Skinfaxi - 01.11.1946, Síða 6
58
SKINFAXI
um, eða hvert sem sjónarmið yðar er í einstökum atriðum,
og hvort sem þér takið málið frá flokkslegu eða persónulegu
sjónarmiði. Jafnframt er sjálfsagt að lofa því, að þér fáið
rúm i Skinfaxa, ef yður þætti ástæða til að gera athugasemdir
við svör hinna.
f nafni ungmennafélaganna vonast ég til, að þér verðið vel
við þessum tilmælum, og sendið svar yðar helzt fyrir 1. sept.
næstk., þótt það verði auðvitað þakksamlega þegið seinna.
Ritstj. hafa borizt tvö svör, frá þeim Braga Sigurjónssyni,
ritstjóra á Akureyri og Halldóri Kristjánssyni, bónda á
Kirkjubóli i Bjarnardal í Önundarfirði. Fara svör þeirra hér
á eftir. Um leið og ritstj. þakkar þessum tveim mönnum
svör þeirra, vonast hann til að geta birt svör hinna tveggja
í næsta hefti.
Svar
Braga Sigurjón§sonar:
„Hvaða ráð teljið þér vænlegust til þess, að fólk í
sveitum landsins verði sem bezt og fyrst aðnjótandi
tækni, menntunar og menningar nútímans?“
I.
Islenzka þjóðin á sér mörg ævintýri, þar sem lýst er
skrautlegum húsum, íburðarmikilli hýbýlaprýði og dýr-
legum veizluföngum. Þó eru flestar lýsingar óljósar.
Hér birtist annars vegar þráin eftir lífsþægindum, liins
vegar þekkingarskorturinn á þeim.
Síðustu 60—70 árin hefur þjóðin verið að lifa ævin-
týri, stórbrolnara, mikilfenglegra heldur en liana hafði
dreymt um i djörfustu draumum sínum, og það er þráin
eftir lífsþægindum, sem knýr hana fram.
Þjóð án húsa, þjóð án húsgagna, þjóð án fram-
leiðslutækja, vegalaus, hafnalaus, skipalaus, símalaus
kaslaði sér út í ævintýrið mikla að öðlast þetta allt.