Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 54

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 54
100 SKINFAXI Piltar úr íþróttakennaraskólanum. Björn Jakobsson skóla- stjóri á miðri myndinni. leg dauðyfli, sem ekki hrífast með af þeim. — Að lokum sýndu 15 stúlkur frá Ungmennasambandi Eyjafjarðar fim- leika undir stjórn Gísla Kristjánssonar frá Bolungavík. Stúlk- urnar voru frá Umf. Svarfdæla á Dalvík, Umf. Reyni, Ár- skógsströnd og Umf. Æskunni á Svalbarðsströnd. Flestar þó frá Umf. Svarfdæla, Dalvík. Var leikið á orgel við allmargar æf- íngar þeirra. Flokknum var mjög vel fagnað, enda voru æf- ingar hans léttar og fjörugar, og þjálfunin prýðileg. Þegar þessum þremur sýningum var lokið liófst glíman. Stjórnaði Þorsteinn Einarsson henni, en aðaldómari var Þor- gils Guðmundsson kennari í Reykholti. Keppendur í henni voru 7, frá þremur héraðssamböndum. Sigurvegari í henni varð Sigurjón Guðmundsson frá Héraðssambandinu Skarphéðni, mjög efnilegur glímumaður. Er hann úr Umf. Vöku í Vill- ingaholtshreppi. Annars fékk glíman misjafna dóma. Þótti ýmsum hún ekki falleg. Þegar hér var komið, var kl. orðin rúmlega 19, og var hlé til kl. 20.30, en þá átti að Ijúka 1000 m. sundi karla, frjáls aðferð. Veður var nú aftur orðið hið fegursta, logn og sólskin. Það hafði kvisast, að Sigurður Jónsson frá Yzta- felli ætlaði að synda bringusund alla leiðina og freista þess að setja nýtt íslandsmet. Mannfjöldi mikill hafði safnazt að tjörninni, þegar kallari mótsins, sem var Jón Þórisson, kenn-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.