Morgunblaðið - 03.10.2008, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2008 47
ÉG held að ég hafi aldrei heyrt
Fantasíu í f-moll eftir Schubert
leikna eins vel á tónleikum eins og
á Kjarvalsstöðum um helgina.
Fantasían sem er fyrir tvo pí-
anóleikara (en eitt píanó) er eitt
vinsælasta verk sinnar tegundar,
enda forkunnarfagurt. Í þetta sinn
spiluðu þær Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir og Mona Kontra og út-
koman var framúrskarandi. Tækni-
legt öryggi var ávallt til staðar, en
samt var skáldskapurinn ávallt í
forgrunni. Hendingamótun var
sérlega vönduð og innhverfar hlið-
ar tónlistarinnar voru svo hrífandi
að maður sá allskonar myndir fyrir
sér. Og kraftmeiri hlutar voru
grípandi, enda leiknir fumlaust og
gæddir nauðsynlegri skerpu.
Sex lög eftir Schumannhjónin,
þau Clöru og Róbert, voru einnig
frábær. Hulda Björk Garðars-
dóttir, ein okkar besta sópran-
söngkona, flutti lögin við meðleik
Steinunnar Birnu og litaði söng
sinn réttu blæbrigðunum. Lögin,
sem fjölluðu um þetta dæmigerða
hjá ljóðskáldum rómantíkurinnar,
öðluðust líf í tilfinningaþrungnum
söngnum og alúðlegum píanó-
leiknum. Maður hefði viljað hafa
lögin miklu fleiri!
Hið svokallað Dumky-tríó eftir
Dvorák, sem Tríó Nordica flutti
eftir hlé, kom einnig sérlega vel út.
Allar meginlínur tónsmíðarinnar,
frá ljúfsárri eftirsjá til ofsafeng-
innar gleði, fengu að njóta sín í
rafmagnaðri túlkuninni. Samt var
nákvæmnin í samleiknum aðdáun-
arverð. Ég get ekki ímyndað mér
að hægt sé að gera mikið betur en
það.
Tónleikarnir voru þeir síðari í
kammertónlistarhátíð sem Tríó
Nordica hélt í fyrsta sinn um
helgina og mun hátíðin verða ár-
viss viðburður. Á þessum síðustu
og verstu er gott að hafa eitthvað
til að hlakka til.
Tveir píanóleikarar og eitt píanó
TÓNLIST
Kjarvalsstaðir
Tónlist eftir Clöru og Robert Schumann,
Schubert og Dvorák. Flytjendur:
Tríó Nordica (Auður Hafsteinsdóttir,
Bryndís Halla Gylfadóttir og Móna
Kontra), ásamt Steinunni Birnu Ragn-
arsdóttur og Huldu Björk Garðarsdóttur.
Sunnudagur 28. september.
Kammertónleikarbbbbm
Jónas Sen
Föstudagur, 3. október:
09.00-09.15
Opnun ráðstefnu
09.15-10.15
Henk Borgdorff
Positioning Artistic Research
10.15-10.45
Katrine Hjelde
Constructing a Reflective Site?
10.45-11.00
Kaffihlé
11.00-12.00
Georg Weinand
Artistic research: What for?
12.00-13.30
Hádegishlé
13.30-14.30
Terry Rosenberg
Worthy of Gordius: The knotty
problem of configuring creative
practice as research
14.30-15.00
Mark Curran
The Breathing Factory:
A Globalised Evocation
Laugardagur , 4. október:
10.00-11.00
Mary Anne Francis
Art as Research: A Glossary
11.00-11.30
Bryndís Snæbjörnsdóttir
Glazing the Gaze in a Human
Animal Encounter
11.30-11.45
Kaffihlé
11.45-12.45
Simon Bayly
You are Here: Relocating
‘Artistic’ Research in the
Contemporary University
Ráðstefnan er haldin í húsnæði
skólans við Sölvhólsgötu 13. Hún er
öllum opin og aðgangur ókeypis.
Ráðstefnutungumálið er enska.
http://lhi.is/rannsoknir/radstefna/
Alþjóðleg ráðstefna
um rannsóknir í listum
hefst í dag, föstudag
RANNSÓKN
„MÉR fannst Úlfur fyrst mjög dularfullur. Hann talaði
ekki mikið, en hann tjáði sig mikið án orða. Mér finnst ég
mjög lánsöm að hafa fengið að kynnast honum,“ segir
serbneska myndlistarkonan Natalija Ribovic sem heldur
sýninguna This is a Circle/Þetta er hringur í Gallerí
Dvergi ásamt japönskum kollega sínum, Toru Fujita,
sem þau tileinka Úlfi Chaka Karlssyni. Bæði voru þau
góðir vinir hans og Natalija stundaði nám með honum í
Kitakyushu í Japan veturinn 2005-2006. „Þegar við
heyrðum að hann væri dáinn var okkur auðvitað mjög
brugðið og ákváðum að koma hingað og halda sýningu
honum til heiðurs.“
Natalija segir sýninguna snúast um þrjú tákn; svarta
kanínu sem stendur fyrir tækni, Giovönnu sem er fulltrúi
alheimsins og ömmu sem er táknmynd náttúrunnar.
„Þau flugu saman til Íslands á töfrateppi. Við erum að
vinna með spurningar um uppruna og samastaði og búa
til samskiptagrundvöll fyrir þær. Við tjáum þessar hug-
myndir meðal annars með teikningum, myndböndum og
hreyfingum.“
Í einu verkanna er texti eftir Úlf sjálfan sem hann
skrifaði fyrir tveimur árum. „Hann heitir Minimal Baro-
que og var gerður í tengslum við vídeóverk sem ég gerði
í Japan. Svo er líka teikning eftir hann sem heitir Þetta
er hringur og mér finnst sá titill eiga mjög vel við sýn-
inguna því hún fjallar um það hvernig allt er sam-
antengt.“
Sýningin verður opnuð klukkan sjö í kvöld og við það
tilefni mun hljómsveitin Bacon Live Support Unit koma
fram. Hana skipa þeir Guðmundur Kristjánsson, Magn-
ús Þorsteinsson, Pétur Már Guðmundsson, Gísli Már
Sigurjónsson og Bogi Reynisson. Bogi segir að lista-
mennirnir hafi haft samband við sig í aðdraganda sýn-
ingarinnar og að hljómsveitin hafi strax ákveðið að taka
þátt. „Þau komu yfir hálfan hnöttinn til þess að gera
þetta,“ segir Bogi, en hann og Gísli voru félagar Úlfs í
hljómsveitinni Stjörnukisa. gunnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vinir Toru Fujita, Natalija Ribovic og Bogi Reynisson koma að sýningu um Úlf Chaka, sem er á skjánum fyrir aftan.
Svarta kanínan lent
Sýningin Þetta er hringur
haldin í minningu listamanns-
ins Úlfs Chaka Karlssonar
MYNDLISTAR- og tónlistarmaðurinn Úlfur Chaka
Karlsson var mjög virkur í íslensku tónlistarlífi, meðal
annars sem einn af meðlimum hljómsveitarinnar
Stjörnukisa, auk þess sem hann vann að myndlist. Hann
útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2003 og hélt á
skólaárum sínum þrjár sýningar: einkasýningar og
samsýningar. Hann stundaði nám í japanskri sögu og
menningu og hélt síðan í framhaldsnám í myndlist í
Center of Contemporary Art í Japan 2005–2006 og
lauk þaðan prófi.
Úlfur lést á síðasta ári, aðeins 31 árs að aldri.
Úlfur Chaka Karlsson