Morgunblaðið - 03.10.2008, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SÝNINGIN Undrabörn, með ljós-
myndum Mary Ellen Mark og Ívars
Brynjarssonar, og heimildakvik-
myndinni Alexander eftir Martin
Bell, var opnuð í Nordiska Museet í
Stokkhólmi á þriðjudaginn var.
Sýningin kemur frá Þjóðminja-
safni Íslands þar sem hún var upp-
haflega sett upp í fyrrahaust. Á
henni eru myndir sem Mark tók á
átta vikna tímabili af nemendum og
starfsfólki í tveimur sérskólum fyrir
fatlaða í Reykjavík, Öskjuhlíð-
arskóla og Safamýrarskóla. Ívar
myndaði einnig innviði skólanna.
Hefur sýningin notið talsverðrar
athygli í Stokkhólmi.
Verkefni Mary Ellen Mark birtist
fyrst á síðum Morgunblaðsins.
Ljósmynd/Mary Ellen Mark
Lára Lilja Í sundi í Safamýrarskóla.
Börnin í
Svíþjóð
Sýningin Undrabörn
í Nordiska Museet
HIN goðsagnakennda söng-
kona Janis Joplin lifnar við í
nýju verki Ólafs Hauks Sím-
onarsonar, sem verður frum-
sýnt í Íslensku óperunni í
kvöld. Nefnist það Janis 27.
Tónlist Joplin skipar stóran
sess og sér hljómsveit Jóns
Ólafssonar um hana. Ilmur
Kristjánsdóttir og Bryndís Ás-
mundsdóttir túlka Joplin en
leikstjóri er Sigurður Sig-
urjónsson. Rætt er við þau í Lesbók á morgun.
Leiklist
Janis Joplin í
Íslensku óperunni
Ilmur
Kristjánsdóttir
Janis Joplin á sviði Óperunnar
mbl.is | Sjónvarp
NORRÆNU sendiráðin í
Finnlandi verða með sam-
eginlegan bás á bókamessunni í
Turku nú um helgina.
Meðal dagskrárliða sem
tengjast þátttöku Íslands er
þátttaka höfundanna Kristínar
Steinsdóttur, Sjóns og Að-
alsteins Ásbergs Sigurðssonar.
Tapio Koivukari flytur einþátt-
ung um Guðrúnu Þorbjarn-
ardóttur og sagnfræðingur fjallar um víkinga. Þá
verður kynning á fornbókmenntum. Nokkrar ís-
lenskar bækur eru að koma út á finnsku, þ.á m.
Hávamál, Argóarflís Sjóns, Vetrarborgin eftir
Arnald Indriðason og Engill í Vesturbænum eftir
Kristínu Steinsdóttur.
Bókmenntir
Íslendingar á
Turku-messunni
Kristín Steinsdóttir
MYNDLISTARKONAN Rut
Rebekka opnar sína 17. einka-
sýningu í Grafíksafni Íslands.
Að þessu sinni sýnir Rut Re-
bekka stór olíumálverk.
Listakonan hefur sýnt víða á
liðnum árum. Erlendis hefur
hún meðal annars sýnt í Galleri
Gammelstrand í Kaupmanna-
höfn, Hamar Kunsforening í
Noregi og Pitea Kunstforening
í Svíþjóð. Hér heima hefur hún sýnt á Kjarvals-
stöðum, í Norræna húsinu og í Hafnarborg í
Hafnarfirði.
Grafíksafn Íslands er að Tryggvagötu 17, Hafn-
arhúsinu, hafnarmegin. Opið er fimmtudaga til
sunndaga, kl. 14-18.
Myndlist
Rut Rebekka sýnir
í Grafíksafninu
Rut Rebekka
„ÉG kalla sýninguna „Annar heim-
ur“ því á ferðalagi mínu í Kína árið
2004 fannst mér ég vera dottin inn í
annan heim og annan tíma,“ segir
Jóna Þorvaldsdóttir ljósmyndari.
Hún opnar sýningu á verkum sínum
í Galleríi Sævars Karls á laugardag
kl. 14.
Flestar myndirnar tók Jóna í Suð-
ur-Kína, meðal annars á hrísgrjóna-
ekrum í Guizhou-héraði og á leið til
Guilin, sem hún segir dásamlega fal-
legan stað.
„Það sem kom mér einna mest á
óvart var að ganga á Kínamúrnum
þar sem hann er að hruni kominn og
villtur gróður fær að vaxa óhindr-
aður inni á milli
steinanna og ekki
nokkra sálu að
sjá. Ég var alsæl
að fá að eyða deg-
inum þar, alein
með myndavélina
mína. Þarna gerði
ég mér heldur
betur grein fyrir
hversu mikið
mannvirki þetta
er og hugsaði með samúð til allra
þeirra sem þurftu að strita við að
byggja það,“ segir hún.
Ljósmyndirnar eru allar teknar á
innrauðar svarthvítar filmur, sem
Jóna hefur stækkað á fíberpappír,
þannig að hver og ein mynd er ein-
stök. „Oft tekur það mig langan tíma
að prenta myndina eins og ég vil
hafa hana og þarf ég helst að melta
hverja og eina mynd í dágóðan tíma
áður en ég er tilbúin til þess að láta
hana frá mér.“
Hluti af andvirði seldra verka
rennur til heimilis fyrir munaðarlaus
börn í Suður-Kína.
Þetta er fimmta einkasýning Jónu
en hún tók einnig þátt í nokkrum
samsýningum í Póllandi, þar sem
hún bjó um skeið og stundaði ljós-
myndanám við European Institute
of Photography. efi@mbl.is
Annar heimur í Kína
Jóna Þorvaldsdóttir sýnir handunnar innrauðar ljósmyndir
Jóna
Þorvaldsdóttir
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
SNERTIFLETIR hugvísinda og
lista verða kannaðir í þaula á ráð-
stefnunni Rannsóknir í listum sem
haldin er í Listaháskólanum í dag
og á morgun. Ólöf Gerður Sigfús-
dóttir, forstöðumaður rannsókn-
arþjónustu LHÍ, segir tvö alger-
lega andstæð sjónarmið ríkjandi á
þessu sviði. „Menn eru ann-
aðhvort með eða á móti því að list-
ir séu gerðar að akademískum
rannsóknum. Margir hafa áhyggj-
ur af því að ef listirnar verða
kenndar í háskólum sem rann-
sóknartengd fræði þá muni list-
ræn gæði verkanna minnka og
telja að of mikil áhersla á kennslu
í aðferðafræði og rannsókn-
artækni dragi athyglina frá list-
fengi. Það eru líka vissar áhyggj-
ur yfir því að ef listaháskólar fara
að sækja fé í rannsóknarsjóði þá
neyðist listamenn og listnemar til
þess að laga sinn tjáningarmáta
að fræðakreðsunum,“ segir Ólöf
Gerður.
Tengja sköpun og fræði
Aðrir segja enga ástæðu til
þess að óttast afdrif listanna í há-
skólasamfélaginu. „Því er á móti
haldið fram að til dæmis dokt-
orsnemi í dansi geti tengt sína
listsköpun við fræði, strauma og
stefnur í danssögunni og hafi tök
á því að nota ýmis tæki aðferða-
fræðinnar og þetta styrki list-
sköpunina.“
Ólöf segir mikilvægt að gera
greinarmun á rannsóknartengdu
listnámi og svo hugvísindum sem
tengjast listum, t.d. fagurfræði og
leikhúsfræði. Hjá listnemum sé
sköpunin meginþátturinn í rann-
sóknarferlinu. „En það sem hefur
verið að gerast í háskólum í
Bandaríkjunum og Evrópu er að í
hefðbundnum hug- og
félagsvísindagreinum hefur
myndast sveigjanleiki gagnvart
því að nemendur séu túlkandi og
skapandi í aðferðum og miðlun.
Það sem okkur finnst mikilvægt er
að eiga í lifandi samræðum við alla
háskóla í landinu vegna þess að
það er mikilvægt að tengja þessa
nemendur.“
Í haust var í fyrsta skipti boðið
upp á framhaldsnám á há-
skólastigi í listum á Íslandi og er
það í tónsmíðum við LHÍ. „Það
var tekin ákvörðun um það starx í
byrjun að það nám yrði rannsókn-
artengt. Það er ekki komin nið-
urstaða í þessa umræðu erlendis,
hvernig eigi að tengja listnám og
rannsóknir. Þetta er í rauninni
mjög ný þróun og það sem er að
gerast í Listaháskólanum er mjög
spennandi og mikilvægt að fá
þessa sérfræðinga og dokt-
orsnema inn í umræðuna.“
Á mótum lista
og vísinda
Ráðstefna um rannsóknir í listum
sett í Listaháskóla Íslands í dag
Í HNOTSKURN
»Á ráðstefnunni koma framfimm lykilfyrirlesarar,
Henk Borgdorff, Mary Anne
Francis, Terry Rosenberg,
Georg Weinand og Simon
Bayly.
»Þrír doktorsnemar í list-um lýsa sinni reynslu af
rannsóknartengdu listnámi,
þau Mark Curran, Bryndís
Snæbjörnsdóttir og Katrine
Hjelde.
»Ráðstefnan hefst klukkanníu í húsnæði Listaháskól-
ans við Sölvhólsgötu 13 og er
öllum opin.
Morgunblaðið/Golli
Spennandi „Það sem er að gerast í Listaháskólanum er mjög spennandi,“
segir Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, forstöðumaður rannsóknarþjónustu LHÍ.
Maður þarf að vera
mjög duglegur að af-
neita því sem er í kringum
mann... 48
»
Sveinbjörn I. Baldvinsson, rithöfundur
Elvar Berg, píanóleikari
Forseti bæjarstjórnar, Kristján Sveinbjörnsson
Álftaneskórinn
Dalvísa og Smávinir fagrir – Jónas Hallgrímsson
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson
Sigrún Magnúsdóttir, þjóðfræðingur
„Áhrif dr. Hallgríms Scheving á skólasveina á Bessastöðum“
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran og Tinna Þorsteinsdóttir,
píanó, Ég bið að heilsa – Jónas Hallgrímsson
Veitingahlé
Einar Laxness, sagnfræðingur
„Sitthvað um Bessastaðaskóla“
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran og Tinna Þorsteinsdóttir,
píanó, f lytja Átt-Atvinnuvegur „Microperu“ eftir
Tryggva M. Baldvinsson tónskáld
Guðrún Kvaran, prófessor á hugvísindasviði H.Í.
„Áhyggjur orðasafnarans“
Stofnun Félags áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla
– Þorleifur Friðriksson fundarstjóri
– lög borin upp til samþykktar og stjórn kosin
Kynnir
Tónlist
Setning
Tónlist
Ávarp
Erindi
Tónlist
Frásagnir
Tónlist
Erindi
Félagið
Áhrif og arfur dr. Hallgríms Scheving
Hátíðarsamkoma
í Hátíðarsal íþróttaHúss álftaness
4. október 2008 kl . 14.00
– vag ga ísl e nsk r a r m e n n i nga r –
Ú
T
G
E
R
Ð
IN
·
A
3
/H
G
M
Dagskráin er skipulögð af SÁUM (Samtökum áhugafólks um menningarhús á
Áftanesi) með stuðningi frá Sveitarfélaginu Álftanesi.