Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1926, Síða 5

Skinfaxi - 01.07.1926, Síða 5
SKINFAXI 53 inu lýðmentun er hér átt við alt, sem hægt er að þekkja og nema á íslensku og hverjum manni og konu þessa ' lands er skylt að kunna skil á, til þess aö geta orðið (sæmilegur borgari þjóðar sinnar, hvar sem liann skip- ar rúm. — Hitt er sérmentun, sem býr fóik undir að . stunda ákveðna atvinnu. — pjóðræknir eru þeir, sem þekkja og kunna að meta andlega og efnalega séreign íslendinga að fornu og nýju og telja sér skylt að nota eign þessa til að styðja alþjóðarheill. Margir telja, að Islendingar séu þjóðræknir og lýð- mentuð þjóð, og vel má vera, að þeir standi þar ekki nágrönnum sínum að baki. pó er víst, að mikið skortir þar á það, sem ætti og mætti vera. Skulu hér tekin nokkur dæmi því til sönnunar. Eitthvað virðist bogið við lýðmentun þeirrar þjóðar, sem lætur barnaskóla sína kenna börnum dönsku og það áður en þau eru fær um að lesa móðurmál sitt stórlýtalaust, og hér er mikið af sílesandi fólki, sem ekki hel’ir hugmynd um dýrustu perlur íslenskra bókmenta. Er óhætt að full- yrða, að þar er um afturför að ræða; mun það mörg- um hugsandi manni áhyggjuefni. pó er það enn verra að sjá hér daglega gefin út blöð, sem misþyrma mjög íslensku máli. Má það heita óþolandi þjóðarskömm. Margar aldir liefir þjóðin verið háð erlendu valdi, og liðið ómetanlegt tjón af því. Margir af bestu sonum íslands hafa varið miklum hluth æfi sinnar til þess að berjast fyrir islensku sjálfstæði. Um mörg ár var það stórmál mesta viðfangsefni Alþingis og stjórnmála- blaða. Nú er sjálfstæðið fengið. ísland er fullvalda ríki, og það er sem flestum finnist, að ekki þurfi frekar um þau mál að hugsa. pó að hér sé alt fult af tima- ritum og blöðum, ber það varla við, að getið sé um stórmál þetta. Andstæðingar áfengis slökuðu mjög á klónni og þótt- ust komnir í örugga höfn, þegar bannlögin gengu í gildi, enda voru lögin samin samkvæmt þjóðaratkvæði,

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.