Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 24

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 24
76 SKINFAXI arástar og meðvitund um köllun sína gleðst það yfir líí'i sínu og starfskröftum og fagnar hverjum nýjum starfsdegi, sem þvi gefst. Slíkt fólk leitast við að varðveita sjálft sig óskennnt af drykkjuskap og öðru sem skyld áhrif hefur. Það notar starfskrafta sína og fjármuni í þjónustu þess uppbyggingarstarfs, sem það helgar sig, og finnst alltaf margt ógert, þó að það gleðjist yfir því, hvernig stefnir. Mér finnst eitthvað vanta í þann æskumann, sem ekki gleðst yfir æsku sinni og slarfskröftum og hlakkar til að njóta lífsins i drengilegum störfum manndómsár- anna. Mér finnst eitthvað sjúkt og rotið við það upp- eldi og menningu, sem fer þannig með fólkið. Ég tel að árangurinn verði andleg vanlíðan og gleðiþrá og starfsþrek heinist tíðum á þær brautir, sem miður fer, vegna þessarar vöntunar. Ég tel því, að það sé mikið í liúfi fyrir sveitamenninguna islenzku, að hið rétta hug- arfar, næmleikinn fyrir fegurð lifsins og þeim röddum þess, sem kalla livern ungan og dugandi mann til starfs og dáða og lijónustu við liugsjónir mannfélagsins, sé rækluð með þvi unga fólki, sem upp vex. Þetta eru rökin fyrir því, að ég nefni ungmennafé- lagsskapinn hér síðasl en ekki sízt, sem nauðsynlegt skilyrði í þessu sambandi. Það skiplir auðvitað engu um nafnið, og formið er aukaatriði. En það, sem við megum ekki án vera, er hugsjónafélag unga fólksins, sem þjálfar það og þroskar í félagsefnum, einheitir kröftum þess að uppbyggingarstarfi og her hið bjarta Ijós hárra hugsjóna inn í lif þess. Einhverjir munu spyrja, livað shkt komi við tækni og verklegri inenningu tutlugustu aldarinnar. Margir munu lítinn eða engan skyldleika finna með fátækum félagsskap áhrifalítilla unglinga og nýsköpun nútimans. Þeir um það. En ég er sannfærður um það, að hugsjón alþýðufólksins, að rækta land sitt af ættjarðarást, þegn- skap og þjónustugleði við hamingju islenzkrar þjóðar,

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.