Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 43

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 43
SKlNFAXi 95 2) aníe( ~-s4ffúittnaiío Laugamótið 1946. Undirbúningur. Fimmta landsmót Ungmennafélaga islands var haldiö að Laugum í Reykjadal 6. og 7. júlí 1946. Tvö fyrstu landsmót- in voru haldin i Reykjavik 1911 og 1914, þaö þriðja í Haukadal 1940 og það fjórða að Hvanneyri 1943. Á sambandsþingi Ung- mennafélags íslands að Hvanneyri 1943, var sam- þykkt að næsta og 5. lands- mót U.M.F.Í. skyldi háð i Norðurlandi vorið 1946, og var stjórninni falinn undir- búningur. Á sambandsráðsfundi U. M.F.Í., þ. e. á fundi stjórn- arinnar og héraðsstjórnanna, vorið 1944, var samþykkt að halda mótið að Laugum í Reykjadal, ef fært yrði, og þá þegar gerð drög að vænt- anlegum iþróttagreinum mótsins, er siðar voru birt i Skinfaxa með ósk um at- hugasemdir frá ungmenna-* samhöndunum, ef til væru. Þær reyndust fáar, og var endan- lega gengið frá væntanlegum íþróttagreinum á sambandsráðs- fundi haustið 1945 og breytingarnar þá birtar i næsta hefti Skinfaxa. — Á þeim fundi var Héraðssambandi Suður-Þing- cyinga falið að taka að sér undirbúning mótsins að mestu leyti, og forráðamönnum Laugaskóla skrifað varðandi skól- ann. — Fleiri staðir norðanlands komu vitanlega til greina, en eftir vandlega athugun þótti auðsætt, að Laugar liefðu alla yfirburði, og var þá að því ráði horfið. Stjórn héraðssambandsins og skólaráðið tóku þessari mála- leitun vel og var nú undirbúningur hafinn. Stjórn Héraðssam- Daníel Ágústinusson.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.