Morgunblaðið - 03.10.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2008 17
Hagstofan skoðar þessa dagana
hvernig á að flokka útflutning á
bifreiðum og tækjum. Stofnunin
hefur ekki yfirlit um fjölgun út-
fluttra bifreiða það sem af er ári,
en nokkur umræða hefur verið um
slíkan útflutning.
Auður Ólína Svavarsdóttir,
deildarstjóri á Hagstofunni, segir
að það sé mismunandi hvernig fyr-
irtækin meðhöndli bíla sem verið
hafa um tíma á hafnarbakkanum.
„Sumir senda bílana aftur til fram-
leiðenda án þess að þeir fari í raun
nokkurn tímann inn í landið. Í öðr-
um tilvikum finnast kaupendur er-
lendis og í þeim tilvikum virðist
vera um hreinan útflutning að
ræða.
Það sem skiptir öllu máli er að
meðhöndlunin sé rétt og í sam-
ræmi við það sem gerist í öðrum
tollaflokkum. Þegar meta á utan-
ríkisverslun er reglan sú að kanna
hvort efnislegar auðlindir lands
aukist eða minnki. Þess vegna get-
ur ákveðin verslun verið á gráu
svæði hvað þetta varðar og það
virðist eiga við í þessu tilviki,“
segir Auður.
Óljóst hvernig flokka á útflutning bíla
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
ÞAÐ sem af er ári hafa Kraftvélar
flutt út vinnuvélar til annarra landa
fyrir um 300 milljónir króna. Mest
eru þetta notaðar vélar sem fyrir-
tækið hefur tekið upp í við kaup fyr-
irtækja á nýjum tækjum. Kraftvélar
hafa reyndar flutt út tæki í nokkur
ár, en þegar gengi krónunnar tók að
síga urðu þetta fýsilegri viðskipti og
útflutningurinn jókst.
Að sögn Björns Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Kraftvéla, er fyrir-
tækið með verðskrár í evrum. Það á
jafnt við vélar sem fyrirtækið kaupir
frá útlöndum og selur síðan áfram,
hvort sem er innanlands eða utan. „Í
vor þegar krónan byrjaði að dala
vorum við með lager af vélum, sem
við höfðum tekið upp í á lægra gengi
á seinni hluta síðasta árs eða byrjun
þessa. Við gátum gert okkur mat úr
þessu og höfum flutt út meira af not-
uðum tækjum en áður,“ segir Björn.
Vélar til Arabalanda
Framan af fór mikið af tækjunum
á Evrópumarkað, en þegar eftir-
spurn minnkaði þar leitaði fyrirtæk-
ið á fjarlægari slóðir. „Við höfum selt
vélar til Arabalandanna og höfum
verið að leita fyrir okkur í Austur-
Evrópu og Afríku. Þá gátum við
stýrt hluta af vélum, sem við vorum
búnir að panta, til dótturfélags okkar
í Danmörku. Á þessu ári erum við
búnir að selja notaðar vélar fyrir
tæplega 700 milljónir og þar af hafa
tæki fyrir um 300 milljónir farið til
útlanda,“ segir Björn.
Hann segir að svo virðist sem lítil
sem engin nýliðun sé í verktakageir-
anum. Stórir, reyndir verktakar
haldi sínu striki, meðan þeir minni
hafi minnkað við sig. Þá hafi sala á
minni tækjum fyrst dregist saman
þegar harðnaði á dalnum.
Notaðar vinnu-
vélar fluttar út
Kraftvélar hafa flutt út fyrir 300 millj-
ónir í ár Lítil nýliðun meðal verktaka
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Bergur-
Huginn hlaut íslensku sjáv-
arútvegsverðlaunin á Sjáv-
arútvegssýningunni í gær fyrir
framúrskarandi íslenska útgerð og
fær leyfi til að nota merki verð-
launanna á kynningarefni sitt.
Þeir voru því kampakátir fulltrú-
ar félagsins þegar þeir tóku við
verðlaununum í gær. Á myndinni
eru (efri röð frá vinstri) Þorsteinn
Ingólfsson skrifstofusjóri, Jón S.
Logason, skipstjóri á Smáey, Héð-
inn Karl Magnússon, stýrimaður á
Vestmannaey, Birkir Kristinsson,
annar eigenda Bergs-Hugins, Sig-
urður G. Sigurjónsson, skipstjóri á
Bergey, Óskar Þór Kristjánsson,
stýrimaður á Bergey, Guðmundur
Alfreðsson útgerðarstjóri, Kristinn
Valgeirsson, vélstjóri á Vest-
mannaey, Magnús Kristinsson út-
gerðarmaður og Birgir Þór Sverr-
isson, skipstjóri á Vestmannaey.
Í neðri röð f.v. eru: Guðni Hjör-
leifsson netagerðarmeistari, Arnar
Richardsson þjónustufulltrúi, Ósk-
ar Ólafsson, vélstjóri á Bergey, Pét-
ur Eyjólfsson, vélstjóri á Bergey,
Ari Wendel frá Landsbankanum
sem afhenti verðlaunin og Jón Val-
geirsson, stýrimaður á Bergey.
Verðalaunaafhendingin fór fram
í Turninum í Smáralind og fengu 12
aðrir aðilar verðlaun.
Bergur-Huginn skaraði fram úr í útgerð
Morgunblaðið/G.Rúnar
L
jó
sm
.:
M
a
ry
E
ll
e
n
M
a
rk