Skinfaxi - 01.11.1956, Qupperneq 46
142
SKINFAXI
komu ykkar og milli línanna mátti lesa stolt yfir þvi hve ís-
1-and álti glæsilega æsku.
Txl sæmdarvænlegs undirbúnings eru 6 mánuðir til stefnu
og séu þeir mánuðir notaðir vel, þá verða leikraunir hins
væntanlega móts staðnum til sóma. Á engum stað á íslandi
er eins mikill vandi að koma fram og á Þingvöllum. Hefj-
um því strax æfingar. Nú þarf cnginn að kvarta, sem heil-
brigður er, þó að ekki sé í næsta nágrenni við heimili fim-
leikasalur, völlur, sundlaug eða lærður leiðbeinandi. Fyrsta
atriðxð er þjálfun líkamans, sem alls staðar má framkvæma,
ef til er vilji, viljafesta, áliugi og tómstundir. Gerið nú áætlun
um göngur, hlaup og fimleikaæfingar, sem þið iðkið a. m. k.
3 sinnum í viku í jan., og febr. Samtímis þessu lesið þið um
þá íþrótt, sem þið ætlið að æfa. Lesið, liugsið og brjótið til
mergjar allt varðandi íþróttina — og gleymið þá ekki heldur
að læra leikreglur íþróttagreinarinnar. Vanti þig æfingar, þá
skrifaðu einhverjum íþróttakenn'ara eða náðu í kennslubók i
frjálsum íþróttum eftir Þ. Einarsson og S. Kristjánsson, Sund
eftir Jón Pálsson, Fimleika eftir Aðalstein Hallsson, Vaxtar-
rækt eftir Jón Þorsteinsson. í síðustu tveim íþróttaijáttum
skrifaði ég um Zalopek. Ef þið hafið lesið þá þætti, þá sjáið
þið hvað gerði hann að hinum mikla lilaupagarpi. Fyrst og
fremst þrekþjálfun úti á víðavangi.
Ég mun i næsta íþróttaþælti leitast við að veita nánari leið-
beiningar uin þær „tækni“-legu æfingar, sem þið síðan þurf-
að að hefja i byrjun marz, — en slikar æfingar þýðir litið að
hefja þá, ef engin þjálfun er til fyrir. Minnist þess, ágæta
íþrótlafólk, að hefja strax að undirbúa ykkur undir sæmdar-
vænlega þátttöku í Þingvallaleikunum 1957.
Þorsteinn Einarsson.
Íþróiiaíréttir
frá Landsmóti „De danske Skytte-, Gymnastik- og Idræts-
foreninger“ sem háð var í Ollerup 1. og 2. sept. s.l.
Iívennagreinar:
60 m hlaup unnið á
200 m lilaup —
Hástökk
Langstökk
Kringlukast
8,4 sek.
- 28,9 —
- 1,45 m.
- 5,10 —
- 31,54 —