Skinfaxi - 01.07.1926, Blaðsíða 11
SKINFAXI
59
fiafa yfir að ráða, og þeir sjá þetta land alskipað stil-
föstum bændabýlum, sem gerð eru með þjóðlegum
hætti, bæði innra og ytra, og þeir vilja umfram alt, að
býlum þessum ráði mentaðir, sjálí'stæðir og sannir ís-
lendingar. peir sjá engin hálfdönsk og hálfíslensk brask-
araspor á þessu framtíðarlandi. pað er heitasta
ósk hugsjónamannsins, að fslendingar eignist mann-
dóm til að hagnýta gæði landsins, og kunni að njóta
þeirra. pað er mikið verk, sem biður æsku þessa lands.
Hún verður að vinna stóra sigra fyrir íslenska sveita-
menning, cf framtíðin á að unna okkur þess að lifa
sem sjálfstæð þjóð. Aukin og bætt alþýðumentun er
öruggasta vopnið, sem hægt er að beita í þessu þjóð
ernisstríði. Yerði það vopn ekki vel notað, getur íslensk
sveitamenning aldrei staðið föstum fótum i fósturmold.
G. B.
Helge Rode.
Vorið 1926 kom Helge Rode til Askov og flutti þar
fyrirlestra um stefnur og straumhvörf í samtíðarbók-
mentum og um persónuleg kynni sín af Brandes og
öðrum forkólfum bæði hins eldra og hins nýja tíma.
Eg var þá erlendis -—- á ferðalagi um pýskaland og
Luxemburg — ok kom ekki til Askov fyr en Rode var
horfinn al'tur til Hafnar. Varð eg því af því í þetta sinn,
að sjá þetta merka skáld, sem telja má að ýmsu merkis-
bera í dönskum bókmentum, og einna eftirtektarverð-
astan danskra skálda núlifandi. pótti mér miður, þvi
eg hafði kynt mér rit hans að nokkru, og höfðu þau
vakið athygli mina á manninum.
Hljótt er mjög um Rode á íslandi, og mun nafn hans
tæpast kunnugt öðrum en þeim, sem sérstakan hug