Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1926, Síða 12

Skinfaxi - 01.07.1926, Síða 12
60 SKINFAXI Iiafa á norrænunl nútíðar bókmentum. Er )?að að ýmsti illa farið, því maðurinn er eftirtektarverður og að ýmsu anerkilegur. i Helge Rode var aðeins tvítugur að aldri, er liann gaf út fyrsta Ijóðasafn sitt: „Hvide Blomster“. Vorú <þar þá þegar dregin svo skýr mörk og einkenni skáld- lundar lians, að þangað má rekja og þar má finria flesta þá þætti, sem slungnir eru um eðli hans, og síðár verða hjartataugar i skáldskap lians. i Hið unga skáld liefir eigi hlerað annað en sitt eigið skáldeðli; og er það framar öðru i ætt við æskuna og vorið. En eins og vordagurinn er eigi ávalt sólskins- dagur, og æskan ekki óblandin unaður, svo er og til- finning Rodc gagnvart lífinu blandin: Hann finnur til þess með skelfing og hrifning í senn, að liann er til, að hann og tilvcra lians verður ekki út skafin né afmáð; bak við hið gráa og hversdagslcga, hak við vanaviðkvæðin liggur lífið, sem er gáta, sem ráða skal, hulda, sem töfrar og tryllir í senn. Jafnvel í hinum alþektustu fyrirbrigðum rís hið óþekta upp á aftur- fótunum. Skáld þurfa fyrst og fremst að vera þeirri gáfu gædd, að geta undrast yfir öllu, smáu og stóru. Helge Rode hnýsist í spilin, þótt hvorki séu það f járhættu eða mann- hættuspil. Hann lýsir því, sem hann hefir séð og heyrt í sinni eigin sál, í náttúrunni og manna á meðal, á þann hátt, að menn verða í fyrstu að gruna hann uríi að vera bæði tilfinninganæman, blygðunarsaman og me^'jarmannslegan um of. Raunhyggjan hafði í þá daga framræst og þurkað mýrar rómantisku stefnunnar, ef svo má að orði kveðá, sem byrjuð var að gerast vatnsósa og fúl. Var og á því brýn þörf. En nú þótti mörgum skrælnað um of, er eigi gætti lengur að neinu tilfinninga og hugsæis. Rode sló nú aftur á streng hins dýpra og dulrænna í mann- legu eðli. Hann lagði þá naumast kapp á sterkar og

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.