Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.07.1926, Page 39

Skinfaxi - 01.07.1926, Page 39
SKINFAXI 87 «uenn gengnir úr leik og sjálfur fararstjórinn varð að fialda kyrru fyrir um tima. Vér afréðum að halda áfram ferðinni, meðan unt væri, og enn vorum vér þó sjö. .íón og Viggó urðu eftir á veitingahúsi í Moss. Næst var ferðinni heitið til Sarpsborgar. Skeyti var sent þangað um það, að vér glímdum ekki nema á g'óðum trépalli. í Sarpsborg fengum vér liinar bestu viðtökur. Sýningin fór vel frarn. — Sarpsborg liggur fast við Glommelfuna. ]?ar er fossinn Sarpur; er bann að nokkru leyti virkjaður og eru þar reknar stórar pappírsverksmiðjur. Yfir fossinn er bygð brú og er hún ramger. Yfir akveginum liggur járnbrautin. Er vér stóðum þarna og virtum landslagið fyrir oss, kom eim- iestin með skrölti og gauragangi. Vér stóðum, sem agn- dofa meðan lestin þaut áfram yfir höfðum vorum og færðumst um leið í aukana og lyftum ósjálfrátt öxlum, að lílcindum til þess að geta betur tekið á móti, ef eitt- hvað bilaði undir lestinni. 11. júní höfðum vér sýningu i Friðrikshald. Voru þarna sæmilegar viðtökur, en þé) sá þar á, að þar var ekkert starfandi ungmennafélag. Friðrilcshald stendur við mjóan fjörð, Iddefjörðinn. Umhverfið er fagurt. Bærinn er víggirtur. Var vigið bygt 1687. Er það reist á brattri hæð austan við bæinn. Skamt frá virkinu er dálítill járnturn, þar er minnismerki Karls tólfta. Á hann er letrað: „30. nóv. 1718. „Han lcunde iclce vilca, blott falla kunde han.“ Eins og kunnugt er, ætlaði Karl tólfti að leggja Noreg undir sig, en Norðmenn reyndust harðir í horn að taka og þessi dirfskuför Karls kostaði hann lifið. Fékk haiin kúlu í höfuðið, þar sem hann var lijá hermönnum sín- um, í skotgryfjunum. Frá þessum tírna á Friðrikshald merkilega sögu, þvi þarna var háð hörð barátta gegn

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.