Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 79

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 79
SKINFAXI 131 sammerkt á hann við knöttinn i því, að hann lýtur sömu jarðnesku lögmálum. Áður en við höldum lengra, tel ég rétt að við athugum nánar hreyfingar fótanna. Til þess að gera einfaldari siðari skýringar skulum við koma okkur saman um, að eitt hlaup- skref liefjist við það, að annar fóturinn snerti jörðu og þar til sami fótur snertir jörðu aftur. Meðan að annar fóturinn hleypur eitt hlaupskref, hefur hinn numið einu sinni við jörðu eða likaminn færst fram um tvö skref i þeim skiln- ingi eins og við venjulega leggjum í orðið skref. Myndasam- stæðan 1—9 sýnir eitt hlaupskref, og við skulum ræða nánar um það og skoða myndirnar vel um leið. Stig og viðnám (0, 1 og 2): Þessi hluti hlaupskrefsins er talinn hefjast þegar lærið sígur niður og hefur hreyfingu sína aftur á við. Sköflung- urinn sveiflast fram á við, svo að það næstum réttist úr hnénu (0). Stigið í fótinn nokkru framan við falllínu. Fall- lína = lóðlínari frá þungamiðju líkamans — i miðju mjaðma — Stiga skal þannig i fótinn, að tær hans viti beint fram á við og jarkinn nemi fyrst við jörðu. Viðnám fótarins verð- ur að vera fjaðurmagnað og mjúkt. Gefið eftir í öklalið, liné- lið og um mjaðmarlið. Viðnám fótarins verkar neikvætt og verður því að draga úr hömluninni sem mest. Líkja má lilgangi þessa viðnáms við fjaðrir á bifreið. Eftir þvi sem fjaðrirnar eru betri, eftir því hafa ójöfnurnar minni hemlandi áhrif á skrið bifreiðarinnar. Fóturinn á i þessu atriði skrefs- ins að verka eins og fjöður, sem hraðinn fellir bolinn fram yfir (1 og 2). Spyrnan (2 og 3): Spyrnan hefst í þeirri andrá, er fallhnan færist fram fyrir undirstöðuflötinn — tær viðnámsfótar. — Það réttist úr mjaðmarliðnum fyrst, siðan úr hnéliðnum og síðast úr öklalið og rist. Beyting réttivöðva fótarins í þcssari andrá er áhrifamesta atriði hlaupsins. Þá fer fram orkubeiting til framvinzlu hlaupsins. Þessu atriði hlaup-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.