Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.07.1926, Page 21

Skinfaxi - 01.07.1926, Page 21
SKINFAXI 69 blæs á móti. En ábyrgðin dregur úr viljaþróttinum og sálarfriðnum, þvi að „—• — þegar að sólhvörfum sigur, svíða okkur naprast og vcrst, vanefndu, hugþekku heitin hundsuð við biðir og frcst.“ Alvara á ekkert skylt við lífsleiðindi og þunglyndi. Alvörumaður getur verið lífsglaður ekki síður en gleði- maðnrinn. pað eru meira að segja likindi til þess, að hann sé að jafnaði lifsglaðari. Gleðimaðurinn teflir meira á tvær hættur. En það er ungæðisleg ástríða æskumarina að stikla fram á naumustu brún. Gleði- maðurinn er eins og sæfarinn, sem siglir kjölfestulaus- um bátnum, með fullum seglum i röstina ,og lætur sjóða á keipum. En eitt mishepnað handtak getur hvolft bátnum lians. Alvaran er kjölfestan i lífsfleyinu. Eg hefi áður minst á, hvern þátt ungmennafélögin geta átt i uppeldi manna, ef þau ná tilgangi sínum. Áhrifa þeirra á innra lífið gætir að sjálfsögðu éinnig í ytra lífi manna. pau eru nokkurskonar undirbúnings- skóli, sem gerir mönnum fært að taka góðan þátt í hinu raunverulega og margbrotna félagslífi þjóðarinn- ar i heild sinni, með þvi að æfa menn við að vinna saman. — fslenska þjóðin er fámenn, barátta hennar fyrir tilveru sinni er ströng, því að náttúrugæðin eru af skornum skamti. Hún er þvi fátæk og hefir slæma aðstöðu til framfara, alt þetta lilýtur að opna augu manna fyrir þörfinni á góðri samvinnu. Æskumennirnir eru líkir þjónunum í dæmisögunni, sem tóku við fjársjóðum húsbónda síns til geymslu. pjónarnir fengn misjafnlega mikið fé í hendur og þeir ávöxtuðu það misjafnlega, og einn þeirra skilaði jafn- hárri upjúiæð og liann tók við. Sérhver einstaklingur fær líka í vöggugjöf veganesti

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.