Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 14

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 14
66 SKINFAXI var, og skýrir þetta að nokkru þá niðurlægingu, sem lestrarfélög eru víða i nú til sveita. í öðru lagi hefur þetta komið niður á kennslu barnanna, þannig að nú er farskólafyrirkomulagið af öllum talið alls ófært til að veita nokkra fullnægjandi úrlausn, síðan fræðslu heimilanna lirakaði. í flestum tilfellum er svo erfiðara fyrir foreldra til sveita að kosta börn sín til framhaldsnáms heldur en foreldra a. m. k. i stærri bæjunum, sökum fjarlægðar skólanna. Á hinn bóginn mun það reynsla lcennara við fram- haldsskóla, að nemendur úr sveit séu að öðru jöfnu betri til náms en nemendur úr kaupstað. Athyglisgáfa þeirra er þroskaðri, námsleiðinn enginn. Skemmtanalíf sveitanna er mismunandi fjölbreytt. Yfirleitt stendur það með mestum blóma í þéttbýli og fólksfleiri sveitunum, enda helzt fólkið betur í slíkum héruðum. Víðast eru það ungmennafélögin, sem bera skemmtanalífið uppi, oft við hinar erfiðustu aðstæður, lélegt húsnæði, erfiðar samgöngur og fámenni. Nokk- uð ber þó á því, að ungmennafélagsskapurinn gerist suins staðar gamlaður kvistur á þjóðarmeiðnum. Vor- gróskan er þorrin. Takist að stöðva flóttann frá landhúnaðinum með ör- yggi um afkomu og bættum vinnubrögðum, svo að tómstundum fjölgi og afrakstur aukist, munu sveitirnar að mestu leysa vandkvæði sín um blómlegt menntunar- félags- og skemmtanalif sjálfar. Þó verður hið opin- bera að vera vakandi til aðstoðar og hjálpar. Hér skal þetta nefnt: 1. Hraða þarf sem mest byggingum barnaskóla, en forðast að gera þá jafnlanga og sálardrepandi eins og kaupstaðaskólana. 2. Framkvæmd sé rannsókn á ástandi lestrarfélaga um allt land og þeim kippt i gott horf bið bráðasta, þar sem þau eru í vanhirðu.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.