Morgunblaðið - 03.10.2008, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
KOMINN er tími til að Íslendingar
taki afstöðu til þess hvort Ísland eigi
að ganga í Evrópusambandið og taka
upp evruna. Málið er orðið enn
brýnna en áður og þolir enga bið.
Á þessum nótum setti Kristján
Gunnarsson, formaður Starfsgreina-
sambands Íslands, málþing sam-
bandsins og Samtaka iðnaðarins um
mögulega aðild Íslands að ESB og
upptöku evru í Reykjavík í gær.
Jón Steindór Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
mælti einnig fyrir ESB-aðild, með
þeim orðum að málþingið gæti mark-
að tímamót í umræðunni.
Sá tími væri enda liðinn að sam-
tökin væru hrópandinn í eyðimörk-
inni í röksemdafærslu fyrir aðild.
Þungt hljóð var í fundargestum og
reyndu sumir að víkja áhyggjum
tímabundið til hliðar með því að slá á
létta strengi um hrun krónunnar.
Kristjáni var hins vegar ekki hlátur
í hug í ræðu sinni og sagði nauðsyn
krefja að hægt væri að gera kjara-
samninga á „vitrænan hátt“, þar sem
forsendur samninga héldu.
Þrír sérfræðingar voru fengnir til
að ræða ýmsar hliðar ESB-aðildar
(sjá ramma), þeirra á meðal Ólafur
Darri Andrason, hagfræðingur Al-
þýðusambands Íslands, sem lét þau
orð falla að ESB-aðild og evruupp-
taka myndu hafa „gríðarleg áhrif á
vinnumarkaðinn“. Þegar kæmi að að-
ild væri „vegferðin álíka verðmæt og
fyrirheitna landið sjálft“.
Mat hans var að eins og staðan
væri nú væru fjármál hins opinbera
ekki tekin nógu föstum tökum.
Fljótafgreiddir málaflokkar
Aðalsteinn Ísleifsson, lektor við
Háskólann í Reykjavík, var einn
framsögumanna, en hann á sæti í
Evrópunefndinni sem hélt nýlega ut-
an til fundar við ráðamenn í Brussel.
Vitnaði hann þar til þeirra um-
mæla Olli Rehn, framkvæmdastjóra
stækkunar hjá ESB, að við aðildar-
viðræður Íslendinga og forystu-
manna sambandsins yrðu 24-26
málaflokkar eða „kaflar“, af alls 34,
afgreiddir strax á fyrstu vikunum.
Eftir stæðu 8-10 málaflokkar eða
kaflar sem ekki væru í EES-samn-
ingnum, þeirra helstir sjávarútvegur,
landbúnaður, efnahags- og mynt-
bandalagið (evran) og viðskiptastefna
(tollabandalag).
Aðalsteinn vísaði einnig til gagna
Eurostat um að vextir á húsnæðislán-
um hefðu farið lækkandi í Portúgal,
Finnlandi, á Spáni og Írlandi frá því
að ESB-umsókn lá fyrir í umræddum
ríkjum.
Myndi leysa stór vandamál
Að hans mati myndu vextir á hús-
næðislánum að óbreyttu lækka mjög
mikið hér á landi við inngöngu í sam-
bandið (sjá ramma), ásamt því sem
vandamál samfara skammtímaskuld-
bindingum fjármálastofnana og
„hrikalegum gengissveiflum“ myndu
leysast við ESB-aðild.
Seðlabanki Íslands hefði „ekki bol-
magn til þess að takast á við þetta
verkefni. Hann sagði sjávarútveginn
þarfnast evrunnar og vitnaði til orða
Reinhard Priebe, sérfræðings hjá
ESB, um að Íslendingum myndi
koma á óvart „hversu lítið mun breyt-
ast í íslenskum sjávarútvegi við inn-
göngu í Evrópusambandið.
Ísland væri ekki örríki heldur
„smáríki sem þorir og getur starfað á
jafnréttisgrundvelli með þeim ríkjum
sem við eigum mest sameiginlegt
með“.
Bent á kosti evruupptöku
Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins telur málþing um evruna kunna að marka tímamót
Lektor við Háskólann í Reykjavík telur að aðildarumsókn að ESB myndi ganga hratt fyrir sig
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Evrumál Finninn Daniel Valtakari var á meðal ræðumanna á málþingingu í gær og lét þess þar getið að almennt
verðlag hefði lækkað í Finnlandi eftir upptöku evrunnar. Hann segir iðnrekendur þar í landi jákvæða í garð ESB.
Í HNOTSKURN
»Aðalsteinn Ísleifsson lekt-or vísaði til rannsóknar Ei-
ríks Bergmanns og Jóns Þórs
Sturlusonar um að mat-
vælaverð muni lækka um 25%,
skór og föt um 35% almennt
verðlag um 15% við upptöku
evru og ESB-aðild.
»Eins og staðan í íslenskahagkerfinu er núna þýða
háir vextir og verðbólga að Ís-
land er mjög langt frá því að
uppfylla þau skilyrði sem sett
eru fyrir evruupptöku.
Vinnumarkaðurinn er nægjanlega sveigjanlegur til þess
að Íslendingar geti tekið upp evru án þess að þurfa að
óttast mikið og langvinnt atvinnuleysi, að mati Ólafs
Darra Andrasonar, hagfræðings Alþýðusambands Ís-
lands, eins framsögumanna á evruþinginu í gær.
Ólafur Darri rifjaði upp mikla fólksflutninga á milli
landshluta og straum erlends vinnuafls til landsins,
breytingar sem hann taldi til vitnis um sveigjanleika á
vinnumarkaðnum. Þá væri launasveigjanleiki á mark-
aðnum, ásamt því sem vinnutími væri hér breytilegri en í
flestum löndum. Með sveigjanleika vinnumarkaðarins á
Íslandi í huga væri „áhættan af því að missa sjálfstæða
peningamálastefnu [...] því ekki eins mikil og ætla mætti í fyrstu“.
Taldi Ólafur Darri stöðugra hagkerfi, lægri vexti, minni viðskiptakostn-
að, lækkað verðlag og aukinn kaupmátt á meðal jákvæðra áhrifa ESB- og
evruaðildar. Hins vegar myndu Íslendingar missa sjálfstæða stjórn á
peningamálum, á sama tíma og upptaka evru mundi kalla á agaðri hag-
stjórn en verið hefði.
Sveigjanleikinn nægur
Ólafur Darri
Andrason
Aðalsteinn Ísleifsson, lektor og forstöðumaður MBA-
náms við Háskólann í Reykjavík, fjallaði í erindi sínu um
kosti evruupptöku og Evrópusambandsaðildar.
Að mati Aðalsteins myndi evruupptaka og ESB-aðild
leiða til þess að vextir lækkuðu í sama vaxtastig og á
evrusvæðinu. Það myndi aftur þýða að vaxtagreiðslur af
20 milljóna húsnæðisláni lækkuðu um 700.000 á ári, mið-
að við 4–5% óverðtryggða vexti á evrusvæðinu.
Þá myndu gengissveiflur gagnvart evru hverfa og við-
skiptakostnaður þurrkast út. Íslenskir bankar myndu fá
traustan lánveitanda til þrautavara í Seðlabanka Evr-
ópu, jafnframt því sem rannsókn Francis Beeton og Þór-
arins G. Péturssonar bendi til að viðskipti við evrusvæðið muni aukast um
60% og landsframleiðsla um 6–8%. Aðalsteinn telur að jákvæð áhrif í átt til
stöðugleika myndu koma í ljós þegar við umsókn að ESB, en að því gefnu
að hún yrði lögð fram á þessu ári mætti gera sér vonir um aðild 1. janúar
2010 og í kjölfarið aðild að gjaldmiðlasamstarfinu (ERM II) 1. febrúar/1.
mars sama ár og svo upptöku myntar og seðla 1. janúar 2013.
Vaxtagreiðlur myndu lækka
Aðalsteinn
Ísleifsson
Finninn Daniel Valtakari, sérfræðingur hjá norrænu
verkalýðssamtökunum Industrianställda i Norden (IN),
sem hafa yfir 1,2 milljónir félagsmanna, gerði í erindi
sínu á málþinginu grein fyrir afstöðu íbúa Norður-
landanna til Evrópusambandsins og evrunnar.
Að hans sögn eru Finnar almennt jákvæðir gagnvart
Evrópusambandinu, líkt og verkalýðsfélög þar í landi,
þótt vissrar tortryggni gæti hjá almenningi. Svíar, sem
gengu eins og Finnar í ESB árið 1995, séu einnig tor-
tryggnir, líkt og Danir og Norðmenn, á sama tíma og
samtök iðnrekenda í löndunum fjórum séu almennt já-
kvæð gagnvart ESB. Valtakari sagði þátttöku Finna í samstarfinu við ESB
mjög mikla og rifjaði upp að eftir fall Sovétríkjanna hefði þörfin fyrir við-
skipti við Evrópuríkin orðið enn meiri en áður. Á áttunda og níunda ára-
tugnum hefðu orðið miklar sveiflur í hagkerfinu, en að eftir upptöku evr-
unnar ríkti nú góður stöðugleiki í efnahagslífinu. Almennt hefði verðlag
lækkað eftir upptöku evrunnar, þar með talið verðlag á matvöru, og vextir
lækkað mjög mikið frá því sem verið hefði.
Sveiflurnar tilheyra liðinni tíð
Daniel Valtakari
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„FÓLK hefur verið að leita til okkar
allt þetta ár og það hefur stigmagn-
ast mjög síðustu tvær vikur. Eftir
þessi tíðindi með Glitni vilja margir
fá að vita hver þeirra réttarstaða er
ef bankinn fer á hausinn,“ segir
Hildigunnur Hafsteinsdóttir, yf-
irmaður kvörtunar- og leiðbein-
ingaþjónustu Neytendasamtakanna.
Til að bregðast við fjölgun fyr-
irspurna leituðu Neytendasamtökin
til viðskiptaráðuneytisins um svör
við helstu spurningum sem brunnið
hafa á fólki og eru svörin nú birt á
heimasíðu þeirra, www.ns.is
„Þetta er staða sem hefur í raun-
inni ekki komið upp áður í samfélag-
inu. Það er að gerast um allan heim
að bankarnir fara illa og þótt við
vonum auðvitað að ekki komi til þess
hér þá er eðlilegt að fólk kanni rétt
sinn svo það sé örlítið undirbúið ef
allt fer á versta veg.“
Hildigunnur nefnir m.a. að þeir
sem eigi háar fjárhæðir á bankabók
ættu kannski að huga að því að
geyma ekki öll sín egg í sömu körfu.
„Þá er kannski ekki vitlaust að
skipta spariféinu niður á milli banka
til að tryggja lágmarksbætur frá
Tryggingasjóði.“ Hildigunnur segir
að einnig sé von á fræðslu frá Fjár-
málaeftirlitinu á næstunni.
Eðlilegt að kanna rétt sinn
Hvað ef? Komi til gjaldþrots viðskiptabanka tryggir Tryggingasjóður rétt
sparifjáreigenda að einhverju marki, skv. síðu Neytendasamtakanna.
Hvað gerist ef
bankinn minn fer
á hausinn?
VINSÆLDIR ríkisstjórnarinnar
minnka á ný eftir að hafa aukist í
ágúst, ef marka má Þjóðarpúls
Gallup. Um 51%
þátttakenda í
þjóðarpúlsinum
sagðist styðja
ríkisstjórnina en
þetta hlutfall var
54% í ágúst. Að-
eins rúm 18%
sögðust ánægð
með störf stjórn-
arandstöðunnar
en tæplega
þriðjungur óánægður. Rúmlega
helmingur svarenda sagðist hvorki
vera ánægður né óánægður. Jó-
hanna Sigurðardóttir er lang-
vinsælasti ráðherrann í rík-
isstjórninni samkvæmt
könnuninni. Rétt rúm 60% eru
ánægð með hennar störf, örlítið
fleiri en í síðustu könnun, og 12%
óánægð. Árni Mathiesen er óvin-
sælastur, tæplega 80% eru
óánægð með störf hans.
Jóhanna er
vinsælust
Jóhanna
Sigurðardóttir
STJÓRN Samtaka fjárfesta kallar
eftir ákveðnum svörum vegna Glitn-
ismála til að skapa traust á fjár-
málamarkaði. Spurt er hvað hafi
breyst svo skyndilega eftir að Glitn-
ir taldi sig hafa gengið frá fjármögn-
un út árið 2008 og vel inn á næsta ár
og hvers eðlis þau lánsloforð hafi
verið sem Glitnir taldi sig hafa frá
erlendum bönkum um eigin fjár-
mögnun. Spurt er hvaða skuldabréf
það voru sem Glitnir bauð Seðla-
bankanum að veði og hvaða gögn
Seðlabanka, ríkisstjórnar og Glitnis
lágu til grundvallar því mati sem
fram fór á skuldabréfunum sem
Glitnir bauð að veði? Hvaða gögn
sömu aðila lágu til grundvallar því
mati sem fram fór á eignarhlutfalli
ríkissjóðs við kaupin á hlut í bank-
anum? Loks hvort Glitnismenn og
lögg. endurskoðendur, Pricewater-
houseCoopers, geti lýst því yfir að í
verðbréfasjóðum Glitnis hafi aðeins
verið bréf þeirrar tegundar, og í
þeim hlutföllum, sem yfirlýst stefna
hvers sjóðs segir til um?
Fjárfestar
vilja svör