna hvert
ár. Í þeim tilfellum þegar nauðsyn-
legt hefur þótt að fella ísbirni í ör-
yggisskyni, er tekið tillit til þess við
úthlutun veiðileyfa næsta árs og
veiðileyfum fækkað um sama fjölda.
Í nágrannaþorpum vinnustaðar okk-
ar þurfti að fella 2 ísbirni nýliðins
vetrar í öryggisskyni þrátt fyrir að
vera á Grænlandi. Þessir atburðir
þóttu ekki sérstaklega merkilegir í
Grænlandi og engum datt í hug að
kalla eftir sérfræðingum með deyfi-
lyf og gera þannig tilraun til að
„bjarga“ dýrunum og koma þeim á
þeirra heimaslóðir sem voru þó við
bæjardyrnar. Heimspressan skipti
sér heldur ekki af þessum tilfellum.
Aðgerðir voru yfirvegaðar örygg-
isráðstafanir til verndar mönnum.
Umfjöllun um björgun á villuráf-
andi ísbjörnum á Norðurlandi í leit
að æti eða bráð undanfarið einkenn-
ast af annarlegum sjónarmiðum um
villidýraverndun á kostnað öryggis
manna að mínu mati. Ísbirnir sem
villast frá sínum eðlilegu heimkynn-
um eru ekki vinalegir bangsar heldur
stórhættuleg og óútreiknanleg rán-
dýr.
Mér finnst lögregluyfirvöld og um-
hverfisyfirvöld hafa metið aðstæður
á Norðurlandi af skynsemi í und-
anförnum tveimur tilfellum og bíð
spenntur eftir að sjá „viðbrags-
áætlun“ vegna ísbjarnarhættu líta
dagsins ljós.
Maður eða ísbjörn?
Guðmundur
Þórðarson skrifar
varnaðarorð vegna
landgöngu ísbjarna.
Guðmundur Þórðarson
» Ísbjörninn
er villt rán-
dýr, eitt af þeim
stærstu og
sterkustu á
jörðinni.
Höfundur er tæknifræðingur og
starfar á Grænlandi.