Skinfaxi - 01.11.1963, Page 23
LÖG
Ungmennasfélags
Islands
1. gr.
Sambandið heitir Ungmennafélag Is-
lands. Skammstafað: UMFÍ.
2. gr.
UMFÍ vinnur samkvæmt eftirfarandi
stef nuskrá:
Að sameina íslenzkan æskulýð um að
vernda og efla sjálfstæði Islendinga á þjóð-
legum menningargrundvelli. Takmarki sínu
hyggst féagsskapurinn einkum að ná sam-
kvæmt eftirfarandi starfsskrá:
1) Að hafa bindindi um nautn áfengra
drykkja, vernda æskulýðinn gegn
neyzlu þeirra og vinna að útrýmingu
skaðnautna úr landinu.
2) Að vinna að því að klæða landið skógi
og öðrum gróðri.
3) Að efla áhuga æskulýðsins fyrir að
vernda og fegra móðurmálið og sinna
sögu og bókmenntum þjóðarinnar að
fornu og nýju.
4) Að efla heimilisiðnað og glæða með
æskulýðnum tryggð og rækt við heim-
ili sín, átthaga og ættjörð.
5) Að stunda íþróttir og halda landsmót,
þar sem keppt er í íþróttum og störf
og áhugamál félaganna kynnt.
6) Að efla í hvívetna fræðslu og uppeld-
isstarf meðal æskulýðsins. Stuðla að
því að unglingar geti notið framhalds-
menntunar, hver við sitt hæfi, og að
þeirra bíði lífvænleg atvinna að loknu
námi. Að efla með æskulýðnum spar-
semi, skyldurækni, vinnusemi og fórn-
arlund.
7) Að efla þjóðlegt skemmtanalíf með
menningarsniði. Halda uppi málfunda-
starfsemi og hjálpa æskulýnðum til
þegnlegs þroska með því að æfa hana
við að rökhugsa þjóðnytjamál og
vinna að framgangi þeirra.
I þessu skyni séu haldin námskeið
m. a. með samvinnu við skóla landsins.
8) Að vinna í anda friðar-, manngildis-
og menningarhugsjónar kristindóms-
ins.
9) Að styðja jafnrétti karla og kvenna.
10) Að vinna að náinni samvinnu við ung-
mennafélög hinna Norðurlandanna og
við æskulýð allra þjóða á grundvelli
jafnréttis og sjálfstæðis.
Fáni og merki UMFl er: Hvítbláinn
og kjörorð: íslandi allt.
3. gr.
UMFI skiptist í héraðssambönd. Þó geta
einstök ungmennafélög innan héraðssam-
banda, sem ekki eru aðilar í UMFl og einn-
ig félög á svæðum, þar sem héraðssamband
er ekki starfandi, gerzt aðilar að samtökum
UMFÍ. Verði ágreiningur um það, hvar
félag á að vera í héraðssambandi, sker sam-
bandsstjórn úr.
Lög héraðssambands og einstakra. félaga
skulu vera í fullu samræmi við sambands-
lög þessi. Inntökubeiðni héraðssambands
eða félags í UMFl skal fylgja eintak af
lögum þess. Sambandsstjórn úrskurðar
inntöku. Hún hefur rétt til að víkja félög-
um og héraðssamböndum úr UMFl, ef hún
telur það nauðsynlegt.
Hætti félag störfum, ber síðustu stjóm
þess skylda til að gera stjórn UMFl grein
SKINFAXI
23