Morgunblaðið - 22.06.2008, Side 38

Morgunblaðið - 22.06.2008, Side 38
38 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali. MIÐBRAUT - SELTJARNARNESI NÝTT OG GLÆSILEGT PARHÚS Nýtt og glæsilegt parhús, tvær hæðir auk kjallara á sunnan- verðu Seltjarnarnesi. Húsið er, hannað af Zeppelin arkitektum og eru stærri íbúðin um 330 fm og minni íbúðin um 300 fm. Sameiginleg bílageymsla í kjallara. Afhendist fullbúið að utan með grófjafnaðri lóð, en fokhelt að innan. Verð á stærra húsi kr. 85 millj. og á minna húsi 80,0 millj. Nánari upplýsingar á skrifstofu. ÖLDUGATA Glæsilegt um 300 fm einbýlis- hús sem er kjallari, tvær hæðir og ris á þessum eftirsótta stað í vesturborginni að meðtöld- um 17,4 fm bílskúr. Sér 2ja herb. Íbúð með sér inngangi er í kjallara hússins. Húsið er ný- lega málað að utan og inn- keyrsla nýlega endurnýjuð. Verðtilboð. HOLTASEL Fallegt og vel skipulagt einbýl- ishús með innb. bílskúr. Eignin er mikið endurnýjuð og innrétt- uð á vandaðan og smekklegan hátt og skiptist m.a. í eldhús, rúmgóða stofu og borðstofu með arni, sólskála með útg. á timburverönd, 5 herbergi, sjónvarphol og baðherbergi með gufu. Góð staðsetn., stutt í skóla og leikskóla. Verð 78,0 millj. SÓLEYJARGATA Virðulegt og glæsilegt einbýlis- hús á þessum eftirsótta stað í miðborginni. Eignin er 3 hæðir og kjallari um 365 fm auk 24 fm bílskúrs. Fjórar stórar stof- ur, tvö eldhús og fjöldi her- bergja. Aukin lofthæð á aðal- hæð um 2,75 metrar. Stórar svalir úr stofum aðalhæðar, svalir út af tveimur herbergjum 2. hæðar og útgangur á þrennar svalir úr stofum 3. hæðar. Lóðin er eignarlóð 826 fm að stærð. Nánari uppl. á skrifstofu. SUMARBÚSTAÐALÓÐ Á ÞINGVÖLLUM 1.400 fm sumarbústaðalóð við Valhallarstíg, innan þjóð- garðs á Þingvöllum. Samþykktar teikningar að 100 fm húsi á lóðinni. Nánari uppl. á skrifstofu Þegar ég lít yfir stjórnmálaferil Stein- gríms Hermannsson- ar sýnist mér að hann hafi náð hápunkti í forsætisráðherratíð hans fyrir vinstri- stjórninni 1988 sem sat út það kjörtímabil til 1991. Það voru helstu kostir Stein- gríms, bæði sem manns og stjórnmála- manns sem gerðu honum kleift að vinna það afrek að halda saman þriggja flokka vinstristjórn – og á tímabili fjögurra flokka stjórn – út kjörtímabilið með góðum árangri. Þeir voru skipulögð vinnubrögð, sanngirni í samskiptum við samherja og andstæðinga og einlægni í málflutningi gagnvart þjóðinni. Þessi vinstristjórn mun fá þann dóm í sögunni að vera eina vinstristjórnin á öldinni sem leið, sem reis undir nafni, fyrir utan „rík- isstjórn hinna vinnandi stétta“1934- 37 í miðri heimskreppunni undir forsæti föður hans, Hermanns Jón- assonar. Þar með sannaði Stein- grímur að hann var enginn ættleri. Stærstu mistökin á stjórn- málaferli Steingríms voru að mínu mati þau að falla í þá freistni fyrir örlagaríkar kosningar 1991 að leyfa lykilmönnum í flokki sínum að snú- ast af fullkomnu ábyrgðarleysi gegn EES-samningnum sem efnislega var að mestu leyti fullsaminn í tíð ríkisstjórnar Steingríms. Þar með gerðu þeir Steingrímur og Ólafur Ragnar, fyrrverandi framsókn- armaður en þáverandi formaður Al- þýðubandalagsins, mér ókleift að halda áfram vinstristjórnarsam- starfi eftir kosningar, eins og hugur minn hefði annars staðið til. Þessi mistök drógu langan slóða á eftir sér og breyttu gangi stjórnmálasög- unnar frá því sem ella hefði orðið. Með þessum mistökum lögðu flokksformennirnir óvitandi í raun og veru grundvöllinn að löngum valdaferli Davíðs Oddssonar. Eftir á að hyggja þykir mér líklegt að báðir telji þeir nú að þetta hafi verið mis- ráðið. Fyrstu kynni mín af Steingrími Hermannssyni voru ekki góð. Ég kynntist honum fyrst sem keppi- naut fyrir tvennar kosningar, 1974 og 1978, á Vestfjörðum. Mér duldist ekki fremur en öðrum, sem þurftu við hann að kljást, að Steingrímur hefði erft keppnishörku föður síns og að hann væri ekkert lamb að leika við. Hins vegar þóttu mér póli- tískar hugmyndir hans helst til fá- tæklegar, eins og ég lýsi nánar í Til- hugalífi. Og sem málflytjandi þótti mér hann heldur bragðdaufur, svona miðað við minn vestfirska smekk. Það fór því ekkert sér- staklega vel á með okkur framanaf. Eftir að Steingrímur hafði tekið við forystu Framsóknarflokksins af Ólafi Jóhannessyni, sem hann gegndi í tæpan hálfan annan áratug, urðum við óhjákvæmi- lega harðir andstæð- ingar. Sem ritstjóri Al- þýðublaðsins og síðar formaður Alþýðuflokks- ins var ég óvægnasti gagnrýnandi Fram- sóknarflokksins og alls þess sem mér sýndist hann standa fyrir. Þetta var á framsókn- aráratugnum. Það sem var m.a. merkilegt við þennan áratug var að hann stóð illu heilli í hálfan annan, frá 1971 til 1987. Á þessu tíma- bili var Framsóknarflokkurinn því sem næst óslitið við völd, framan af undir forystu Ólafs Jóhannessonar, en síðan undir forystu Steingríms. Það var á þessum tíma sem verð- bólgan varð kerfislæg í stjórn- arfarinu. Og stjórnmálamenn kunnu það helst til ráða að bregðast við með gengisfellingu, þegar allt var komið í óefni. Þjóðin var lokuð inni í vítahring óðaverðbólgu, sem undir lokin var við það að fara úr bönd- unum. Framsóknarflokkurinn leit á það sem sitt helsta hlutverk að gæta viðskiptahagsmuna SÍS í helm- ingaskiptum við íhaldið. Sameig- inlega stóðu þessir flokkar vörð um úrelt landbúnaðarkerfi sem þjónaði hvorki hagsmunum bænda né neyt- enda í reynd. Á seinni hluta þessa tímabils gegndi Steingrímur flest- um þeim ráðherraembættum sem máli skiptu – nema fjármálaráðu- neytinu. Ábyrgð hans var því mikil. Þetta heimasmíðaða ráðstjórn- arkerfi var sýnilega komið í þrot fyrir kosningarnar 1987. Það var ekki hægt að lappa upp á það miklu lengur. Hin skammlífa ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar réð ekki við vandann. Þegar hún gafst upp sner- um við Steingrímur Hermannsson, hinir fornu féndur, bökum saman. Vinstristjórnin 1988-91 undir for- ystu Steingríms og með aðild Al- þýðuflokks og Alþýðubandalags reyndist vandanum vaxin. Þessi rík- isstjórn skapaði þau pólitísku skil- yrði sem þurfti til að ná þríþættu samkomulagi verkalýðshreyfingar, vinnuveitenda og ríkisvalds til þess að brjótast út úr vítahring verðbólg- unnar með hinum frægu þjóðarsátt- arsamningum. Steingrímur átti þar persónulega góðan hlut að málum. Það var þessi ríkisstjórn sem kom verðbólgunni niður fyrir tveggja stafa tölu í fyrsta sinn frá því á við- reisnarárunum. Þessi ríkisstjórn kom fram marg- víslegum hagstjórnarumbótum í frjálsræðisátt. Hún tók fyrstu skref- in í átt til einkavæðingar banka- og fjármálakerfis, losaði um höft og bætti skilyrði heilbrigðs atvinnulífs. Þess ber að minnast að það var í tíð þessarar ríkisstjórnar, sem EES- samningurinn var að mestu efn- islega fullfrágenginn, þótt sú kerf- isbreyting í starfsumhverfi atvinnu- og viðskiptalífs, sem í samningum fólst, kæmi ekki fram fyrr en síðar. Vinstristjórn Steingríms Her- mannssonar (1988-91) og fyrsta rík- isstjórn Davíðs Oddssonar (1991-95) voru við völd á kreppuárum. Á þess- um árum 1988-94 var við að fást dýpstu efnahagslægð lýðveldistím- ans og þá sem varði lengst. Skýring- anna er að hluta til að leita í al- þjóðlegri efnahagslægð sem bættist ofan á hrun íslenska flokksræð- iskerfisins, sem ekki var lengur á vetur setjandi. Báðar þessar rík- isstjórnir sýndu í verki að þær voru vandanum vaxnar. Þetta voru um- bótastjórnir, sem breyttu þjóðfélag- inu mjög til hins betra, hvor með sínum hætti. Það var víst Churchill sem sagði að hann hefði engar áhyggjur af dómi sögunnar um sig, því að hann ætlaði að skrifa söguna sjálfur. Án þess að ég ætli að bera Steingrím saman við þetta mikilmenni breskr- ar sögu sakar ekki að geta þess að í öryggisskyni hefur Steingrímur sjálfur sagt sögu sína í þremur miklum bindum, það er að segja hann sagði söguna Degi B. Eggerts- syni sem endursagði okkur. Þar með gerði Steingrímur skyldu sína gagnvart sögunni. Það er svo sagn- fræðinganna að taka við og raða upp heildarmyndinni úr brotasilfri samtímans. Mér segir þó svo hugur um að dómur sögunnar um Stein- grím verði honum vilhallari þegar fram líða stundir, vegna sam- anburðar við eftirmenn hans. Mann- kostir Steingríms, sanngirni í garð samstarfsmanna jafnt sem andstæð- inga, einlægni í málflutningi og vel- vild gagnvart þeim sem höllum fæti standa, muni þá verða metin að verðleikum. Sú var tíð að Framsóknarflokk- urinn var stórveldi í íslenskum stjórnmálum. Nú er ljóst orðið að Steingrímur var sá seinasti af þeim formönnum Framsóknarflokksins sem héldu við völdum og áhrifum flokksins á öldinni sem leið, jafnvel lengur en efni og rök stóðu til. Þess- ir tímar eru liðnir og koma aldrei aftur. Það þrautseiga fólk, sem enn í dag gegnir kalli Framsóknarflokks- ins, hefur því ríkulega ástæðu til að líta með söknuði til baka til stór- veldistímabils Steingríms Her- mannssonar. Jón Baldvin Hannibalsson. Steingrímur Hermannsson þótti hafa næstum strákslegt yfirbragð þegar hann varð fyrst forsætisráð- herra Íslands og tók að mæta sem slíkur á vettvangi norrænnar sam- vinnu 1983. Hann var þá í blóma lífsins, vörpulegur keppnismaður og annálaður dugnaðarforkur til hverra þeirra verka sem hann gekk. Um þetta leyti hófust okkar kynni fyrir alvöru, þau urðu snemma vin- samleg og hafa ekkert gert nema batnað með árunum. Þótt aldurinn sæki auðvitað að nafna mínum eins og okkur öllum, þá er enn grunnt á stráknum í hon- um og dugnaðurinn og hugurinn er Steingrímur Hermannsson áttatíu ára Á afmælishátíð Reykjavíkur 200 ára á Arnarhóli Davíð Oddsson borgarstjóri, frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands, Ástríður Thorarensen, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Edda Guðmundsdóttir. Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni www.sjofnhar.is Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.