Skinfaxi - 01.12.1989, Side 8
Fréttir af nýjasta félaginu
Boðhlaupssveit Umf. Óðins, 12 ára og yngri á Húsavík í sumar. Félagar eru
flestir afyngstu kynslóðinni.
Nýjasta félagið í
ungmennafélags-
hreyfingunni er
Ungmennafélagið
Óðinn sem var eitt
þriggja félaga klappað
inn í UMFí á þingi
UMFÍ í október
síðastliðnum. Hér
segir formaðurinn frá
því helsta í starfi
félagsins
Ungmennafélagið Oðinn var
stofnað 6. mars 1989 í
Vestmannaeyjum. Stofnfélagarvoru
85 talsins. Félagið var stofnað af
fólki sem verið hafði frjáls-
íþróttadeild ÍBV. Stjóm félagsins
skipa 7 konur. Félagið mun, í það
minnsta til að byrja með, einbeita sér
aðfrjálsum íþróttumásamtalmennu
félagsstarfi. Við höldum að jafnaði
þrjú mót í frjálsum íþróttum á ári, 2
utanhúss, Vestmannaeyja-
meistaramót í júlí, Gámamót
svonefnt í september. Það eru
Gámavinir sem styrkja það mót
sérstaklega en þeirhafaeinniggefið
okkurbúninga. Svoereittinnimótí
janúar. Sumardaginn fyrsta erum
við með víðavangshlaup, á 17 júní
erum við með svonefnt
Hásteinshlaup. Friðarhlaupið kom
hérvið síðastasumarvarhér 17.júní
og var það í fyrsta sinn sem Eyjamenn
tóku þátt í því.
Við tókum þátt í hreinsunarátaki
ungmennafélaganna og var prýðileg
þátttaka. Við notuðum tækifærið til
að gera okkur dagamun, lukum
deginum með því að grilla og syngja
við varðeld og var þetta mjög
minnisstæður dagur hér í Eyjum.
Göngudagur fjölskyldunnar var
haldinn hátíðlegur hér í Eyjum í
sumar, að öðru leyti en þessu tvénnu
var starfið með nokkuð svipuðu sniði
í sumar og verið hefur undanfarin ár
hjá frjálsíþróttadeildinni.
Alls æfa 70 til 100 börn frjálsar
íþróttir á sumrin en um 40 börn að
vetri til. Kvöldskemmtanir eru
þrisvar sinnum á ári. Á sumrin eru
æfingarfrámánudegi til fimmtudags
og föstudagar eru síðan svonefndir
skemmtidagar. Þá er farið í göngu-
ferðir, á sjó eða gert eitthvað anna
skemmtilegt sem fólki dettur í hug.
Við sjáum um íþróttakeppni bama á
Þjóðhátíð í Eyjum og margt fleira
sem til fellur. Ekki meira að sinni.
Hólmfríður Júl íusdóttir,
formaður Umf. Óðins.
Það er mikið gert afþví að hafa staifið sem fjölbreyttast hjá krökkunum í Umf.
Óðni. A sumrin eru föstudagarnir notaðir sem „skemmtidagar" ogfarið í
ýmsar ferðir. Hér eru félagsmenn að leggja í sjóferð um eyjarnar í
blíðskaparveðri síðasta sumar. Enginn varð sjóveikur og þetta var eftiminnileg
reynsla.
8
Skinfaxi