Skinfaxi - 01.07.1926, Blaðsíða 43
SKINFAXI
91
éinkum Knut Káse, form. Málíclagsins, sem sá þar um
móttökurnar.
Næsta dag fór fram glímusýning í Porsgrund. pá var
farið til Arendals og einnig þar haldin sýning.
20. júní var farið til Ámli. par var ungmennafélags-
mót fyrir Austur-Agðafylkið. Fjöldi fólks var þar sam-
an kominn og urðum vér að hafa þar tvær glímusýn-
ingar þennan dag. Útisýningar var ekki hægt að hafa,
vegna rigningar.
Um nóttina fórum vér í bíl til Kristjánssunds, vorum
5 tíma á leiðinni.
Að kveldi næsta dags héldum vér sýningu. Var glímt
úti á gömlum danspalli. Var hér ill aðstaða. Pallurinn
sem glímt var á, virtist hálf-fúinn, mjög ójafn og auk
þessa háll, vegna rigningar. þrátt fyrir þetta var ghmt
af fullu fjöri og meiddist enginn. Voru margir áhorf-
endur.
Um kveldið var oss haldið veglegt samsæti, voru þar
yfir 400 manns samankomnir. I öðrum enda salsins
var r æðustóllinn. Var fáni vor tekinn og breiddur
framan á ræðustólinn. Er það var gert, dundi við lófa-
tak úr öllum salnum. Allir dáðust að íslenska fánanum
og nokkrir sögðu hann fegursta fánann er þeir hefðu
séð. Vér hrifumst mjög af þessum viðtökum, þvi fátl
er gestinum í framandi landi kærara en þjóðarmerki
iians og er hann því næmur á það sem sagt er þvi til
lofs eða hnjóðs. — Voru margar ræður fluttar. pá fóru
og fram hljómleikar. Að síðustu var slegið upp þre-
földum fólkshring og stignir þjóðdansar langt fram á
nótt. Að skilnaði tókust allir í hendur og sungu: „Gud
signe Norigs land“.
22. júní lá leið vor til Flekkufjarðar. Fengum vér
híl lil ferðarinnar. Leið þessi er á að giska 150 km. og
er hin fegursta. Flekkufjörður er litill en fremur snot-
ur bær og liggur við samnefndan fjörð, sem liðast inn
i landið millum granitása. Hér gistum vér um nóttina.