Morgunblaðið - 03.10.2008, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
ÍSLENSKA sjávarútvegssýningin í
Kópavogi var sett í gærmorgun í
skugga mikilla efnahagsþrenginga.
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra gerði ástandið að
umtalsefni í setningarræðu sinni.
Hann sagði að ríkisstjórnin væri
ákveðin í því að vinna einbeitt að
lausn þeirra mála.
Þá ræddi ráðherrann um mikil-
vægi íslensk sjávarútvegs. „Það er
áhugavert að nú er svo að sjá sem
æ fleiri geri sér betur grein fyrir
hlutverki atvinnugreina eins og
sjávarútvegs. Ekki síst þegar nýir
erfiðleikar steðja að. Það þarf ekki
að orðlengja það að hlutverk
sjávarútvegsins getur orðið enn
veigameira en áður og það sjáum
við af umræðunni sem á sér einmitt
stað þessa dagana. Þetta á klárlega
við á Íslandi en getur einnig skipt
máli annars staðar þar sem sjávar-
útvegur hefur kannski ekki skipt
jafnmiklu máli. Þetta þýðir hins
vegar að við verðum að gefa sjáv-
arútvgeginum svigrúm til hagræð-
ingar, við verðum að nýta okkur
nýjustu tækni, eins og þá sem við
sjáum hér á sjávarútvegssýning-
unni, í því skyni að auka arðsemi
og skapa meiri verðmæti úr sjáv-
arauðlindinni og skapa sjávar-
útveginum færi á því að vera í enn
ríkari mæli hornsteinn í efnahags-
lífinu,“ sagði Einar K. Guðfinnsson
í ræðu sinni.
Nýrri gagnaveitu um sjávar-
útveg hleypt af stokkunum
Hann upplýsti jafnframt að á
sýningunni myndi ráðuneyti hans
hleypa af stokkunum endurbættri
íslenskri gagnaveitu um sjávar-
útveg á vefslóðinni fisheries.is. Þar
geti að líta upplýsingar um vist-
kerfi og náttúru hafsins við Ísland,
sjálfbæra nýtingu auðlinda þess,
efnainnihald og heilnæmi sjáv-
arfangs.
Í dag er ætlunin að kynna á sýn-
ingunni eitt viðamesta verkefni ís-
lensks sjávarútvegs um þessar
mundir en það er umhverfismerki
íslenskra sjávarafurða.
Strax við opnun sýningarinnar í
Smáranum og Fífunni var mikill
mannfjöldi mættur og fjölmargir
gestir í flestum sýningarbásum. Að
þessu sinni taka 500 fyrirtæki þátt í
sýningunni frá 33 löndum og er
þátttakan erlendis frá meiri en
nokkru sinni áður. Starfsmenn
sýningarinnar og sýnenda skipta
hundruðum. Búist er við allt að 15
þúsund gestum á sýninguna.
Fjölmargir erlendir gestir sækja
sýninguna að þessu sinni og í fyrsta
sinn er boðið á sýninguna lykil-
mönnum, sem fara með ákvörð-
unarvald varðandi innkaup hjá sjáv-
arútvegsfyrirtækjum víða um heim.
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra gat þess í ræðu
sinni að sjávarútvegssýningin væri
stór viðburður á Íslandi, enda væri
„sjávarútvegurinn burðarás efna-
hagslífs okkar og landsmenn því
áhugasamir um það sem gerist á
vettvangi þessa atvinnuvegar.“ Ein-
ar sagði að það vekti furðu margra
sýnenda að hitta fyrir Íslendinga í
þúsundavís, alls staðar af landinu,
sem komi til þess að kynna sér það
sem efst væri á baugi, jafnvel þó
þeir vinni alls ekkert að neinu, sem
tengist sjávarútveginum.
Íslenska sjávarútvegssýningin
var fyrst haldin árið 1984.
Síðan hefur verið reglulegt sýn-
ingarhald, fyrstu árin í Laugardals-
höll, en síðan 1999 hefur sýningin
verið haldin í Kópavogi.
Sýningin verður opin í dag, föstu-
dag, frá klukkan 10 til 18 og á
morgun, laugardag, frá klukkan 10
til 16. Aðgangseyrir er 2500 krónur.
Sjávarútvegsráðherra segir hlutverk íslensks sjávarútvegs geta orðið enn veigameira en áður
Sýning opnuð í skugga
efnahagsþrenginga
Morgunblaðið/Kristinn
Bang Sjávarútvegsráðherra opnaði sýninguna formlega með byssuskoti.
Gestir Við opnun sýningarinnar voru fjölmargir mættir á svæðið.
KRISTJÁN L. Möller samgöngu-
ráðherra opnaði formlega lang-
drægt 3G-net Símans á sýningunni í
gær. Kristján hringdi í Sverri
Gunnlaugsson, skipstjóra á Gull-
berginu VE, og áttu þeir notalegt
kunningjaspjall, enda báðir frá
Siglufirði. Í myndsímanum mátti
sjá Sverri í brúnni, þar sem skipið
var statt 15 mílur suður af Vest-
mannaeyjum.
Netið, sem opnað var í gær, mun
gera sjómönnum kleift að nota far-
síma sína rétt eins og þeir væru í
landi, auk þess að bjóða háhraða
nettengingu með 3G-netlykli, að því
er fram kom í máli Sævars Freys
Þráinssonar, forstjóra Símans.
Sævar segir tilkomu nýja símans
boða mikla byltingu fyrir sjómenn.
Þeir geti verið í stöðugu sambandi
við vini og vandamenn í landi í
gegnum síma eða myndsíma. Einn-
ig geti þeir notað netið og þau þæg-
indi sem því fylgja, til að mynda
greitt reikninga, hlustað á útvarpið
eða lesið fréttir. Að auki verði auð-
veldara fyrir skipin að vera í sam-
bandi við útvegsfyrirtæki í landi.
Því megi segja að einangrun á Ís-
landsmiðum heyri sögunni til.
Langdræga 3G-netið mun ná yfir
öll miðin við Ísland og leysir af
hólmi gamla NMT-kerfið, sem not-
að hefur verið um langa hríð. Það
hefur gagnast vel í gegnum tíðina
en er orðið úrelt. Innan NMT-
kerfisins þurftu menn að vera á
ákveðnum stað á skipinu til að geta
hringt en framvegis verður hægt
að hringja alls staðar. Fram kom í
máli Sævars Freys, að nú væri nýi
búnaðurinn kominn um borð í 30 ís-
lensk skip. NMT-kerfið verður ekki
lagt niður fyrr en 3G-kerfið hefur
náð fullri dreifingu í flotanum.
Sævar Freyr lagði sérstaka
áherslu á það hve mikið öryggi fæl-
ist í því fyrir sjófarendur, að tengj-
ast nýja 3G-kerfinu. „Gefum okkur
sem dæmi að slys verði á sjó. Með
myndbandssímtölum eða sendum
myndum geta áhafnarmeðlimir
komið nánari lýsingu til björg-
unarfólks en ella, sem þá geta gert
viðeigandi ráðstafanir hvað varðar
björgun, búnað og sérfræðiþekk-
ingu.“
Morgunblaðið/Kristinn
Spjallað Kristján L. Möller ræðir við Sverri skipstjóra á Gullberginu, sem
sést á skjánum í bakgrunni, þar sem hann er staddur á miðunum við Eyjar.
Sjómenn geta
framvegis borgað
reikninga á hafi úti
Í HNOTSKURN
»Langdræga 3G-netið erein af þremur nýjum
lausnum Símans hvað varðar
samskipti á sjó.
»Kerfið mun leysa af hólmiNMT-kerfið, sem er orðið
úrelt. Gamla kerfinu verður
þó ekki lokað fyrr en allur
flotinn er kominn með aðgang
að því nýja.
»Nýja kerfið er talið byltingí öryggismálum íslenskra
sjómanna.
UMMÆLI um Þóru Guðmundsdótt-
ur, sem oftast er kennd við Atlanta,
og birtust í Séð&heyrt í nóvember
2006 voru ómerkt í Hæstarétti í gær.
Jafnframt var Eiríkur Jónsson, rit-
stjóri ritsins, dæmdur til að greiða
Þóru 500.000 krónur í miskabætur.
Ummælin ómerktu voru í grein
um fasteignaviðskipti Þóru en óum-
deilt var í málinu að greinin var rituð
af Eiríki Jónssyni. Þau ummæli sem
dæmd voru ómerk voru eftirfarandi:
„Þóra er blönk.“„Þóra Guðmunds-
dóttir í Atlanta hefur látið byggja
stærsta einbýlishús í Kópavogi í
Asparhvarfi en gallinn er bara sá að
hún hefur ekki enn borgað krónu í
því.“
„Hann er að bíða eftir 120 millj-
ónum frá einni ríkustu konu lands-
ins. Sjálfur er hann farinn að halda
að Þóra sé blönk.“
„Svanur í Trompverki segist hafa
ætlað að afhenda Þóru húsið fyrir ári
en ekki gert það þar sem hún hafi
ekki enn borgað krónu í því.“
Í niðurstöðu Hæstaréttar kom
fram að telja yrði að hluti þeirra um-
mæla sem Eiríkur hafði ritað fælu í
sér ærumeiðandi móðgun í garð
Þóru. Staðfest var niðurstaða hér-
aðsdóms um að ummælin væru til
þess fallin að sverta ímynd Þóru sem
fjárfestis. Með vísan til þess að fram-
setning greinarinnar hefði verið til
þess fallin að auka sölu blaðsins var
niðurstaða Héraðsdóms Reykjavík-
ur um upphæð miskabótanna stað-
fest.
Eiríkur var jafnframt dæmdur til
að greiða henni 350.000 krónur í
málskostnað og samtals nemur
málskostnaður, sem hann var
dæmdur til að greiða, rúmlega 1,3
milljónum króna.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Árni Kolbeinsson, Garðar
Gíslason og Markús Sigurbjörnsson.
Lögmaður Þóru var Sveinn Andri
Sveinsson hrl. en Kristinn Bjarna-
son hrl. flutti málið fyrir Eirík Jóns-
son.
Ummælin voru
ærumeiðandi
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í
máli, sem Árdegi hf., sem rekur
Skífuna, höfðaði gegn Samkeppn-
iseftirlitinu. Stofnunin komst að
þeirri niðurstöðu að Árdegi skyldi
greiða 65 milljónir króna í stjórn-
valdssekt fyrir brot gegn samkeppn-
islögum og hafa bæði héraðsdómur
og Hæstiréttur staðfest það.
Málið á sér nokkuð langan að-
draganda og er ekki það fyrsta sem
Skífan hefur höfðað á hendur sam-
keppnisyfirvöldum. Í desember árið
2001 var Skífunni, með ákvörðun
samkeppnisráðs, gert að greiða 25
milljónir króna í sekt vegna samn-
ings sem gerður var við Aðföng ehf.
um sölu á geisladiskum í verslunum
Baugs. Árdegi gerði tvo samninga
við Hagkaup í apríl 2003 og sept-
ember 2004 um sölu á tónlist-
argeisladiskum, kvikmyndum og
tölvuleikjum. Var í samningunum
m.a. kveðið á um að hillupláss og
vöruúrval Árdegis í verslunum Hag-
kaupa skyldi vera í samræmi við
markaðshlutdeild hans. Þá skyldu
Hagkaup fá stighækkandi afslátt
næðu viðskipti félagsins tiltekinni
fjárhæð á tilteknum tíma.
Samkeppniseftirlitið komst að því
árið 2006 að með samningunum
hefði félagið brotið gegn samkeppn-
islögum. Hlaut Árdegi 65 milljónir
króna sekt. Áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála staðfesti úrskurðinn og
einnig héraðsdómur og Hæstiréttur.
Langvinn og alvarleg brot
Í niðurstöðu héraðsdóms var talið
að ákvæði samninganna um fram-
stillingu og hlutfall vöruúrvals í af-
þreyingarvörum væru til þess fallin
að hindra virka samkeppni og að af-
sláttarkerfið hefði enn fremur verið
til þess fallið að útiloka aðra aðila frá
viðskiptum við Hagkaup. Ekki var
fallist á það með Árdegi að brotavilja
hefði skort af hálfu félagsins. Hefðu
brotin verið fullframin við gerð
samninganna og skipti þá engu máli
þótt einstök ákvæði þeirra hefðu
ekki komist til framkvæmda.
Við ákvörðun sektar var litið til
þess að brotin voru umfangsmikil,
alvarleg og stóðu lengi. Þá yrði ekki
framhjá því litið að félaginu hefði áð-
ur verið gerð sekt vegna sambæri-
legra brota og yrði ekki séð að það
hefði haft áhrif til varnaðar frekari
brotum félagsins.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Árni Kolbeinsson, Garðar
Gíslason, Gunnlaugur Claessen,
Ingibjörg Benediktsdóttir og Mark-
ús Sigurbjörnsson.
Andri Árnason hrl. og Þórey S.
Þórðardóttir hdl. fluttu málið fyrir
Árdegi og Karl Axelsson hrl. og Ei-
ríkur Elís Þorláksson hdl. fyrir
Samkeppniseftirlitið.
65 milljóna króna sekt
Árdegis stendur óhögguð
Samkeppniseftirlitið sýknað í Hæstarétti af kröfum Árdegis