Skinfaxi - 01.11.1946, Blaðsíða 19
SKINFAXI
71
verk sín. Það þarf að kunna að rækta túnin sín og garð-
ana og skepnurnar, svo að bezti árangur náist.
Það fólk, sem hefur tölc á að njóta þess, sem býr með
islenzkri jörð, svo að ávextir liennar verði eins ríkuleg-
lr °g náttúruskilyrði leyfa, hefur traustan grundvöll til
t)JTggja afkomu sína á. Það hefur skilyrði til þess, að
sjá börnum landsins við sjóinn fyrir góðum og ódýrum
niatföngum, og það er fyrsta þjóðhagslega skylda
sveitafólksins islenzka.
II.
Framleiðslan sjálf er undirstaða atvinnuvegarins og
sker úr um nauðsyn og tilverurétt bans og fjárhagslega
afkomu þeirra, sem stunda hann. En margs þarf að
gæta, svo að liin félagslega menning sé eins og þarf.
Sú er hamingja sveitalifsins, að það ber í sjálfu sér
mörg uppeldisleg skilyrði menningar og þroska. Börn-
iu í sveitinni fá, strax og þau komast á legg, ýmis við-
fangsefni við sitt liæfi. ,Óðar en varir eru þau orðin
þátttakendur i lífsbaráttu fjölskyldunnar og farin að
gegna skyldustörfum, sem krefjast ábyrgðar, trú-
mennsku og sjálfstæðrar hugsunar. Það er þessi ham-
ingja sveitanna, sem veldur því, að þær hafa allt til
þessa staðið jafnfætis borgum og bæjum með full-
komnari sltóla og lcennslu, i þvi að ala upp gott og
gjörvulegt fólk. En þrátt fyrir það eru skólamál sveit-
anna atriði, sem ekki má gleyma.
Fræðslulögin nýju gera ráð fyrir því, að fylgzt sé með
námi barnsins frá 7 ára aldri, og því þá þegar .tryggð
skólavist, ef með þarf vegna heimilisins. Börnin stundi
fast skólanám 12 til 16 vikur á ári jafnframt eftirlits-
káðu heimanámi til. 15 ára aldurs og eigi þannig kost
á undistöðumenntun í bóklegum og verklegum grein-
um. Það má deila um mörg einstök smærri atriði í
þessu kerfi, en tvimælalaust eru þessi lög virðingarverð
6*