Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.07.1926, Page 17

Skinfaxi - 01.07.1926, Page 17
SIÍINFAXI 65 orðið milíið ágengt, og sál hugsjónanna liefir þar megn- að að bræða þó nokkuð af skammdegisgaddinum, sem kæfði andlegan gróður þjóðarinnar á hnignunartímum hennar. Æskulif ýmsra manna er ofið úr margvíslegum þáttum, sem stundum virðast eiga fremur illa saman. Lund þeirra er viðkvæm og lítt hörðnuð. Af þeirri ástæðu verða þeir auðveldlega fyrir áhrifum frá um- hverfi sínu. En annarsvegar er veikur vilji, sem oi't og tiðum megnar ekki að halda huganum við ákveðna stefnu. Glaðværðin auðkennir líka æskulífið, og löng- un, — sem stundum getur verið nálega stjórnlaus — til nautna. En sökum skorts á skarpskygni og reynslu eru dreggjar gleðihikarsins stundum nokkuð beiskar. Hrygðin -— andstæða gleðinnar — auðkennir líka æsku- lífið. Hrygð yfir einhverju, sem ekki er ávalt létt að gera sér grein fyrir hvað sé. J?etta þunglyndi stafar stundum af eðlilegri rás náttúrulögmálanna, stundum af óeðlilegum athöfnum eða hugarástandi o. s. frv. En dýpstu rótanna mun þó ávalt mega leita í skapgerð ein- staklingsins. punglyndið og glaðværðin eru oft dálitið kaldhæðnis- lega samantvinnuð. En þar sem annaðhvort eða bæði finnast i mjög ríkum mæli, er hvorttveggja dapurlegt. Óstjórnleg hneigð til allskonar gleði og nautna hlýtur að standa í vegi fyrir heilbrigðum þroska og störfum, ekki síður en drungalegt þunglyndi og barnaleg hrygð yfir einhverju, sem menn vita ef til vill ekki hvað er, né getur hatnað. En ef æskumaðurinn hefir við eitthvað að stríða, eilthvað, sem i raun og veru er þrándur i götu fyrir andlegum framförum hans, þá bendir dapurt skap, hrygð og þunglyndi oft á veikan vilja; en mað- ur með veikum vilja bíður ávalt ósigur, ef nokkuð veru- lega reynir á. Eina ráðið til þess, að vera viss um sig- urinn, er það, að hervæða vilja sinn með öllum hugs-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.