Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1963, Page 25

Skinfaxi - 01.11.1963, Page 25
7. gr. Hvert félag innan UMFl greiðir árgjald í sambandsstjóð af hverjum reglulegum félagsmanni fullra 16 ára og eldri sam- kvæmt ákvörðun sambandsþings. En reglu- legir félagsmenn teljast þeir, er heimilis- festu eiga á félagssvæðinu og aðrir, er greiða félagi árgjöld. Héraðsstjórnin innheimtir árgjöldin og stendur skil á þeim til sambandsstjórnar fyrir aprílmánaðarlok ár hvert. Sambands- félögin semja skýrslu um störf sín og hag við hver áramót og senda skýrsluna í tveim eintökum til héraðsstjórna fyrir febrúar- mánaðarlok, er sendir annað eintakið, ásamt árgjöldum til sambandsstjórnar. Skylt er héraðssamböndum að semja skýrslur á sama hátt. UMFl leggur til skýrslueyðublöð. 8. gr. UMFÍ gefur út tímaritið Skinfaxa. Út- gáfu þess er hagað eftir reglum, sem sam- bandsþing setur. Gjalddagi Skinfaxa er 1. september ár hvert. 9. gr. I UMFl má vera deild fyrir aukafélaga. Innkvæmt eiga í deild þá gamlir ungmenna- félagar, er tryggð halda við félagsskapinn og þeir menn aðrir, er áhuga hafa á mál- efnum sambandsins og vilja vera tegndir því, en ástæður banna að vera starfandi félagar einhverra deilda þess. Aaukafélag- ar þessir greiða kr. 50,00 árlega í sam- bandssjóð eða kr. 500,00 í eitt skipti fyrir öll. Frjálst er mönnum að greiða hærra gjald, og eru þá styrktarfélagar. Félagar samkvæmt grein þessari eru bundnir ákvæðum 2. gr. og hafa réttindi og skyldur samkvæmt 4. gr. Þeir fá Skinfaxa ókeypis. Rétt er þó, að þeir vinni fyrir sambandið þau störf ein, er þeir kjósa sjálfir. Sambandsþingið getur kjörið heiðursfé- laga UMFl þá menn, er unnið hafa ung- mennafélagsskapnum óvenju mikið gagn, eða þingið vill veita sérstaka sæmd fyrir ágæt störf í anda UMFÍ. Heiðursfélagar 'hafa öll réttindi ungmennafélaga, en eru sjálfráðir um skyldur. 10. gr. Sambandslög þessi öðlast þegar gildi. Eru þar með eldri sambandslög og þingsá- lyktanir úr gildi numin. (Lög þessi voru samþykkt á 23. sam- bandsþingi UMFl.) SKINFAXI 25

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.