Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1946, Side 15

Skinfaxi - 01.11.1946, Side 15
SKINFAXI 67 3. Kirkjan hvetji presta sína til sveita til að gerast forystumenn æskunnar um félags- og skemmtana- lif, (svo að menntun þeirra komi að gagni, en sé ekki sóað til einkis sunnudag eftir sunnudag í tóm- um kirkjum. Þannig gætu prestarnir unnið þýðing- armikið og þakkarvert starf, og áreiðanlega kristn- inni meir til framdráttar en predikanirnar, jafnvel þótt þeir bæru sér aldrei í munn orðin Jesús, Kristur eða guð almáttugur. Og liver veit nema kirlcjan hætti þá að vera sá steingervingur í þjóðlífi voru, sem hún er nú orðin?) 4. Ungmennafélögin njóti meiri örvunar frá liendi hins opinbera til starfsemi sinnar, t. d. séu erind- rekar sendir á milli þeirra, þeim til leiðbeiningar og hvatningar. 5. Menntunarskilyrði æskulýðsins séu gerð sem jöfn- ust um allt land. Ýmis fleiri ráð mætti telja, en hér verður staðar numið. V. Hér á undan hef ég gert að umtalsefni, hvað gera bæri landbúnaðinum til eflingar: Auka öryggi bónd- ans um afkomu sína, aulca afrakstur lians með aukinni tækni og skynsamlegri framleiðsluháttum, og gera honum loks sem auðveldast að breyta bættri afkomu sinni i aukin lífsþægindi, veraldleg og andleg. Flestum, sem um landbúnað rita, verður tíðræddast um bælta afkomu, en skorti öryggið og lífsþægindin til jafns við aðrar stéttir þjóðfélagsins, er vonlaust um, að fólkið uni til lengdar við landbúnaðinn, flóttinn heldur áfram á mölina — í þægindin. Ég gat þess i upphafi þessarar greinar, að íslenzka þjóðin ælti sér mörg ævintýri um lífsþægindi — dreymd i sveit: þegar erfiðast gekk með lieyskapinn, dreymdi bóndann um orfið og hrífuna, sem slógu og

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.