Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.07.1926, Side 19

Skinfaxi - 01.07.1926, Side 19
SIÍINFAXI 67 un orsakast af andlegum eyðingaröflum, sem fara her- skildi um sálina. peim verSur hver sannur maður að veita viðnám. Tvö vopn vil eg benda á, sem eg tel mik- ilsverð gegn þeim. ]’að er víðsýni og frelsi. pröngsýnið stafar af myrkri vanþekkingarinnar og kæruleysisins. í skjóli þess þróast alt ónýtt, óliæft og skaðlegt. Víðsýnið er andstæða þess. pað veitir útsýn yfir mannlífið. Fyrir víðsýnum augum dylst hvorki feg- urð né óprýði. pað er afleiðing sannrar þekkingar og skerpir bæði hugsunina og viljann. Skýrar hugmyndir um frelsi eru hollar fyrir alla þá, sem standa í farar- broddi f>TÍr samtökum, er eiga að standa helst um aldur og ævi, þroskast og taka framförum. Sérhver ein- staklingur verður að liafa frelsi til þess að hugsa og starfa, eins og honum er eðlilegt. En hlutverk skipu- lagsins er það, að bcina hugum manna inn á hinar holl- ustu brautir. 011 föst, ófrávíkjanleg kerfi verða fyrr eða síðar dauður bókstafur — og hókstafurinn deyðir. Mörgum æskumönnum virðist líf sitt vera tómt og til- gangslaust, og þeir reyna að fylla tómið með einhverju móti. pessi tilfinning er ekki altaf jafn sterk, oftast bægja skyldustörfin henni frá, en þegar þau eru ekki til að halda mönnum vakandi, legst hún á með tvöföldum þunga. pá er gripið til skemtana af einhverju tæi. 1 fámenni eins og víðast er í sveitum á landi hér, getur það leitt inn á hina heillavænlegustu braut. Skemtanirn- ar eru oí'tast bókalestur eða skoðun hinnar ytri náttúru á slíkum stöðum. pó fámennið hafi ýmsa ókosti í þessu sambandi, hygg eg þó að það hafi fleiri kosti. En þar sem fjölmenni er sainan komið eru tómstundirnar geysi hættulegar. 0. S. Marden segir, að flestir æskumenn sem glatist, verði fyrir því á kveldin. Oft eru skemtanir ekki nægilegar. Tómleikinn getur hvílt eins og farg yfir huganum. pað sýnist ekki vera unt að lilæja hann, dansa né drekka hurt. En þá er ein.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.