Morgunblaðið - 03.10.2008, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 2008 55
Ég sá listaverkið Turbulent eftir
írönsku listakonuna Shirin Neshat í
fyrsta sinn í Samtímalistasafninu í
Antwerpen árið 1998. Þetta er vid-
eóinnsetning. Tvær kvikmyndir
snúa hvor á móti annarri í myrku
rými. Þær byrja eins. Myndavél
rennur eftir sætaröð. Í annarri
myndinni eru sætin þéttsetin af
karlmönnum íklæddum hvítum
skyrtum. Í hinni myndinni eru sætin
tóm. Myndskeið breytast samtímis.
Vera hulin svörtu klæði birtist á
miðjum fleti. Hún snýr í mann baki
og horfir í tóman salinn. Í hinni
myndinni stígur fram karlmaður,
íklæddur hvítri skyrtu. Hann fær
klapp, snýr sér svo að myndavélinni
og tekur að syngja arabískan söng
með fagurri raust og innlifun.
Að söng loknum snýr hann sér að
áhorfendum sínum og hneigir sig en
um leið snýst myndavélin í hinni
myndinni og svartklædd konan fer
að tóna. Maðurinn snýr sér þá við,
forvitinn á svip, eins og hann heyri í
henni og horfir þá aftur fram og
hlustar. Konan notar röddina sem
hljóðfæri og tónar af djúpri tilfinn-
ingu enda konum í Íran bannað að
syngja. Og hún syngur fyrir engan
áheyranda. Allan tímann stendur
maður á milli þessara tveggja skjáa
og í miðri spennu, svarts og hvíts,
karls og konu, skorinn að merg með
dásamlegum tónum.
Ég sá svo Turbulent aftur á Fen-
eyjatvíæringnum ári síðar. Var þá að
rölta um Arsenale-sýningarhluta
tvíæringsins þegar ég heyrði daufan
óm af söngnum. Tók þá á rás eins og
óður maður í átt að hljóðinu. Það er
nefnilega þannig að af mörgum stór-
brotnum listaverkum sem eru til í
heiminum upplifir maður sum svo
sterkt að maður er ekki samur eftir.
Turbulent er þannig listaverk fyrir
mig. Turbulent hlaut gullpálmann á
Feneyjatvíæringnum það árið sem
besta verkið og hefur verið sýnt víða
síðan.
Íslendingar hafa nú tækifæri til að
sjá (og heyra) þetta listaverk á
Listasafni Íslands, en það er til sýnis
í 10 daga ásamt 3 öðrum vid-
eoverkum eftir Neshat í tilefni af
RIFF kvikmyndahátíðinni. Rapture
(1999), sem, líkt og Turbulent, er tví-
skipt videoverk á skjáum hvorum
andspænis öðrum og sýnir einnig að-
skilnað hins karllæga og kvenlæga.
Sama má segja um Passage (2001)
sem er stuttmynd og samstarfsverk-
efni Neshat við bandaríska tón-
skáldið Philip Glass.
Nýjasta verkið á sýningunni heitir
Zarin (2005), og er byggt á hluta úr
bók Shahrnush Parsipurs, Konur án
manna. Þetta er átakanlegasta verk-
ið eða óþægilegasta og sýnir sjálfs-
eyðingarhvöt á versta stigi.
Verk Neshat einkennast af karl-
lægri og kvenlægri skiptingu, form-
rænu mínimalísku myndmáli og
fögrum fábrotnum ritúölum. Neshat
er heimsklassa listakona í útlegð frá
heimkynnum sínum sem hún svo
skoðar í fjarlægð. Og ég ýki ekki
þegar ég segi að þessi stutta sýning
hefði getað orðið mesti myndlist-
arviðburður ársins og jafnvel síðustu
ára. Nema hvað verkunum fjórum er
troðið saman í einn sal og eru sýnd
þar tvö og tvö, hvert á eftir öðru,
með einn falskan vegg á milli.
Tónlist leikur veigamikið hlutverk
í verkum listakonunnar og þar sem
engin hljóðeinangrun er á milli
veggja gellur Philip Glass inn í söng
Turbulent, trumbusláttur í Rapture
blandast inn í Zarin og svo koll af
kolli.
Ekki er svo á það bætandi þegar
tækin eru ekki samstillt í tveggja
skjáa innsetningunum. Máski er
eitthvað langt á milli play-takka í
græjunum, en ef skjáirnir „synca“
ekki eru Turbulent og Rapture í
sjálfu sér handónýt. En þannig var
ástandið í annarri af tveimur heim-
sóknum mínum á sýninguna.
Ég er enn á því að Turbulent sé
með merkari listaverkum sem gerð
hafa verið á síðustu 10 árum. Og
Rapture, Passage og Zarin eru að
sama skapi toppverk. En því miður
eru þau framreidd hér í einni kássu
sem dregur þau niður um allavega
eitt þrep.
Karlar og konur í kássu
MYNDLIST
Listasafn Íslands
Opið alla daga nema mánudaga frá
11.00-17.00. Sýningu lýkur 5. október.
Aðgangur ókeypis.
Shirin Neshat
bbbbn
Turbulent „Verk Neshat einkennast af karllægri og kvenlægri skiptingu,
formrænu mínimalísku myndmáli og fögrum fábrotnum ritúölum. Neshat
er heimsklassa listakona í útlegð […].“
Jón B. K. Ransu
TÍSKA
OG FÖRÐUN
Stórglæsilegt sérblað um tísku og
förðun fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 17. október.
Meðal efnis er:
• Andlitshúðin.
• Líkamshúðin.
• Brúnkukrem.
• Ilmvötn.
• Varalitir.
• Förðun og snyrtivörur.
• Hárið í vetur, hvað er í tísku.
• Kventíska.
• Karlmannatíska.
• Fylgihlutir.
• Skór.
• Brjósthaldarar.
• Aðhaldsnærföt.
• Góð stílráð.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni
og fróðleiksmolum.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16,
mánudaginn 13. október.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík
Framheilaskaði stjórnmálamanns
hljómar ef til vill ekki eins og efni til
skemmtunar. Í Naglanum er það
samt útgangspunkturinn og gengur
bara ágætlega upp. Þorsteinn Gunn-
arsson leikur forsætisráðherra sem
lendir í slysi. Eftir það losnar um
ýmsar hömlur hjá ráðherranum. Það
fær hann til að ganga hreint til
verks, hvort sem það er til góðs eða
ills. Benedikt Erlingsson leikstýrir
stuttmyndinni og ferst það ágætlega
úr hendi. Myndin er snurfusuð og
útlínurnar ýktar eins og hæfir svört-
um húmor. Síðan er þetta brotið upp
með smáhrolli. Þannig að í heildina
er myndin prýðisskemmtun.
Harmsaga er hins vegar ljóðræn
og falleg stuttmynd sem spilar
sterkt á tilfinningarnar. Henni er
stillt upp sem litlu ævintýri um sam-
henta fjölskyldu í fögrum en ein-
manalegum firði. Allt leikur í lyndi.
Svo þegar faðirinn (Ingvar E. Sig-
urðsson) bregður sér af bæ gerast
voveiflegir atburðir. Myndin hefur
vandað yfirbragð og segir söguna
listilega vel á stuttum tíma. Allt er
nýtt til að falla saman í stutta, hnit-
miðaða frásögn sem hreyfir við fólki.
Harmsaga Allt er nýtt „til að falla saman í stutta, hnitmiðaða frásögn“. Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki sínu.
Íslenskur harmur og húmor
KVIKMYND
Regnboginn – RIFF
Naglinn
Leikstjóri: Benedikt Erlingsson. Leikarar:
Þorsteinn Gunnarsson, Anna Kristín Arn-
grímsdóttir. Ísland. 15 mín. 2008.
Harmsaga
Leikstjóri: Valdimar Jóhannsson. Leik-
arar: Ingvar E. Sigurðsson, Beate Bille.
Ísland. 12 mín. 2008.
Íslenskar stuttmyndir:
Naglinn – Harmsaga
bbbmn
Anna Sveinbjarnardóttir