Skinfaxi - 01.11.1946, Blaðsíða 21
SKINFAXI
73
Sums staðar eru svo liéraðabókasöfn, sem fylla í skörð-
ui og sinna þörfum þeirra, sem sækjast eftir að lesa
einhverjar fágætar bækur og minna eftirsóttar al-
uiennt.
Hér sómir heldur ekki að þegja um útvarpið, sem
gjörbreytir menningarlegri aðslöðu í strjálbýli. Hvergi
ei' betur hlustað á rödd þess þjóðskóla en í dreifbýlinu.
Ma rgur unglingurinn sparar sér beinlínis dýran skóla-
vetur með heimanámi hjá rikisútvarpinu, en þó mun
vera meira verl um liið almenna gildi fyrir unga og
gamla, óháð skólanámi öllu. Þetta verður að viður-
kenna, ])ó að ýmislegt megi að öllu finna.
III.
En þrátt fyrir þetta allt er félagslífið eftir. Óspilltu
fólki er það eðlislæg þörf að sjá og hitta annað fólk
og deiia geði við það. Þeirri þörf verður að fullnægja,
ef ekki á að liljótast af andlegt tjón og hnekkir fyrir
þroska mannsins.
Ræktun og tækni getur gert sveitastörfin tiltölulega
lélt og auðveld, — bæði framleiðslustörfin utanbæjar
og innanhússverkin, og þannig stvtt vinnudaginn að hóf-
legu marki. En þrátt fyrir það eru sveitastörfin bind-
audi og liljóta alltaf að verða. Það þarf að mjólka kýrn-
ar tvisvar á dag ailan ársins hring o. s. frv. Eigi sveita-
fólkið því að liafa sambærilegt frjálsræði við fólk ann-
arra stétta, þarf það að liafa búskap sinn i því formi,
að hægt sé að koma verkaskiptingu við og sérhver
starfsmaður geli fengið sína fridaga endrum og eins.
Ór því verður aldrei bætt með ytri tækninni einni
saman,
Ég hef ekki trú á stórbúskap með taxtabundnu leigu-
liði o. ]). h. Þrátt fyrir alla hagfræðilega reikninga, sem
oieð þvi kunna að mæla, má lika benda á liitt, að hver
fermetri lands og hvcr einstök skepna á smáum búum
gefur meira af sér en á stórbúunum. Og við verðum