Skinfaxi - 01.07.1926, Blaðsíða 33
SKINFAXI
81
sem neytt liei'ir tóbaks, náð beslu einkunn. Dr. Fiske,
yfirkennari við Northwestern-báskólann í Bandaríkj.
unum, gengur svo langt að leyfa engum námsmanni
að taka þátt í náminu >ar, ef liann reykir sígaretlur.
Ástæðan, sem hann ber fyrir sig er sú, að enginn náms-
maður, sem hefir reykt þær, bafi getað náð góðri
einkunn.
Forstöðumaður fyrir stórum gagnfræðaskóla í
Bandaríkjunum segir: „Reynsla vor, sem höfum liaft
yfir fimtíu þúsundir ungmenna undir höndum, er þessi:
Sígaretturnar veikja taugakerfið og eyðileggja það,
kippa úr likamsþroskanum og hefta bæði likamlegar
og andlegar framfarir. Af þessum ástæðum neitum vér
nú öllum tóbaksneytendum um aðgöngu að skólanum.“
Og það er ekki eingöngu við háskólana og menta-
stofnanirnar að sígarettureykingar eru farnar að verða
þrándur í götu margra manna. 1 ýmsum rikjum og
stórbæjum Bandaríkjanna liafa kaupmenn, bæði
smærri og stærri, tekið sig saman um að veita engum
manni atvinnu, sein reykti sígarettur. Formaður Lindell
strætisbrautafélagsins í St. Louis segir: „Hvernig svo
sem á stendur, veitir félagið engum manni atvinnu, sem
reykir sígarettur. peim, sem reykir þær, er ekki fremur
trúandi fyrir strætisvagninum en drykkjumanninum.
Hann er jafnvel enn hættulegri, því taugar bans geta
bilað alt í einu að óvörum og algerlega fyrirvaralaust.“
E. H. Harriman, formaður Union Pacific járnbraut-
arfélagsins, segir: „Vér mættum alveg eins vel taka
í þjónustu vora á járnbrautarvögnunum menn af geð-
veikra-spitölunum, eins og að veita þeim atvinnu, sem
i-eykja sígarettur.“ Ýms önnur járnbrautarfélög harð-
banna verkamönnum sínum að reykja þær.
Sigarettu-reykfúgar hafa mjög veikjandi áhrif á melt-
ingarfærin. Matarlystin minkar smátt og smátt, jafn-
framt því, sem löngunin í að reykja meira og meira
af sígarettunum vex, og svo fer að lokum, að neytend-