Skinfaxi - 01.07.1926, Blaðsíða 36
84
SKINFAXI
Hér komu lil móts við oss Christensen, kennari, og
Breidsvold, blaðamaður. Höfðu þeir verið í fiokki þeirra
fimm norsku u'ngmennaf,jel. sem komu til íslands 1924.
j?eir voru mjög alúðlegir.
Sunnudaginn 7. júní var sólskin og veður fagurt.
Hafði ungmennafélagið efnt til veglegs íþróttamóts
á Bislet-íþróttavelli. Yar skemtiskráin fjölbreytt, og
voru þar landskunnir iþióttamenn þátttakendur. Á und-
an sýningunum var haldin ræða fyrir glímumönnun-
um og leikið „Eldgamla ísafold“.
í skrúðgöngunni inn á völlinn gengum vér Islend-
ingarnir fremstir, undir fána vorum. Lautinant O. Hel-
set stjórnaði skrúðgöngunni. Á miðjum vellinum nam
fylkingin staðar og gelck merkisberinn fram og heils-
aði með fánanum. Dundi þá við lófatak áhorfendanna.
Glíman fór vel fram, og dáðust menn að snarleik og
fimi, sem bjó i þeirri íþrótt. Fjöldi ljósmyndara var
þar á sveimi, lil að taka myndir af glímunni. Yér
bjuggumst við þvi, að hér kæmi fram á völlinn ein-
hver norskur bergrisi, til þess að þreyta fang .við oss.
Svo liafði verið auglýst i dagblöðunum, að íslensku
glimumennirnir skoruðu á hvern, sem væri, að ]?reyla
glimu við sig, og teldist sá vinna sigur, sem staðið gæti
i eina mínútu. Bauðst enginn til þessa. Sumir höfðu
orð á því, að það væri all-harkalegt í glimunni, að mega
eiga von á því, að vera hent úr háa lofti i bcrt gólfið.
1 pennan dag var knattspyrnukappleikur milli Finn-
lendinga og Norðmanna, og dró það mjög úr aðsólcn-
inni á Bislet.
Um kveldið var oss lialdið samsæti i liátíðasal liá-
skólans, veglegasta salnum í Osló. Var það ungmenna-
fél., sem gekst fyrir því. Voru þar fluttar ræður. Rolf
Tommessen, ritstjóri „Tidens Tegn“ og formaður „Nor-
ræna félagsins“ í Osló, iiélt snjalla ræðu, og mintist á
samvinnu milli ríkjanna; ekki i stjórnarfarslegu til-
liti ,heldur hefðu þjóðirnar mikið að læra hvor af ann-