Morgunblaðið - 03.10.2008, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2008 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
aði í 206,4 stigum í lok viðskipta.
Veiktist krónan um 2,1% í við-
skiptum gærdagsins.
Gengi evru var 156 krónur í lok
viðskipta í gær, Bandaríkjadollars
112 krónur og punds 199 krónur.
Hálfur bjór
Allir finna fyrir lækkun á gengi
krónunnar. Ein birtingarmynd þess
er til að mynda verð á bjór í útlönd-
um. Segja má að Íslendingar fái nú
að jafnaði einungis um hálfa bjór-
krús fyrir sömu peninga og gáfu
fulla krús fyrir nokkrum mánuðum.
gretar@mbl.is
ÍSLENSKA krónan er í hópi þeirra
gjaldmiðla í heiminum sem hafa
staðið sig hvað verst í því að halda
verðgildi sínu síðastliðið ár. Ein-
ungis gjaldmiðlar Túrkmenistan og
Simbabve eru neðar á lista Bloom-
berg-fréttastofunnar yfir þróun á
gjaldeyrismörðum, en á þeim lista
eru alls 179 gjaldmiðlar. Sérfræð-
ingur hjá SEB-bankanum í Svíþjóð
segir við Bloomberg að hér á landi
sé algjör gjaldeyriskreppa.
Krónan hélt áfram að veikjast í
gær og náði gengisvísitalan enn á
ný methæðum. Hæst fór vísitalan í
213 stig innan dagsins en hún end-
Krónan heldur einna
verst verðgildi sínu "#
$%
" % &' ' #"' #' ( &
Allt er óljóst um
framtíð stórs
fasteignaverk-
efnis í Los Angel-
es sem Kaupþing
er þátttakandi í
vegna stöðu á
mörkuðum.
Kaupþing keypti
ásamt Candy-
bræðrum, sem
eru um-
svifamiklir á breskum fast-
eignamarkaði, og Richard Caring,
sem á fjölda veitingahúsa og
klúbba, land í Beverly Hills fyrir
500 milljónir dollara á síðasta ári. Í
frétt dagblaðsins Telegraph segir
að Kaupþing hafi tjáð samstarfs-
aðilum sínum að óvíst sé hvort
bankinn taki á sig frekari fjárhags-
skuldbindingar vegna verkefnisins.
Kaupþing er í ábyrgð fyrir 60% hlut
af 350 milljóna dollara láni sem
greiða á í lok næstu viku.
Óvissa um
verkefni í LA
Kaupþing Óvissa
um verkefni í LA
Ákvæði þess efn-
is að erlendir
bankar sem veiti
vissum fjölda Íra
þjónustu geti
sótt um aðild að
írska sam-
komulaginu um
ríkistryggingu
skulda hefur
verið bætt við
það. Frumvarp
um samkomulagið hefur verið sam-
þykkt. Nýja ákvæðið nær til dæmis
til Ulster Bank, dótturfélags Royal
Bank of Scotland, og National Irish
Bank, dótturfélags Danske Bank.
Ulster Bank hefur þegar sótt um og
búist er við að NIB geri það líka.
camilla@mbl.is
Írska leiðin
fær fleirum
Trygging Erlendir
bankar hafa áhuga.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
„STEFNURÆÐAN var ekki um
neitt,“ sagði Guðni Ágústsson, for-
maður Framsóknarflokksins, í um-
ræðum um stefnuræðu forsætisráð-
herra á Alþingi í gærkvöldi.
Í gærdag mátti heyra í samtölum
við starfsfólk fjármálafyrirtækja að
grípa þyrfti til róttækra aðgerða til
að peningar héldu áfram að renna
um æðar íslenska fjármálakerfisins
og sporna gegn gífurlegri verðrýrn-
un krónunnar. Það fólk getur verið
sammála Guðna Ágústssyni að því
leyti að ekki var tilkynnt um sérstak-
ar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að
auka tiltrú á fjármálafyrirtækjum.
Aukið aðgengi að gjaldeyri telja
margir vera lykilatriði til að leysa úr
vandanum fyrst um sinn. Því hefur
lengi verið haldið fram, en nú af
meiri krafti en áður. Krafan er að
ríkið leggi sitt þyngsta lóð á vogar-
skálarnar með aðstoð Seðlabankans
og reyni allt til að opna aðgang fjár-
málastofnana að gjaldeyri. Erlend
fjármögnun er að sögn kunnugra að
lokast íslenskum fyrirtækjum.
Sú saga gekk eins og eldur í sinu í
gær að fulltrúar frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum væru hingað komnir
til að undirbúa neyðarlán til ís-
lenskra stjórnvalda. Það hefur ekki
verið staðfest. Fleiri óstaðfestar sög-
ur af ýmsum toga svifu á milli manna
enda jarðvegur góður fyrir sögu-
sagnir í núverandi umhverfi.
Krefjandi fjármögnun
Það versta sem getur gerst er að
fjármálakerfið geti ekki fjármagnað
sig sjálft. Lokað hefur verið fyrir
fjármögnunarleiðir og getur það
undið upp á sig ef ekki er brugðist
við. Þær neikvæðu fréttir sem hafa
borist frá Íslandi – yfirtaka ríkisins á
Glitni og lækkun lánshæfismats í
kjölfarið – gefa tilefni til að loka fyrir
viðskipti. Flestir vilja halda pening-
unum fyrir sig í lausafjárkreppu.
Skuldatryggingarálagið hefur rokið
samkvæmt Bloomberg sem gefur
vísbendingar um að erlendir fjár-
festar óttast hið versta á Íslandi.
Gjaldeyririnn frosinn
Gjaldeyrismarkaðurinn er nánast
frosinn. Þó að það sé ekki yfirlýst
stefna þá er nánast vonlaust að eiga
gjaldeyrisviðskipti við stóru bank-
ana. Kjörin sem fást eru mjög óhag-
stæð og menn þurfa að rökstyðja við-
skiptin. Segja má að gjaldeyrir sé
skammtaður því allir vilja halda hon-
um við þessar aðstæður. Á meðan
fellur krónan hratt.
Verðrýrnun krónunnar verður til
þess að innflutningsfyrirtæki verða
fyrir verulegu höggi. Um mánaða-
mótin var tilkynnt um tilvonandi
verðhækkanir til að standa undir
kostnaði við innkaup. Verðbólgan
eykst, lánin hækka og kjör almenn-
ings versna í kjölfarið.
Á meðan fellur hlutabréfavísital-
an. Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa lífeyrissjóðir verið að
selja hlutabréf til að minnka áhættu
sjóðsfélaga. Lækkunin hefur áhrif
um allt kerfið því mikið af skuldum
er tryggt með veðum í hlutabréfum.
Því er búist við auknum afskriftum
þegar dæmið verður gert upp.
Gjaldeyriskreppan gerir
alla fjármögnun erfiða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Biðin Viðskiptavinir bankanna hafa þurft að bíða lengi eftir svörum um
hvernig best sé að bregðast við. Vantraust á kerfið er eitt veikleikamerkið.
Gjaldeyrismarkaðurinn á Íslandi er nánast frosinn og sáralítil viðskipti stunduð
Í HNOTSKURN
»Starfsfólk fjármálafyr-irtækja óttast að lokað
verði fyrir lánalínur er-
lendis frá.
»Nú þegar eru skulda-bréf fyrirtækja farin að
falla á gjalddaga vegna
lausafjárskorts.
»Tilkynnt var um mán-aðamótin að innflutn-
ingsfyrirtæki þyrftu að
hækka verð.
»Lífeyrissjóðir hafa ver-ið að selja hlutabréf til
að minnka áhættu sjóðs-
félaga.
)*+ )*+
!
"#
$
%$
)*+ ,+
%&'!'
'
%$#
($'
-. /"
0 %&!
%&'""
!$
$(
2345
-6+
&"
(&##
%$
$(
)*+
)*+
!&%!
#
($'
$
„ÞESSAR sögusagnir eru ótrúlega
lífseigar,“ segir Steinn Logi Björns-
son, forstjóri Húsasmiðjunnar, beð-
inn að staðfesta fregnir um upp-
sagnir og rekstrarerfiðleika hjá
fyrirtækinu. Hann segir efnahags-
ástandið vissulega hafa áhrif á fyr-
irtæki eins og Húsasmiðjuna en að
engum starfsmönnum hafi verið
sagt upp um mánaðamótin. Leitað
hafi verið leiða til sparnaðar und-
anfarið ár og einhverjar uppsagnir
hafi verið þar á meðal. Það sé ekki
óeðlilegt hjá .1000 manna fyr-
irtæki. camilla @mbl.is
Segja ekki
upp núna
LAGERSALA
í Faxafeni 11.(Gamla Leikbæjarhúsinu)
Jólavörur, gjafavörur, servéttur, kerti og margt fleira
Tökum upp daglega nýjar vörur allt að 80% afsláttur
Opið frá kl 11-18 alla daga lika um helgar