Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1956, Side 38

Skinfaxi - 01.11.1956, Side 38
134 SKINFAXI Síldarvertíð stóð þrotlaust fram í miðjan desem- ber. Var þá stanzað um tíma, en á bak jóluin var farið á skrapfiskerí á Norðursjó, og stóð sú veiði fram að Íslandsvertíð. Var fiskurinn þá ýmist saltaður eða ísaður. Oft var mikil makrilveiði á þessum tíma árs. Var makríllinn veiddur í is. í landi var makríllinn scuiir í saltlög og «:5an reyktur. Þykir Hollending- um hann kostafæða. Þegar frá leið, varð mikil breyting á togaraútgerð Hollendinga. Þegar Einar kom fyrst til Hollands, og allt til loka fyrra stríðs voru hátt á annað liundrað togarar í landinu. En síðan tók þeim að fækka. Þegar kreppan skall á eftir 1930, dróst togaraútgerðin enn meira saman. Markaður í öðrum löndum brást, og fækkaði togurum Hollendinga stöðugt. 1 byrjun síð- ari heimsstyrjaldarinnar var tala togaranna komin niður í 40. — Nú eiga Hollendingar aðeins 15 togara. Minni vélbátar liafa komið í þeirra stað. Þessi þróun leiddi að sjálfsögðu til þess, að togara- skipstjórar sáu óvænkast sitt ráð. Við þetta bættist svo, að skólaganga til skipstjóraprófs hafði verið lengd til muna á kreppuárunum. Varð þá í landinu margt ungra manna með stýrimannaprófi, sem ekki fengu skip. Þá voru sett þau lög, að allir eldri skip- stjórar, sem lokið höfðu prófi, meðan nám var stvttra og sjómannsreynsla skilaði þeim langleiðina i skip- st'órasess. skyldu nú lesa upp og læra belur og þrevta síðan próf á ný. Einari þótti þetta nokkuð harðir kostif, en um ]iað tjóaði ekki að tala. Um 40 skip- stjórar urðu að sæta þessu. Veturinn 1936—37 lall- aði Einar sig því jafnan upp í sjómannaskóla á milli fiskitúra og sat þar tvo tíma á skólabekk. Síðan tók hann bækurnar með sér á sjóinn og las undir næstu heimsókn í skólann. Þessu fór fram allan veturinn, en um vorið skyldi hann þreyta prófið. Hann var þá kominn yfir fertugt og liafði við annað meira

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.