Skinfaxi - 01.11.1946, Blaðsíða 67
SKINFAXI
119
Uðu mjög háttprýði fólksins og sögðust aldrei hafa verið á
móti, sem hefði farið jafnvel fram og þó víða verið við lög-
gæzlu.
Fóikið fylgdist með iþróttunum af athygli og öðru því, sem
fram fór á mótinu. Hvar sem keppni fór fram, þyrptist fólk að
fullt eftirvæntingar. Þar var allur hugur þess. Tveir þjóð-
kunnir menn, sem sóttu mótið, létu í ljós við mig álit sitt
nieð ótvíræðum orðum. Annar sagði: Þetta er fegursta og
glæsilegasta mót, sem ég hef verið á. Hinn sagði: Þetta var
fegluleg hátíð.
Þessi ummæli eru vissulega ánægjuleg. Vandinn er aðeins
sá að gera betur næst. Að sækja alltaf fram, eins og landsmót
Ungniennafélaganna liafa svo greinilega borið vitni um að
Undanförnu. Þetta á að vera auðvelt. Ungmennafélagshreyf-
higin er sterkari og fjölmennari nú en nokkru sinni áður og
luin er samhent. Hún liefur vaxið af þessu landsmóti og sú
Iiugsjón U.M.F.Í. er orðin að veruleika, að landsmót eru hald-
m þriðja hvert ár, til skiptis í landsfjórðungunum, með al-
incnnri þátttöku í þróttamanna úr flestum héraðssambönd-
um U.M.F.Í. Næsta landsmót cr ákveðið á Austurlandi vorið
1949. Megi það enn hera æskunni og ungmennafélögunum
glæsilegt vitni.
Verða norsku ungmennafélögin
heimsótt næsta sumar?
Á síðasta sambandsþingi var stjórn U.M.F.Í. falið að at-
huga, hvort unnt væri að koma á kynnisför ungmennafélaga
til Noregs næsta sumar, til þess að tengja að nýju böndin
niilli frændþjóðanna, og minnast með því 40 ára afmælis
U.M.F.Í., sem verður á næsta sumri.
Hugmyndin er, að þetta yrðu nokkrir glimumenn, sund-
uienn, frjálsiþróttamenn og máske fimleikaflokkur. Einnig
uienn, sem flyttu erindi um ungmennafélögin, land og þjóð
°S sýndu myndir. Stjórn U.M.F.Í. hefur nú skrifað Noregs
t’ngdomslag og spurzt fyrir um möguleika, til þess að taka
á móti og skipuleggja slíka ferð i júnimánuði næstkomandi,
er tæki um tvær vikur.
Ungmennafélagar!
Sendið Skinfaxa fréttir af félagslífinu og stuttar hugleið-
’ngar um áhugamál ykkar og viðfangsefni. Myndir af ýmsum
Iramkvæmdum og mótum eru vel þegnar.
9*