Skinfaxi - 01.07.1926, Blaðsíða 41
SKINFAXI
89
dönsum og ræðuhöldum. Daginn eftir var farið til Not-
odda á pelamörk. Er það ungur bær, sem liér licfir vaxið
út frá trjávöruverksmiðjum. Ekki langt frá Notodda er
Hítradals stafkirkja. Er hún einkennileg, öll hygð úr
tré og er talin nálægt 600 ára gömul. Er til þjóðsaga um
þessa kirkju, sem minnir mjög á islensku þjóðsöguna
„Kirkjusmiðurinn á Reyni“.
Norsku stafkirkjurnar eru taldar einkennilegustu
byggingar á Norðurlöndum.
þriðjudaginn 16. júní var farið með lestinni áleiðis til
Rjúkans. Rjúkansbrautin var lögð árið 1909, mest vegna
virkjunar Rjúkansfossins. Var henni seinna breytt í raf-
magnsbraut. Lengd brautarinnar er 16 km. og kostaði
liún nálega 5% milj. kr. og er nú eign ríkisins.
Yfirleitt virðist þokkalegra að ferðast með rafvögn-
um en eimlest.
A pelamörkinni er mikið skóglendi. í Finndalselfinni
voru hingað og þangað stórir trjáflotar, sem voru á leið
til verksmiðjanna. Rjúkanbrautin cr slitin i sundur af
vatninu Finnsjöen. Eftir því gengur ferja. Er það hrika-
legt skip og er letrað stórum stöfum á það „Leydro“.
Ferjan er fremur óvistleg. þegar vatninu sleppir, er
ekki nema Yo klst ferð með brautinni til Rjúkan. Leiðin
liggur eftir þröngum dal og eru býli á strjálingi utan í
fjallshlíðunum beggja vegna. Á Rjúkan var tekið á móti
oss með mestu gestrisni. Er vér höfðum snætt þar á
veitingahúsi, var ekið með oss í bil til „Sportshytten“, er
það hús íþróttafélaganna þar í bænum. Ilúsið stendur
hátt uppi í fjallshlíð, austanverðu dalsins. Vegurinn
þangað upp liggur fast við árgljúfrið, þar sem Rjúkan
rikti í sínum mikilleik og döggvaði grasbrekkurnar,
trén og runnana i kring og þegar sólin stafaði geislum
sinum yfir dalinn, var sem þarna væri alt þakið sldnandi
demöntum. Hér sló hann hörpuna svo að allur dalurinn
kvað við. Á bergbrúninni, þar sem Rjúkan féll áður,
hangir eins og mjór silfurþráður, það er örlítil vatns-