Skinfaxi - 01.11.1963, Síða 14
stigahæst verður, pilti og stúlku, ókeypis
far til 12. landsmóts UMFl. Þingið vekur
athygli á því, að á. slíkum mótum fyrir börn
og unglinga séu keppnisgreinar ekki yfir
sex.
Þingið felur stjórn UMFÍ að hlutast til
um, að starfrækt verði æfingamiðstöð hjá
hverju héraðssambandi í viku til 12 daga í
júnímánuði 1964. Starfstíma stöðvanna
verði þannig hagað, að sömu úrvals kenn-
arar eða leiðbeinendur komi því við að
starfa á tveim til þrem stöðvum. Fram-
kvæmd þessi verði í fullu samráði við
stjórnir héraðssambandanna.
Þingið telur starfsíþróttir merkan þátt í
menningarlegu starfi ungmennafélaganna,
sem leggja beri mikla rækt við. Iðkun
þeirra efli vandvirkni, starfsgleði og verk-
menningu unglinga og stuðli að tæknileg-
um framförum og vöruvöndun. Þingið hvet-
ur því öll ungmennafélög til þess að gera
starfsíþróttir að föstum lið í starfsemi
sinni og telur hagkvæmt að samvinna geti
orðið við félagssamtök atvinnuveganna og
skóla landsins um vaxandi stuðning við
leiðbeiningar í starfsíþróttum og keppni í
þeim. Samþykkir þingið því að fela stjórn
UMFÍ að skipuleggja leiðbeiningar í starfs-
íþróttum þannig, að þær nái til sem flestra
unglinga í landinu, enda treystir þingið á
vaxandi fjárframlög til þessa menningar-
máls. Þingið þakkar öllum einstaklingum
og stofnunum, sem stutt hafa viðgang
starfsíþrótta, ómetanleg framlög í þeirra
þágu. I þeim felst viðurkenning á því að
leggja beri áherzlu á þennan þátt til aukins
þroska fyrir æsku landsins.
Þingið leggur til, að á næsta landsmóti
UMFl farí fram keppni í eftirtöldum
starf síþróttum:
1. Lagt á borð og blómaskreyting 2 fl.
2. Ostafat og eggjakaka 2 fl.
3. Jurtagreining 2 fl.
4. Dráttarvélaakstur 1 fl. unglingar.
5. Gróðursetnin,g trjáplantna 1 fl. full-
orðnir.
6. Búfjárdómar 1 fl.
Stjórn og mótsnefnd heimilast þó að
láta búf j árdóma fara fram á öðrum stað og
tíma, ef hagkvæmara þykir. Ef keppni fer
fram í tveimur aldursflokkum, skal yngri
flokkur miðast við 20 ára og yngri, en sá
eldri yfir 20 ára. Sé keppt í tveimur aldurs-
flokkum, eru tveir þátttakendur hámark
frá hverju héraðssambandi, en þrír ef um
einn flokk er að ræða.
Þingið telur að stefna beri að því, að
haldin verði sjálfstæð starfsíþróttamót,
enda verði keppnisgreinum fjölgað og þær
teknar úr fleiri atvinnugreinum í samræmi
við keppni hjá hinum Norðurlöndunum.
Þingið þakkar ungjnennafélögum, sem
unnið hafa við gróðursetningu í Þrasta-
skógi, vel unnin störf og hvetur öll ung-
mennafélög á landinu til að vinna vel að
skógræktarmálum.
Þingið leggur áherzlu á, að haldið verði
áfram framkvæmdum við íþróttavöllinn í
Þrastaskógi og að lokið verði við að jafna
völlinn og sá í hann á næstkomandi vori.
Þingið felur stjórn UMFÍ að athuga
möguleika á, að komið verði upp greiða-
sölu í Þrastaskógi á svæði því, sem Þrasta-
lundur hafði áður og stefnt verði að því,
14
SKINFAX I