Morgunblaðið - 03.10.2008, Side 25

Morgunblaðið - 03.10.2008, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2008 25 Erfiðir tímar Það eru viðsjárverðir tímar í lífi íslensku þjóðarinnar og mikið reynir á forystumenn hennar. Ástæðan fyrir því að Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, setti upp hjálm í gær er ekki fjármálakreppan heldur fékk hann það hlutverk að opna sjávarútvegssýninguna í Kópavogi með því að skjóta af fallbyssu. Honum gekk vel að skjóta. Kristinn Blog.is Bjarni Harðarson | 2. október Bitist um ríkisbankann … Er Glitnir ríkisbanki – eða er það bara hugmynd sem Jón Ásgeir og Þorsteinn Már geta hent út af borð- inu? Ef marka má orð Pét- urs Blöndal í Kastljósinu í gær hefur stjórn Glitnis nú tímann fram að hluthafafundi til að selja norsku íbúðalánin sín og íslensku bílalán- in sem þeir vildu leggja að veði fyrir 600 milljóna evra láni hjá ríkinu … Meira: bjarnihardar.blog.is AFLEIÐINGA þess að ríkið samdi við stjórn Glitnis um kaup á 75% hlut í bankanum fyrir 600 milljónir evra gætir víða. Í kjölfar frétta af samkomulaginu hrundi gengi bréfa í Glitni um ríflega 2/3. Hluthafar Glitnis töp- uðu við þetta um það bil 150 milljörðum kr. En hlutur ríkisins hækkaði í verði um ríflega 100 milljarða kr. Stjórnarmenn í Glitni hafa látið stór orð falla um að ríkið hafi stillt þeim upp við vegg og að um þvingaða eignaupptöku hafi verið að ræða. Margir spyrja af hverju önnur mildari leið hafi ekki verið valin svo sem að veita Glitni lán. Bent er á að Glitnir hafi góða eig- infjárstöðu, hafi sýnt hagnað fram að þessu og hafi tiltölulega lítil út- lánatöp. Spurt er hvort ekki hafi verið ósanngjarnt af ríkinu að koma svona hart fram við eig- endur Glitnis þegar þeir þurftu einungis á hjálp að halda við að endurfjármagna erlent lán. En stjórnendur Glitnis höfðu rekið bankann með þeim hætti að ekki var borð fyrir báru. Þeir höfðu komið sér í þá stöðu að þeir gátu ekki staðið við skuldbind- ingar sínar. Bankinn var ekki bet- ur rekinn en svo. Það er vitaskuld höfuðsynd í rekstri banka eins og í öðrum rekstri að geta ekki staðið við skuldbindingar sínar. Góð eig- infjárstaða og traust eignasafn bætir ekki fyrir það. Stjórnendur Glitnis höfðu einfaldlega teflt of djarft. Viðbrögð ríkisins voru hárrétt. Hagsmunir skattborgara voru hafðir í fyrirrúmi. Eða af hverju ætti ríkið að hafa greitt hærra verð fyrir Glitni en nauðsynlegt var eða gert eigendum Glitnis á annan hátt betra tilboð en nauð- synlegt var? Var einhver sérstök ástæða til þess að verðlauna eig- endur Glitnis fyrir þá stöðu sem upp var komin? Ef hluthöfum Glitnis hefði verið gert betra tilboð hefði það verið á kostnað skattgreiðenda. Betra tilboð hefði einnig skapað slæmt for- dæmi. Allir vita að ríkið stendur á bak við bankakerfið. Í þessu felst trygging sem bankarnir hafa hingað til ekki greitt fyrir. Ef eigendur bankanna eru teknir vettlingatökum þegar þeir lenda í vandræð- um munu þeir einfaldlega taka meiri áhættu en góðu hófi gegnir, lenda oftar í vandræðum og leita oftar til ríkisins um hjálp. Kostn- aðurinn af slíku lendir á skatt- greiðendum og er í raun niður- greiðsla til handa eigendum bankanna. Rökin fyrir því að ríkið eigi að standa á bak við fjármálakerfið eru að fjármálastöðugleiki er mikilvægur fyrir almenna hag- sæld. Hættan er hins vegar sú að ríkið verðlauni óábyrga hegðun þegar það kemur illa stöddum bönkum til bjargar í nafni fjár- málastöðugleika. Það er því mik- ilvægt að björgunaraðgerðir rík- isins verðlauni ekki eigendur þeirra stofnana sem þurfa á neyð- araðstoð að halda. Slíkt er órétt- látt og veikir þann arðsemisaga sem hagkerfið byggist á. Viðbrögð annarra ríkja á síð- ustu vikum og mánuðum hafa í meginatriðum verið þau sömu og viðbrögð íslenska ríkisins. Banda- ríska ríkið setti það sem skilyrði fyrir aðkomu sinni að sölu Bear Sterns til JP Morgan að hluthafar Bear Sterns yrðu svo gott sem þurrkaðir út. Lehman Brothers var einfaldlega leyft að fara í gjaldþrot. Hluthafar Lehman fengu ekki neitt. Svipaða sögu er að segja um hluthafa AIG, Fannie Mae og Freddy Mac. Í öllum þessum tilfellum töpuðu hluthafar nánast öllu. Í Bandaríkjunum hef- ur gagnrýnin ef eitthvað er verið á þá leið að það hafi ekki verið nóg að þurrka út hluthafana. Margir telja að þeir sem lánuðu þessum stofnunum hefðu einnig átt að bera skarðan hlut frá borði í meira mæli en raunin var. Önnur rök sem sett hafa verið fram fyrir því að velja mildari að- ferð við að bjarga Glitni eru að gríðarlegt tap hluthafa Glitnis hafi skapað vandræði annars staðar í fjármálakerfinu. Horft er til þess að Stoðir riði nú til falls og að fall Stoða geti valdið mikl- um útlánatöpum hjá bönkunum. Eins höfðu aðrir hluthafar Glitnis veðsett hlut sinn og eiga nú í vandræðum með að standa í skil- um. En það er alls ekki ljóst að mildari leið – svo sem lán upp á 600 milljónir evra – hefði haft í för með sér minna fall á verði hlutabréfa í Glitni. Fréttir um slíkt hefðu falið í sér sömu upp- lýsingar um getu Glitnis til þess að fjármagna sig. Og einnig sömu upplýsingar um veikari gjaldeyr- isstöðu ríkisins. Slík aðgerð hefði falið í sér óvissu um það hvað myndi gerast ef Glitnir lenti í frekari vandræðum með að fjár- magna sig. Og hún hefði ekki þann kost að bæta til muna eig- infjárstöðu Glitnis. Fall Glitnis er alvarlegur skell- ur fyrir íslenska hagkerfið. Sem betur fer var það hins vegar höndlað rétt af stjórnvöldum. Mikilvægasta verkefni stjórn- valda nú er að tryggja það að annað viðlíka áfall eigi sér ekki stað. Þetta eru óvenjulegir tímar sem kalla á óhefðbundnar að- gerðir af hálfu stjórnvalda. Fjár- málastöðugleiki verður að hafa algeran forgang fram yfir önnur markmið þar til hið versta er yf- irstaðið. Eftir Jón Steinsson » Fall Glitnis er alvar- legur skellur fyrir íslenska hagkerfið. Sem betur fer var það hins vegar höndlað rétt af stjórnvöldum. Höfundur er lektor í hagfræði við Columbia-háskóla í New York. Átti að velja aðra leið? Jón Steinsson RÁÐHERRA ferða- mála, Össur Skarphéð- insson, sýndi um miðjan september að hann get- ur verið snar í snún- ingum. Í ljósi sam- dráttar í ferðaþjónustu fékk hann ríkisstjórnina til að samþykkja 50 milljón króna framlag til að markaðssetja haust- og vetrarferðalög til Ís- lands. Ferðabransinn leggur aðrar 50 millj- ónir á móti. Hingað til hafa er- lendir ferðamenn frek- ar fengið hroll yfir verðlaginu en veð- urfarinu. En gjaldeyr- isþróunin hefur leitt til þess að Ísland er ekki lengur dýrt ferðamannaland, heldur tiltölulega ódýrt. Íslenska ferðaþjónustan er í aðstöðu sem hún hefur ekki þekkt áður. Nýir mögu- leikar hafa opnast. Þetta þarf að kynna rækilega, því að erlendir ferðamenn spýta gjaldeyri inn í þjóðarbúið. Þeir eru risastór auð- lind, en það þarf að bera sig eftir henni. Sem dæmi má nefna að árlega leggur aðeins 0,1% breskra ferða- manna leið sína hingað til lands. Ef við fengjum 0,3% þeirra, þá væri það fjölgun um rúmlega 100 þúsund ferða- menn. Um allan heim er til fólk sem hefur dreymt árum saman um að ferðast einhvern daginn til Íslands, en ekki talið sig hafa efni á því. Það þarf að fá að vita af því að Ísland er orðið sam- keppnisfært. En ferða- þjónustan er of dreifð og vanmáttug til að sinna þessu kynningarstarfi almennilega. Hér þarf ríkisvaldið að koma til skjalanna af miklum krafti, enda hagnast þjóðin öll á fjölgun ferða- manna. Ferðaþjónustan hefur sjaldnast verið stór- gróðastarfsemi. En þetta er gefandi þjónustugrein sem veitir þúsundum manna atvinnu um allt land. Hún skilar svipuðum gjaldeyr- istekjum og stóriðjan. Það er ekki lítils virði. 50 milljónirnar eiga bara að vera fyrsta skrefið. Og peningarnir eru meira að segja til. Málið er að beina þeim í réttar áttir. Össur ferða- málaráðherra gæti til dæmis reynt að sannfæra félaga sína í ríkisstjórninni um að hætta við 450 milljón króna fjár- austur í gagnslitla heimssýningu í Kína. Setja peninginn frekar í að kynna Ísland fyrir ferðafólki. Nota tækifærið núna. Stökkva. Stökktu Össur Ólafur Hauksson skrifar um tækifæri í ferðaþjónustu Ólafur Hauksson » Íslenska ferðaþjón- ustan er í að- stöðu sem hún hefur ekki þekkt áður. Höfundur starfar við almannatengsl. Sigurjón Þórðarson | 2. október Fjárlagafrumvarpið Það er ekki að sjá að gætt sé sparnaðar í utanrík- isráðuneyti Samfylking- arinnar. Það verða áfram hundraða milljóna útgjöld vegna erlends herflugs yfir landinu. Útgjöld vegna sendiráða hækka um 32% á lín- una nema bráðnauðsynlega sendiráðið í Pretóríu þar sem gömul kvennalistakona ræður ríkjum, þar hækka útgjöldin um heil 72%. … Meira: sigurjonth.blog.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.