Skinfaxi - 01.12.1989, Blaðsíða 13
Skinfaxi og
íþróttirnar
Þorsteinn Einarsson.
ÞorsteinnEinarsson hefurí staifi sínusem íþróttafulltrúi átt þátt í undirbúningi
margra Landsmóta eða alltfrá mótinu á Hvanneyri 1943. Landsmóta hefur
verið getið mikið í Skinfaxa enda einn af hápunktum í starfi hreyfingarinnar.
Hér er myndfrá Landsmótinu á Eiðum 1968, Skagfirðingar og Kjalnesingar
eigast við í körfuknattleik sem leikinn var utanhúss á þessum tíma.
Þorsteinn Einarsson,
fyrrverandi
íþróttafulltrúi ríkisins
og tíður gestur á
síðum Skinfaxa í
gegnum árin, segir frá
íþróttaumfjölluninni í
Skinfaxa, sinni eigin
og annarra
Ég hefi í nær fimmtíu ár lesið
Skinfaxa og látið ritinu til birtingar
greinar mínar um íþróttir, mót og
starfsíþróttir sem þá og þá hafa verið
viðfangsefni ungmennafélaga.
Stefán Júlíusson ritstjóri 1946-’57
orðaði við mig þá nauðsyn að taka á
ný upp fræðslu um íþróttir. Ritið
birti um árabil fræðsluþætti mína
um frjálsíþróttir. Stefán Kristjánsson
aðstoðaði mig 1951 að gefa þættina
út í bók. í ritstjóratíð Guðmundar
Gíslasonar fór stjórn UMFÍ þess á
leit við mig að gera stutta
greiningarþætti um fuglatil birtingar
í Skinfaxa, svo að ungmennafélagar
á göngudögum og endranær geti
aukið þekkingu sína á fuglum. Af
bjartsýni og góðum hug til fugla og
ungmennafélaga skrifaði ég um hina
fiðruðu drótt í 7 tölublöð. Þættirnir
voru krökkir af tölvuvillum, myndir
svart/hvítar og því móðgun við vini
mína fugla og ungmennafélaga. Úr
þessu bætti Fuglahandbók Amar og
Örlygs, sem út var gefin 1987, prýdd
litmyndum, með aðstoð færustu
fuglafræðinga. Textinn var saminn
út frá þáttum mínum úr Skinfaxa.
Þannig er Skinfaxi hluti af okkur,
sem gefið hafaritinu stóran og smáan
efnivið, mismunandi merkan og
athyglisverðan en aldrei hefur tekist
að gera það nógu vinsælt nema þá
helst í ritstjóratíð Jónasar Jónssonar
frá Hriflu (1911-1918), svo að oft
hefur verið rætt um að leggja það
niður. Hæstar voru þær raddir er
Skinfaxi varð fertugur.
A sambandsþingi UMFÍ nú fyrir
skömmu var komið fram með tillögu
um að sambandið sparaði sér árlegan
tekjuhalla á úthaldi ritsins. Greinar
íþróttalegs eðlis, t.d. yfirlit um úrslit
móta, árangur í sundi og frjálsum
íþróttum hafa vakið athygli iðkenda.
Þrjú barnaböm mín, iðkendur sunds,
frjálsra íþrótta og knattspymu, spyrja
Skinfaxi
13