Skinfaxi - 01.11.1963, Page 20
Saga UMFÍ.
Ritstjóri að sögu UMFI er nú byrjaður á verkinu.
Nokkur félög hafa sent ritstjóranum eða skrifstofu
UMFÍ ágrip af sögu sinni, en mörg hafa enn ekki
s';mt þeirri ósk og er þess nú að vænta, að þau geri
það hið fyrsta. Héraðsstjórar sambandanna eru
beðnir að fylgjast með því. Eins og áður hefur verið
sagt frá, er gert ráð fyrir, að ritið verði um 15
arkir að stærð.
Ritstjóri sögunnar er Andrés Kristjánsson ritstjóri.
Ritnefnd skipa: Séra Eiríkur J. Eiríksson, Guðjón
Jónsson og Skúli Þorsteinsson.
Sambandsráðsfundur.
Sambandsráðsfundur UMFÍ 1962 var haldinn i
Reykjavík 16. september. Aðalverkefni fundarins
voru: Breytingar á lögum UMFI, næsta sambands-
þing og næsta landsmót. Fréttir frá fundinum voru
birtar í Skinfaxa og blöðum og útvarpi.
Mínningarsjóður Aðalsteins Sigmundssonar.
Sjóðurinn er nú kr. 59.060,33. Ekki hefur enn
verið veittur styrkur ú sjóðnum. Stjórn sjóðsins
skipa: Ingimar Jóhannesson, fulltrúi; Helgi Elíasson,
fræðslumálastjóri og Daníel Agústínusson, kennari.
Sjóðurinn er ávaxtaður í Söfnunarsjóði íslands.
Nefndir, sem ekki er áður getið:
Daníel Agústínusson á sæti í Iþróttanefnd ríkisins
og Skúli Þorsteinsson til vara. Skúli Þorsteinsson á
sæti í nefnd til að endurskoða lagafyrirmæli um
Iþróttakennaraskóla Islands og semja drög að nýjum
lögum og reglugerð fyrir skólann. A síðasta sam-
bandsráðsfundi var kosin þriggj-a manna nefnd til
þess að gera tillögur um breytingar á lögum UMFÍ
fyrir sambandsþing 1963: Hafsteinn Þorvaldsson,
Guðjón Jónsson, Stefán Ól. Jónsson.
Fjármál
Skattur til UMFÍ var kr. 5,00 af hverjum reglu-
legum félagsmanni fullra 16 ára. Sambandið nýtur
styrks frá hinu opinbera, en hann hækkaði verulega
síðastliðið ár og ber að þakka það viðkomandi að-
i’um sérstaklega. Skattar og skýrslur berast ekki
eins skilvíslega og æskilegt væri frá sumum héraðs-
samböndunum.
Sjá nánar um fjármál í reikningum sambandsins.
12. landsmót og 24. sambandsþing UMFÍ.
12. landsmót og 24. sambandsþing Ungmennafé-
li'gs Islands verður haldið að Laugarvatni um mán-
aðamótin júní og júlí 1965. Héraðssambandið Skarp-
héðinn sér um undirbúning mótsins og framkvæmd
þess í samráði við stjórn UMFI. Samningur hefur
verið gerður þar að lútandi.
Landsmótsnefnd skipa: Stefán Jasonarson, for-
maður; Hermann Sigurjónsson, Hermann Guð-
mundsson, Björn Sigurðsson og Armann Pétursson
fré UMFÍ.
Héraðssambönd, félög og félagsmannatal.
Félög Sks. ósks. Alls
1. Ungm.samb. Kjalarnesþings 5 402 286 688
2. Ungm.samb. Borgarfjarðar 13 570 138 708
3. Héraðssamb. Snæf. og Hnapp. 11 345 185 530
4 Ungmennasamb. Dalamanna 8 234 63 297
5. Ungm.samb. N.-Breiðfirðinga 3 81 0 81
6. Héraðssamb. V.-Isafj .sýslu 8 279 120 399
7 Héraðssamb. Strandamanna 7 265 69 334
8. Ungm.samb. V.-Húnav.sýslu 7 307 0 307
9. Ungm.samb. A.-Húnav.sýslu 10 346 53 399
10. Ungmennasamb. Skagafjarðar 13 470 149 619
11. Ungmennasmb. Eyjafjarðar 14 675 190 865
12. Héraðssamb. S.-Þingeyinga 11 682 182 864
13 Ungm.samb. N.-Þingeyinga 6 295 8 303
14. Ungm. og íþr.samb. A.lands 20 968 299 1267
15. Ungmennasamb. Úlfljótur 5 272 33 305
16. Ungm.samb. V.-Skaftafellss. 2 79 9 88
17. Héraðssamb. Skarphéðinn 24 1676 367 2043
Samtals : 167 7946 2151 10097
Ungmennafélög utan héraðssambanda:
Ungmennafélag Keflavíkur 132 178 310
Ungmennafélag Öræfa 74 20 94
Ungmennafél. Skipaskagi 25 0 25
Ungmennafélag Njarðvíkur 112 0 112
Ungmennafél. Kári Sólmundarson 30 0 30
Ungmennafél. Kjartan Ólafsson 34 1 35
Ungmennafél. Barðstrendinga 64 0 64
Ungmennafélag Reykjavíkur 60 15 75
Samtals 175 8477 2365 10842
Nokkur félög (um 30) eru ekki talin hér með,
þau eru utan héraðssambanda eða í vanskilum við
20
SKINFAXI