Skinfaxi - 01.11.1946, Blaðsíða 74
126
SKINFAXI
gagnfræðanám. Þá telur þingið, að hraða beri sem mest bygg-
ingu heimavistarbarnaskóla og gagnfræðaskóla i sveitum."
c) „Sambandsþíngið beinir því til útgáfustjórnar Skinfaxa, að
athuga möguleika á því, að stækka ritið og gera það fjöl-
breyttara, t. d. með því að skrifa í það greinar í fræðslu-
formi um ýmsa starfshætti ungmennafélaganna, svo sem leik-
starfsemi, skógrækt o. fl. hliðstæð þeim, sem birzt hafa i
Skinfaxa um íþróttir eftir Þorstein Einarsson.“
Þskj. XIII.
„15. sambandsþing U.M.F.Í. felur sambandsstjórn að fara
þess á leit við næsta Alþingi, að mynduð verði útlánadeild
i sambandi við íþróttasjóð, er veiti lán til félagaheimila og
íþróttamannvirkja, er séu með beztu kjörum, er þekkjast á
hliðstæðum lánum.“
Þskj. XIV.
„15. sambandsþing U.M.F.Í. fagnar lýðveldisstofnun á ís-
landi i samræini við stefnu sina og störf í sjálfstæðismál-
um þjóðarinnar frá fyrstu tíð, en lítur svo á, að skilnaðar-
máli íslendinga og Dana sé ekki að fullu lokið, fyrr en Dan-
ir bafa skilað eignum íslendinga úr dönskum söfnum.
Sambandsþingið krefst þess af ríkisstjórn íslands, að hún
mótmæli dvöl erlends hers hér á landi og vaki trúlega yfir
því, að samningar séu haldnir um brottflutning herliðsins.
Meðan á brottflutningum stendur sé þess gætt, að dvöl hers-
ins þurfi sem minnst að særa þjóðernistilfinningu íslendinga.
Þingið telur, að vernd erlendra ríkja, sem beðið er um
eða tekið mótmælalaust, geti verið jafn skaðleg frelsi þjóð-
arinnar og framtið, sem beinar árásir.
Ungmennafélögin virða frelsi og sjálfsálcvörðunarrétt allra
þjóða og gera sér grein fyrir þvi, að tilvera íslenzku þjóðar-
innar byggist á því, að þessi helztu réttindi allra smárra
þjóða sé í heiðri höfð. 1 því sambandi lýsir þingið yfir sam-
úð sinni mcð baráttu Færeyinga fyrir þjóðernislegum rétti
sinum.
Sambandsþingið leggur áherzlu á það, að sjálfstæð hugsun
og vakandi dómgreind gagnvart öðrum þjóðum og erlendum
stefnum, er íslendingum nauðsynleg. Telur það, að jafnframt
því, sem íslendingum beri að sjálfsögðu að halda fast á rétti
sinum í hvivetna, eigi þeir að liafa vinsamleg skipti við allar
þjóðir, en einkum að hafa félagsskap við þær, sem meta og
viðurkenna lýðræði og frelsi, og þau réttindi önnur, sem ís-
Icnzkt sjálfstæði er undir komið.“