Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 21

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 21
SKINFAXI 73 Sums staðar eru svo liéraðabókasöfn, sem fylla í skörð- ui og sinna þörfum þeirra, sem sækjast eftir að lesa einhverjar fágætar bækur og minna eftirsóttar al- uiennt. Hér sómir heldur ekki að þegja um útvarpið, sem gjörbreytir menningarlegri aðslöðu í strjálbýli. Hvergi ei' betur hlustað á rödd þess þjóðskóla en í dreifbýlinu. Ma rgur unglingurinn sparar sér beinlínis dýran skóla- vetur með heimanámi hjá rikisútvarpinu, en þó mun vera meira verl um liið almenna gildi fyrir unga og gamla, óháð skólanámi öllu. Þetta verður að viður- kenna, ])ó að ýmislegt megi að öllu finna. III. En þrátt fyrir þetta allt er félagslífið eftir. Óspilltu fólki er það eðlislæg þörf að sjá og hitta annað fólk og deiia geði við það. Þeirri þörf verður að fullnægja, ef ekki á að liljótast af andlegt tjón og hnekkir fyrir þroska mannsins. Ræktun og tækni getur gert sveitastörfin tiltölulega lélt og auðveld, — bæði framleiðslustörfin utanbæjar og innanhússverkin, og þannig stvtt vinnudaginn að hóf- legu marki. En þrátt fyrir það eru sveitastörfin bind- audi og liljóta alltaf að verða. Það þarf að mjólka kýrn- ar tvisvar á dag ailan ársins hring o. s. frv. Eigi sveita- fólkið því að liafa sambærilegt frjálsræði við fólk ann- arra stétta, þarf það að liafa búskap sinn i því formi, að hægt sé að koma verkaskiptingu við og sérhver starfsmaður geli fengið sína fridaga endrum og eins. Ór því verður aldrei bætt með ytri tækninni einni saman, Ég hef ekki trú á stórbúskap með taxtabundnu leigu- liði o. ]). h. Þrátt fyrir alla hagfræðilega reikninga, sem oieð þvi kunna að mæla, má lika benda á liitt, að hver fermetri lands og hvcr einstök skepna á smáum búum gefur meira af sér en á stórbúunum. Og við verðum

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.