Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1926, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.07.1926, Blaðsíða 23
SKINFAXI 71 Sem táið þel í spunakonu knjám, í keltu fjallsins þokuhrannir tefja, og sérlivern hjalla votum örrnum vel'ja, og vagga yfir földum slcuggagjám. En reykjarstróka bændabýlin rétta, í hlæjalogni upp til liæstu kletta. í austri blasir fögur fjallasveit, — í fjarska, líkt og borg sem rís úr hafi, og allir tindar flagga fannatrafi, en fela’ i dölum sérhvern gróðurreit. Svo geymir ísland yl við hjartarætur, þó andi köldu langar vetrarnætur. Svo nemur augað vestui"veg um stund. par vantar ekki jökulkrýnda tinda, sem liampa svipum margvíslegra mynda, er mótað gætu forna hetjulund. En gullöld vor er gleymsku-ryði drifin. ]?að ganga nú svo fáir bröttu klifin. Já, hér er lífið ekkert myrkra mók. Hér markar sérhver geisli skírast letur. Vor fjalladrotning flestum öðrum betur er fær að þýða náttúrunnar bók. Hún kennir oss með djúpum reynslu rökum hin réttu brögð i lífsins glímutökum. pvi ræð eg þér að ferðast upp um fjöll, og fá hvern vöðva þreyttan af að klifa. Á sjónarhæðum lærir þú að lifa og leita gulls í vorri Dofrahöll. En trú þó ei þeim leiki alt í lyndi, sem lífið sér af hæsta Siilutindi. Á. Dalmanns.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.