Skinfaxi - 01.07.1926, Blaðsíða 47
SKINFAXI
95
Fréttir.
Skinfaxi.
Ritstjóri Skinfaxa hefir or'ðið þess var, að ýmsa furð-
ar á því, að rilið hefir ekki komið út í sumar, eða þriðja
hvern mánuö, svo sem gert var ráð fyrir á siðasta sam-
bandsþingi U. M. F. í.
Sambandsstjórn U. M. F. í. rcð þessari breytingu, og
kvað svo á, að ritið skyldi ekki koma út nema þrisvar
í ár, og það að eins að vetrinum. Stjórnin taldi þetta
betur fara, þar eð fundir og umræður um félagsmál
fara fram nær því eingöngu á þeim tíma árs. Enda
höfðu ýmsir sagt, að sér kæmi það mun ver að ritið
kæmi út á sumrin, þar eð þeir væru þá oft fjærri heim-
ilum sínum og hefðu bæði vegna fjarveru og mikilla
anna litiö tækifæri til að sinna félagsmálum. Lesmál
ritsins vei’ður jafnmikið þetta ár og það var í fyrra.
Sigurður Greipsson.
Sigurður Greipsson, féhirðir U. M. F. í., fer til Dan-
merkur næstu daga. Gerir hann ráð fyrir að dveljast
þar í vetur við íþróttaskólann í Ollerup. Skóli sá er nú
fi’ægastur allra íþróttaskóla á Norðurlöndum og sótt-
ur af íþróttamönnum ýmsra landa. — Skamt er á milli
utanferða Sigurðar. Tvö síðastliðin vor fór hann í
íþi’óttaleiðangur til ixágrannalaiidanna, Nöregs og Dan-
merkur, var hann þá í flokkum þeim, sem Jón ]?or-
steinsson kennaii stýrði; hefir verið geröur góður róm-
ur að ferðum þeirra flokka, svo sem kunnugt er. En
hitt er engu síður kunnugt, að Sigurður hefir þótt bei’a
mjög af öðrum glímumönnum landsins nú um allnxörg
undanfarin ár, enda var Sigurður á harns aldri, er hann
tók að leggja mikla alúð við glimur og íþróttaiðkanir
og liefir aldrei slegið slöku við þá ment.