Skinfaxi - 01.12.1989, Page 12
Skinfaxi
s
málgagn UMFI
Hafsteinn Porvaldsson
Hafsteinn
Þorvaldsson, formaöur
Ungmennafélags
íslands á árunum
1969 til 1979, ræöir
um Skinfaxa, kynni
sína af honum og
fleira.
Skinfaxi, málgagn Ungmenna-
félags íslands hefur nú komið út í 80
ár. Blaðið hefur á þessum tíma átt
sín blómaskeið en einnig erfið-
leikatímabil þar sem við Iá að útgáf-
an félli niður.
Ritstjórar Skinfaxa hafa margir
verið þjóðkunnir menn af ritstörfum
sínum og því mikill fengur fyrir
hreyfinguna að hafa haft slíka menn
í þjónustu sinni. Málgagnið hefur á
þessu 80 ára tímabil i með frásögnum
sínum endurspeglað starfið innan
hreyfingarinnar, stundum öflugt og
fjölþætt en í annan tíma erfitt þó oft
hafí þeirerfiðleikar verið staðbundnir
við einstök félög eða byggðarlög.
Fyrir forystumenn hreyfingar-
innar hefur Skinfaxi verið
ómetanlegt uppsláttarrit á hverjum
tíma, þar sem lesa má óslitna sögu
ungmennafélaganna og UMFÍ og
velta upp og kynna sér þær áherslur
og þann fróðleik sem málgagnið taldi
brýnt að flytja félagsmönnum sínum.
Fyrstu kynni mín af Skinfaxa voru
þegar ég 14 ára gamall árið 1945
settist í Iþróttaskóla Sigurðar
Greipssonar í Haukadal. Sigurður,
sem var einn af máttarstólpum
ungmennafélagshreyfingarinnnarþá
og síðar notaði málgagnið mikið við
kennslu í skólanum og þareignaðist
ég mín fyrstu eintök af Skinfaxa. Á
þessum tíma voru í blaðinu afar
merkilegirfræðsluþættir um íþróttir
eftir þáverandi íþróttafulltrúa
ríkisins, Þorstein Einarsson.
Þorsteinn hóf að skrifa þessa þætti í
blaðið haustið 1941, skömmu eftir
að hann tók við sínum mikilsverða
starfi sem íþróttafulltrúi. Þáttum
þessum fylgdu teikningar og
skýringamyndir sem og ljósmyndir
og hélt Þorsteinn þessum þáttum
sínum óslitið úti í blaðinu til ársins
1958 að ég held.
Á árunum 1960 til 1964 átti blaðið
í nokkrum erfiðleikum og kom
Fyrir forystumenn
hreyfingarinnar hefur
Skinfaxi veriö ómet-
anlegt uppsláttarrit á
hverjum tíma, þar
sem lesa má óslitna
sögu ungmenna-
félaganna og UMFÍ
óreglulega út og í fáum eintökum.
Árið 1965 er Eysteinn Þorvaldsson
ráðinn ritstjóri blaðsins og rífur það
upp úr þessum öldudal og hefur
Skinfaxi átt góða daga síðan og verið
útgefendum sínum til sóma.
Jafnframt því að vera öflugt
baráttutæki fyrir málstað
hreyfíngarinnar hefur Skinfaxi verið
góður fréttamiðill um það fjölþætta
starf sem þar er unnið. Fyrstu árin
sem Skinfaxi var gefinn út komu út
12 eintök af blaðinu á ári, fæst hygg
ég að þau hafi orðið 2 á ári en í einu
hefti. Árið 1969, á 60 ára afmæli
Skinfaxa er ákveðið að gefa blaðið
út í 6 eintökum á ári og hefur svo
verið síðan.
Utbreiðsla blaðsins hefur alla tíð
sem ég man eftir verið nokkurt
áhyggjuefni fyrir forystumenn
UMFÍ. Ástæðanersúaðaðeinslítið
brot af skráðum félagsmönnum
þessarar öflugu félagsmálahreyf-
ingar kaupir blaðið og fáir utan
hennar. Áýmsumtímamótumísögu
blaðsins og UMFÍ hefur verið gerð
tilraun til þess að auka söluna á
blaðinu og hefur það gengið
misjafnlega. Undirritaður telur að
nú, á tímum góðra samgangna og í
tilefni 80 ára afmælisins, ætti
hreyfingin að senda sölumenn af stað
með okkar glæsilega málgagn til
kynningar og sölu og helst að
tvöfaldakaupendafjöldann á stuttum
tíma. Kostnaður við slíka söluher-
ferð gæti sem best tengst öðru
útbreiðslustarfi fyrir hreyfinguna og
tel ég að þeim fjármunum væri vel
varið en vanda ber til vals á
liðsmönnum í slíkan erindrekstur.
Á þessum merku tímamótum í
sögu Skinfaxa sendi ég öllum
aðstandendum blaðsins mínarbestu
kveðjur og þakkir fyrir glæsilegt
íþrótta- og fréttablað sem kemur nú
út með glæsibrag, litprentað og
myndskreytt. Undirritaður vill þó
minna á að eftirsjá er í þjóð-
málaumræðunni sem oft var býsna
athyglisverð í Skinfaxa og vakti
þjóðarathygli. Hræðsla við að birta
slíkargreinaríblaðinuhefurhindrað
nú um sinn slíka umræðu. Vonandi
hefst sú umfjöllun á ný og ættu
forystumennn UMFÍ að hafa
frumkvæði þar um.
Hafsteinn Þorvaldsson
12
Skinfaxi