Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1989, Side 6

Skinfaxi - 01.12.1989, Side 6
Lottó á dönsku Norðmennirnir í Grimsaguten skoða fiskeldisstöðina Fiskalón í Ölfusi. Norömenn sækja heim Baldur Lítil ferðasaga frá liðnu sumri af nokkrum Norðmönnum sem heimsóttu félagsmenn í Umf. Baldri. Þaðvarsíðdegismiðvikudaginn 14.júnís.l. að 19félagarúrUngdomslaget Grimsaguten komu til Islands í þeim tilgangi að heimsækja félaga í Umf. Baldri Hraungerðishreppi. Hópurinn samanstóð af 13 konum og 6 körlum á aldrinum 16 til 32 ára. Það var hið „típiska” íslenska verður sem tók á móti Norðmönnunum á Suðumesjunum. Rigning ogþoka, en það varkannski einmittþokan sem gerði heimsóknina í Bláa lónið eins ævintýralega og raun bar vitni. Síðan var haldið austur fyrir fjall og að gistheimilinu í Þingborg þar sem hópurinn gisti meðan á dvölinni stóð. A fimmtudeginum hafði veðrið batnað til muna og meira að segja sást til sólar af og til. Byrjað var á að fara með hópinn á hestaleiguna Eldhesta við Hveragerði. Allir fóru á bak þrátt fyrir ýmsar efasemdir um ágæti íslenska hestsins, en komust að því að hann er traustsins verður og hinn besti ferðafélagi. Þá var farið íeina afperl um erlendra ferðamanna á Islandi þ.e.a.s. Eden. Að því loknu var Garðyrkjuskóli ríkisins að Reykjum skoðaður undir leiðsögn Olafs Njálssonar. Þaðan varfarið ífiskeldisstöðina Fiskalón íÖlfusi. Þarfékk hópurinn góðar viðtökur og greindi l lpbye Christiansen stóðvarstjóri frá rekstri stöðvarinnar og mörgu öðru skemmtilegu. Þá var komið að því að kynna þeim íslenskan landbúnað og var farið á bæinn Litla - Ármót í þeim erindagjörðum. Þar fylgdust þau með mjöltum og ýmsu fleiru. Á föstudeginum tók hópurinn þátt í hátíðarsamkomu sem Baldursmenn halda að vanda á íþróttasvæði sínu í Einbúa. Þar var farið í ýmsa leiki og skemmtu menn sér hið besta. Eftir samkomuna var haldið á Selfoss og Náttúrugripasafnið skoðað. Síðan var ánægjuleg kvöldstund í Þingborg með söng og spili. Sunnudagurinn heilsaði með dumbung. Nú átti að færa um uppsveitir Árnessýslu. Fyrst keyrðum við til Þingvalla þar sem sr. Heimir Steinsson tók á móti hópnum og sagði sögu staðarins. Síðasta deginum var eytt í Biskupstungunum, að sjálfsögðu með viðkomu á Gullfossi og Geysi og síðasta kvöldið var síðan kvöldvaka í Þingborg og má telja líklegtað morguninn eftirhafi það verið nokkuð ánægðirNorðmenn sem héldu heim á leið til Noregs. Eins og segir frá hér annars staðar í blaðinu er beinlínutengt lottó farið af stað í Danmörku. Danir keyptu fyrir 12 milljónir króna danskar í fyrsta drætti. I kjölfar upphafs lottósins þar í landi kom upp gagnrýni fjölmiðla á að lottóið tæki frá öðrum góðgerðamálahappdrættum Aðstandendur danska lottósins tóku sig þá til og gáfu 3 % af hagnaði til þessara aðila. Heimsmeistara- getraunir Islenskar Getraunir eru með í undirbúningi að taka þátt í samnorrænum getraunaseðli fyrir heimsmeistarakeppnina í knattspyrnuáítalíu 1990. Ekkihefur verið tekin endanleg ákvörðun um þetta mál en það væri skemmtileg viðbót næsta sumar fyrir tippara að fá að spá í þann frábæra bolta sem verður á Italíu næsta sumar. Fjölbreytilegar fjáraflanir Fjáraflanirgetaveriðýmiskonarhjá félögum. Hér koma nokkrar. HSK sá um gæslu á tjaldsvæðinu á Laugarvatni um síðustu verslunar- mannahelgi. Skiptist fólk á vaktir allan sólarhringinn og varþað altalað eftir helgina að sjaldan hafi verið jafn rólegt og notalegt um verslunarmannahelgi á Laugarvatni en mikið a fjölskyldufólki sækir þá staðinn. HSK hafði um 200 þúsund krónur upp úr krafsinu. Félögin innan HSK skiptu 50% fjárins á milli sín en HSK fékk hin 50% í Landsmótssjóð sem er til undir- búning Landsmótinu næsta sumar. HSK er einnig að selja bílabúninga (litlir búningar til að hengja í afturglugga bifreiða) í litum sambandsins eins og reyndar fjölmörg félög gera. En það eru 6 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.