Skinfaxi - 01.07.1926, Blaðsíða 29
SKINFAXI
77
eru að hjálpa til að ljúka þeirri skuld, sem íslenska
þjóðin stendur í við Eggert Ólafsson.
Islenskir ungmennafélagar! Sýnið nú að þið berið
með réttu nafnið „Yormenn Islands“ og sameinið krafta
ykkar, til að minning þess manns, sem mestur vormaður
hefir verið islensku þjóðlifi, megi verða gerð sem veg-
legust.
Kaupmannahöfn, á sumardaginn fyrsta ’26.
St. Steindórsson.
frá Hlöðum.
Sígarettur.
í mánaðarritinu „Success“ stóð nýlega grein um síg-
arettu-reykingar unglinga, og hinar mörgu illu afleið-
ingar, sem þær hafa í för með sér. Unglingunum
islensku til alvarlegrar umhugsunar eru hér tekin upp
aðalatriðin úr áðurnefndri grein.
Aðaláhrif sígarettueitursins á líffæri unglinganna eru
i þvi innifalin, að hefta þroskunina. petta eitur er öll-
um líffærunum jafii skaðvænlegt. pað eyðileggur bæði
heilsuna og siðferðisþrekið, hefir jafnlamandi áhrif
bæði á líkama og sál. Að veikindum margra þeirra, sem
langt eru leiddir i geðveikraspítölunum, eiga sigarett-
urnar upptökin. Hjá mörgum vekur sigarettu-eitrið
óeðlilegar, undarlegar og óuppfyllandi langanir, óá-
nægju, óhægð, taugaveiklun, stygglyndi og hjá mörgum
liverjum najstum því ómótstæðilega löngun til glæpa-
verka. I stuttu máli er sú siðferðislega spilling, sem af
sígarettu-nautninni getur leitt, og leiðir jafnan, fyr eða
síðar, óútreiknanleg og hræðileg. Lygi, sviksemi, ó-
hreinleiki, andleg og líkamleg siðferðisspilling, og al-
gerð uppgjöf allra hinna hærri markmiða lífsins, eru
áreiðanlegir ávextir þessa hættulega ávana.