Skinfaxi - 01.11.1946, Page 76
128
SKINFAXI
um sínum samstarf á liðnum árum og óskar þeim og norsku
þjóðinni allrar gæfu og gengis í framtíðinni.“
Þskj. XXI.
„Sigurður Greipsson, skólastjóri, Haukadal.
Sambandsþing Ungmennafélags íslands sendir þér beztu
árnaðaróskir í tilefni af aldarfjórðungsforustu héraðssam-
bandsins Skarphéðins. Þakkar ennfremur mikilsverð skóla-
störf í þágu ungmennaféiaganna."
Ýmislegt.
Þinginu bárust skeyti frá Stórstúkuþinginu, Sigurði Greips-
syni, Gunnari Guðbjartssyni og Halldóri Sigurðssyni. Var
liinum síðastnefnda sent kveðju- og þakkarskeyti, en hann
hefur verið gjaldkeri U.M.F.Í. síðan 1940, en baðst nú und-
an endurkosningu.
Fundir þingsins hófust, eins og áður er sagt, kl. 17, fimmtu-
daginn 4. júli. Stóðu fundir þann dag og hinn næsta, nema
bvað nefndir störfuðu fyrir hádegi á föstudaginn og svo af
og til síðar, eftir því sem nauðsynlegt var. Á laugardagskvöld
var síðasti fundur þingsins undir berum himni, og mætti á
honum sá mannfjöldi, er þá var kominn á landsmótið. Dag-
skráratriði voru tvö: Tillaga stjórnarinnar um að kjósa Björn
Jakobsson heiðursfélaga U.M.F.I. og þingslit. Flestir fundir
hófust og enduðu með söng. Mestar urðu umræður á þinginu
um bindindismálið og samstarfið við Í.S.Í. Áhugi þingsins
fyrir málefnum ungmennafélaganna og samstarf fulltrúanna
var hið ágætasta. Gengu þingstörf öll því mjög greiðlega.
D. Á.
Kjartan Jóhannesson,
söngkennari frá Ásum, kennir söng í vetur, eins og að und-
anförnu, hjá nokkrum Umf. á Suðurlandsundirlendinu, allt
austur i Mýrdal, að tilhlutun U.M.F.f.
íþróttakennslan í vetur
verður með svipuðum hætti og áðtir. Nokkur ungmennasam-
bönd liafa sérstaka íþróttakennara, en hin eru þó fleiri ennþá,
sem hafa kennara nokkra mánuði, og starfar þá sami kenn-
arinn hjá tveimur eða fleirum ungmennasamböndum.
Bjarni Bachmann,
iþróttakennari, frá Borgarnesi, dvelur i vetur við iþrótta-
kennaraháskólann í Stokkhólmi.