Skinfaxi - 01.04.1944, Síða 72
72
SKINFAXI
Áhugi fyrir íþróttum er mikill og er reynt a'ð bæta aðstöðuna
til íþróttaiðkana eftir því sem tök eru á.“
D. Á.
Bækur.
Knattspyrnubókin er gefin út af tveimur áhugamönnum um
knattspyrnu. Er þetta þýðing á kennslubók brezka knatt-
spyrnusambandsins, 7 arkir að stærð, með 52 myndum, prent-
uð á ágætan pappír og hin vandaðasta að öllum frágangi.
Kemur hún knattspyrnumönnum áreiðanlega í góðar þarfir
og getur orðið áhugamönnum ágætur leiðarvísir til aukinnar
leikni í þessari eftirlætisiþrótt.
Bókina er hægt að panta frá Hrólfi Benediktssyni, Baróns-
stig 19, Reykjavík, en hann er annar útgefandinn.
HLÍN, ársrit íslenzkra kvenna, 26. árgangur, flytur að
vanda margar greinar, varðandi heimilisiðnað, garðyrkju,
fræðslumál o. fl. Þá eru fréttir frá landsþingi kvenna, kven-
félagasamhöndum, námskeiðum, minningargreinar, kvæði og
margt annað, sem fróðleikur er að.
Ritstjórinn, Halldóra Bjarnadóttir, Alcureyri, skrifar sjálf
nokkrar greinar, annars eru höfundarnir margir, bæði karlar
og konur, sem skýra blátt áfram og hispurslaust frá reynslu
sinni og skoðunum i þeim málum, er að framan getur. Hlin
er áreiðanlega góður gestur á heimilum víðsvegar um landið
og hún mundi ekki síður verða það, ef efnisvalið væri enn
vandaðra.
Skýrsla Sjómanna- og gestaheimilis Siglufjarðar árið 1942.
Þessi merka stofnun hefir verið rekin af stúkunni Fram-
sókn á Siglufirði, undanfarin ár, yfir sildveiðitímann, og var
hún opin 2% mán. árið 1942. Sjómenn koma þar í tómstund-
um sinum, til þess að lesa blöð og bækur, skrifa bréf, kaupa
veitingar og fá að geyma þar ýms verðmæti. Þar eru lialdn-
ar samkomur, með erindum, kvikmyndum, skuggamyndum,
söng o. fl., til fróðleiks og skemmtunar, og er þetta þáttur
i því menningarstarfi, sem sjómannaheimilið vill vinna, með-
al þeirra, er dvelja úr öllum landsfjórðungum í Siglufirði
um síldveiðitímann. D. Á.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN II.F.